Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Qupperneq 145

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Qupperneq 145
145 Þingslitaræða forseta kirkjuþings, Péturs Kr. Hafstein Virðulega kirkjuþing. Þá erum við komin að leiðarlokum í þessari lotu sem hefur í senn verið krefjandi og gefandi. Sú hugsun verður æ áleitnari að kirkjuþing þurfi að koma saman oftar en einu sinni á ári til þess að geta í raun gegnt því mikilsverða hlutverki að fara með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Aukakirkjuþing voru kvött saman í ár og í fyrra en þar á undan var það nánast óþekkt. Þessi aukakirkjuþing voru haldin vegna sérstakra aðstæðna, annars vegar vegna niðurskurðarkröfu ríkisins og erfiðrar fjárhagsstöðu þjóðkirkjunnar og hins vegar vegna skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings um viðbrögð og starfshætti kirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot. Með frumvarpi til nýrra þjóðkirkjulaga, sem væntanlega fær brautargengi á næsta ári, sækist kirkjuþing eftir enn meiri ábyrgð og ákvörðunarvaldi, þar á meðal raunverulegu fjárstjórnarvaldi innan kirkjunnar. Náist þetta fram er enginn efi á því að kirkjuþing þurfi að koma saman að minnsta kosti tvisvar á ári. Hér skiptir líka máli að forysta kirkjuþings í stefnumarkandi málum kirkjunnar á svo mörgum öðrum sviðum en fjármálum kallar á meiri samfellu og stöðugleika í störfum og ákvörðunartöku þingsins. Vikutími að hausti nægir ekki lengur til þess að kjörnir fulltrúar á kirkjuþingi nái að koma sjónar- miðum og stefnumótun í viðunandi farveg til þess að kirkjuþing geti haft þau áhrif sem því eru nauðsynleg til þess að veita raunhæfa forystu. Að þessu þarf að gefa gaum á næstu misserum vegna þess að í umróti samtímans aukast kröfur til kirkjunnar og hún verður að gera allt sem í hennar valdi stendur til að reynast vandanum vaxin. Eftir aukakirkjuþingið í sumar um einhuga fyrstu viðbrögð við skýrslu rannsóknar- nefndar kirkjuþings var ómaklega að því vegið. Sumir sögðu að kosning úrbóta- nefndarinnar hefði verið til þess eins fallin að kæfa málið og svæfa þótt öllum hugsandi mönnum hefði átt að vera ljóst að hér var aðeins verið að stíga fyrsta skrefið. Öðrum sýndist, með orðum Páls postula til Korintumanna, að nú væri „hagkvæm tíð“, nú væri „hjálpræðisdagur“ fyrir alla forystu þjóðkirkjunnar, hvern einasta kirkju- þingsfulltrúa, forseta kirkjuþings, kirkjuráð og biskup Íslands, að stíga til hliðar og viðurkenna að henni hefði mistekist að stýra skipinu heilu út úr brotsjónum – og var þó rétt verið að láta úr höfn! Í forystugrein Fréttablaðsins skömmu eftir aukaþingið var sagt að margir hafi bundið vonir við kirkjuþingið og viðbrögð þess hljóti því að vera mikil vonbrigði öllum þeim sem vilji vera þátttakendur í samfélagi kirkjunnar og vilji treysta fulltrúum hennar. Hér er á ferðinni mikil dómharka án allrar ábyrgðar, án sanngirni og án sannleiksleitar. Öll þessi viðbrögð bera vott um vanstillingu og veik- burða kristilegt þolgæði og eru í raun og veru í algjörri mótsögn við málefnalegt framlag ykkar kirkjuþingsfulltrúa, bæði á aukaþinginu og á þessu þingi. Um það verður ekki lengur deilt að þjóðkirkjan er í forystu þeirra sem vilja taka höndum saman um fyrirmyndarvinnubrögð vegna ásakana um ofbeldi og misnotkun á kirkju- legum vettvangi. Það hefur ljóslega sýnt sig í störfum þessa kirkjuþings og það mun koma enn betur í ljós í þeim viðamiklu verkefnum á þessu sviði sem framundan eru. Fyrir þetta kirkjuþing voru lögð 36 mál. Tíu þeirra voru þingmannamál, kirkjuráð flutti 15 mál, biskup Íslands átta mál, forsætisnefnd eitt mál og innanríkisráðherra eitt mál. Auk þess var sú nýlunda á þessu kirkjuþingi að undir sérstöku málanúmeri voru lagðar fram til umræðu skýrslur Þjóðmálanefndar og hins svonefnda framtíðarhóps kirkjuþings. Verkaskiptingu nefnda var þannig háttað að allsherjarnefnd fékk 12 mál til meðferðar, fjárhagsnefnd tíu mál og löggjafarnefnd 13 mál. Kirkjuþing hefur afgreitt þessi mál með níu starfsreglum, 21 þingsályktun, einu frumvarpi til laga um breytingu á þjóðkirkjulögum auk breytingar á stofnskrá fyrir Stofnun dr. Sigurbjörns
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.