Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Blaðsíða 46
46
12. mál. Þingsályktun um skipan nefndar til að endurskoða starfsreglur um kjör til
kirkjuþings nr. 234/2006.
Kirkjuþing 2010 ályktar að fela kirkjuráði að skipa þriggja manna nefnd til að
endurskoða starfsreglur um kjör til kirkjuþings.
Kirkjuráð skipaði sr. Gísla Gunnarsson, kirkjuþings- og kirkjuráðsmann sem var jafn-
framt formaður nefndarinnar, Margréti Björnsdóttur kirkjuþingsmann og Jóhannes
Pálmason lögfræðing, formann sóknarnefndar Hallgrímssóknar, Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra. Tillögur nefndarinnar eru lagðar fyrir kirkjuþing 2011 til kynningar.
13. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um Leikmannastefnu nr.
874/2004.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
14. mál. Þingsályktun um námskrá fyrir fræðslu þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing 2010 samþykki námskrá fyrir fræðslu þjóðkirkjunnar og beindi því til
biskups og kirkjuráðs að fylgja eftir framkvæmd hennar.
Námskráin hefur verið birt á heimasíðu kirkjunnar og er ávallt kynnt þegar haldin eru
fræðslunámskeið á vegum Biskupsstofu.
15. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um sóknarnefndir nr. 732/1998
og starfsreglum um presta nr. 735/1998.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum. Þær kveða m.a. á um heimild til
skimunar á umsækjendum um störf hjá kirkjunni vegna brota á eftirtöldum laga-
bálkum:
- barnaverndarlög nr. 80/2002,
- kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23 kafla og brot gegn
frjálsræði manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þó ekki
minniháttar líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga,
- lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra
hegningarlaga. nr. 19/1940, þ.e. refsidóm síðustu fimm ára.
Þegar hefur verið hrint í framkvæmd skimun á vígðum þjónum og öðru starfsfólki
kirkjunnar. Sent var út eyðublað þar sem óskað var heimildar viðkomandi starfsmanns
til að afla upplýsinga úr sakaskrá. Heimildir til skimunar hafa borist frá 150 starfs-
mönnum og hafa þeir þegar verið skimaðir gagnvart ofangreindum brotum.
16. mál. Starfsreglur um breytingu á ýmsum starfsreglum.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
17. mál. Þingsályktun um breytingu á Jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar.
Breyting á Jafnréttisstefnunni fól í sér viðbót á stefnunni þar sem fjallað er um að
unnið skuli gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni.
18. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um meðferð kynferðisbrota
innan íslensku þjóðkirkjunnar nr. 955/2009.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
19. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um prestssetur og aðrar
fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009.
Starfsreglurnar hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.