Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 30

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 30
30 vettvangi fyrr og síðar, svo sem í starfi nefndar um nýtt þjóðkirkjulagafrumvarp og þarfnast nánari skoðunar og víðtækrar samstöðu. Það er kirkjuþings að ákvarða um það hvernig málum verði fyrirkomið, kirkjuþings og svo auðvitað alþingis. Augljós- lega bíður mikið verk til að ná samstöðu um grundvallaratriði í þessum efnum. Einnig var gerð umfangsmikil endurskoðun á rekstri Skálholts. Því miður reyndist nauðsynlegt að endurmeta frá grunni allar fjárhagsforsendur, starfsemi og rekstur. Nýr vígslubiskup, sr. Kristján Valur Ingólfsson, mun ásamt biskupsritara, Þorvaldi Karli Helgasyni, leiða enduruppbyggingu starfseminnar. Rekstur og starfsemi Tónskóla þjóðkirkjunnar er líka til gagngerrar endurskoðunar. Unnið er að því að finna leiðir til að auka samstarf allra þeirra aðila sem koma að kirkjusöng- og tónlistarmálum með það í huga að nýta fjármuni sem best jafnframt því sem við gætum þess mikilvæga þáttar í starfi safnaðanna um land allt sem tónlistin er og sú mikla menningargróska sem grær í skjóli hennar. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, sem verður tuttugu ára í janúar n.k., hefur einnig verið endurskipulögð miðað við gjörbreyttar forsendur og hefur nú fengið aðstöðu hér í húsnæði Grensáskirkju. Verður hún þar í nábýli við Hjálparstarfið og stefnt er að því að efla enn hið góða samstarf sem þar hefur verið í þróun. Við höfum þurft að skerða þjónustu Fjölskylduþjónustunnar, samt hefur mikilvægi hennar aldrei verið meir en einmitt nú, þegar fjölskyldur landsins eiga svo margar í vök að verjast og þessi grunneining samfélagsins er að takast á við áföll og erfiðleika. Svo má ekki gleyma mikilvægi Fjölskylduþjónustunnar fyrir handleiðslu presta og djákna sem ég legg mikla áherslu á að sé ætíð í boði og stór hluti vígðra þjóna nýtir sér. Því miður höfum við einnig þurft að leggja niður prestsembætti og draga saman starfsemi. Því miður hafa sóknir þurft að segja upp starfsfólki, djáknum, æskulýðsfull- trúum og organistum. Þetta er sársaukafullt, því fylgir sorg og missir. Við verðum öll að takast með ábyrgð á við gjörbreyttar forsendur. Og leita sóknarfæra til að geta sótt fram með auknum styrk og þrótti. Við ætlum að vera enn sem fyrr biðjandi, boðandi og þjónandi þjóðkirkja á Íslandi sem eys af lindum hins dýrmæta arfs trúar og menningar sem okkur hefur verið falinn. Við treystum á stjórnvöld og almenning að styðja þjóðkirkjuna í því! Þegar Kirkjuþing leggur á ráðin um það hvernig takmörkuðum fjármunum okkar verði best varið, þá verðum við að horfast í augu við hvernig við auðsýnum trúfesti í þessu þjóðfélagi sem við erum send til að þjóna, hvernig við erum trú í þeim iðuköstum umbreytinganna sem yfir ganga, trú í því smáa, trú yfir því litla. Það er ekki auðvelt. Því það að halda trú er ekki hið sama og að breytast ekki. Að vera staðfastur er ekki það sama og vera staðnaður. Lífið er breytingum undirorpið, allt er að breytast, nema Guð og miskunn hans sem er ný á hverjum morgni. Fyrir nær 39 árum vígðist ég til prestsþjónustu og játaðist ævitryggðum kirkju Krists og erindi hennar fyrir altari Dómkirkjunnar. Nú er þjónustutími minn senn á enda, en skipunartími minn í embætti biskups Íslands rennur út í lok næsta árs, eftir 15 ára þjónustu. Tel ég rétt að nýr biskup taki við næsta sumar. Því er þetta síðasta kirkju- þing sem ég mun sitja. Ég mun kveðja embætti mitt með þakklæti í huga fyrir það góða fólk sem með mér hefur fetað veginn og á vegi mínum hefur orðið á vettvangi kirkju og samfélags. Ég hef notið mikillar gæfu í starfi og þjónustu á samleið með slíku fólki. Ég bið því öllu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.