Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 39
39
1. mál kirkjuþings 2011
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs.
I. Inngangur.
Kirkjuráð var kjörið til fjögurra ára á kirkjuþingi 2010, en kosið var til kirkjuþings á
því ári. Í kirkjuráði sitja auk biskups Íslands, sem er forseti kirkjuráðs lögum sam-
kvæmt, Ásbjörn Jónsson, sr. Gunnlaugur Stefánsson, sr. Gísli Gunnarsson og Katrín
Ásgrímsdóttir. Varamenn eru Birna G. Konráðsdóttir, sr. Sigurður Árni Þórðarson, sr.
Solveig Lára Guðmundsdóttir og Svana Helen Björnsdóttir.
Á starfsárinu tók til starfa nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, en það ráðu-
neyti fer með málefni þjóðkirkjunnar. Hjalti Zóphóníasson lét af störfum sem
skrifstofustjóri í fyrrum dómsmála- og mannréttindaráðuneyti um síðustu áramót.
Þórunn Hafstein sem var settur ráðuneytisstjóri sama ráðuneytis lét einnig af störfum
ráðuneytisstjóra á sama tíma og gegnir nú embætti skrifstofustjóra í innanríkis-
ráðuneytinu. Hjalti hefur um langa hríð starfað að kirkjumálum í ráðuneytinu og verið
fulltrúi ráðherra á kirkjuþingi. Kirkjuráð færði þeim þakkir fyrir farsælt samstarf á
liðnum árum.
II. Starfsemi og skipulag Kirkjuráðs.
Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr.
78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni
kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem
lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu
kirkjuþings, prestastefnu, samtaka leikmanna, Alþingis og ráðherra. Kirkjuráð
undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið
flest þingmál og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð og ráðgjöf.
Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af
kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum
þjóðkirkjunnar. Kirkjuráð er stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og
úthlutar úr sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármála-
umsýslunni felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga
þeirra sjóða sem ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráð veitir sóknum
margháttaða ráðgjöf um fjármál.
Ákvörðunum kirkjulegra stjórnvalda má almennt skjóta til kirkjuráðs til endanlegrar
úrlausnar.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu
starfsári hefur ráðið haldið 14 fundi. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra,
Guðmundar Þórs Guðmundssonar, sitja að jafnaði fundi ráðsins Ragnhildur
Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjármála-
stjóri Biskupsstofu og sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, Framkvæmdastjóri
kirkjuráðs ritar fundargerðir. Forseti kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, situr fundi
kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar. Forsætisnefnd og formenn
nefnda kirkjuþings sátu kirkjuráðsfund þann 1. desember sl. þegar ræddar voru
ályktanir og samþykktir kirkjuþings 2010.