Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 49

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 49
49 og tveimur prestum. Sameiningin yrði í tveimur áföngum. Eiða- og Valla- nessprestaköll sameinist í eitt prestakall þann 30. nóvember 2011, en Seyðisfjarðar- og Valþjófsstaðaprestaköll sameinist hvort um sig samkvæmt framanskráðu við starfslok skipaðs sóknarprests hvors prestakalls. Tillaga þessi var send aðalsafnaðarfundum sókna prestakallanna sem veittu flestir umsögn um hana og á héraðsfundi. Vísað er til 4. máls kirkjuþings 2011 en umsagnirnar fylgja málinu. 38. mál. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997 um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing 2010 beindi þeim tilmælum til dómsmála- og mannréttindaráðherra að hann flytti frumvarp til laga um tímabundna breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar þess efnis að ef sóknarpresti eða presti er veitt lausn frá embætti, leyfi frá störfum eða hann forfallast af öðrum ástæðum geti biskup Íslands falið öðrum presti að gegna embættinu til allt að eins árs í senn. Frumvarpið hefur verið samþykkt sem lög frá Alþingi. Önnur verkefni kirkjuráðs. Hér verður gerð grein fyrir öðrum verkefnum kirkjuráðs á starfsárinu: Aukakirkjuþing 2011 Aukakirkjuþing 2011, þ.e. 45. kirkjuþing var haldið í Safnaðarheimili Grensásskirkju þriðjudaginn 14. júní sl. Boðað var til þess til að fjalla um tillögu til þingsályktunar um viðbrögð við niðurstöðum rannsóknarnefndar kirkjuþings. Rannsóknarnefndin afhenti forsætisnefnd kirkjuþings skýrsluna föstudaginn 10. júní sl. og kynnti hana síðan á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu sama dag. Skýrslan var birt á vef kirkjunnar og einnig send kirkjuþingsmönnum rafrænt. Kirkjuþingið samþykkti eftirfarandi þingsályktun. Aukakirkjuþing 2011 þakkar ítarlega og vel unna skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Telur kirkjuþing mikinn feng að skýrslu rannsóknarnefndar og ótvírætt að niðurstöður hennar eru mikilvægt veganesti til að bæta starfshætti og skipulag þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar eftir því sem nauðsynlegt er og byggja upp traust og trúnað innan kirkjunnar og gagnvart samfélaginu. Kirkjuþing harmar að viðbrögð og starfshættir þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar hafi ekki alltaf verið sem skyldi. Kirkjuþing biður þá þolendur kynferðisbrota sem hafa verið órétti beittir í samskiptum við þjóna kirkjunnar og lykilstofnanir hennar fyrirgefningar. Kirkjuþing ætlast til þess að á málum sem varða ofbeldi verði ávallt tekið af fullri virðingu, sanngirni og skilningi sem er í samhljómi við fagnaðarerindi kristinnar trúar. Kirkjuþing hvetur til þess að samstarfs verði leitað við málsaðila og fagfólk sem þekkingu hefur á því hvernig vinna skal úr kynferðisbrotamálum. Kirkjuþing minnir á að frá árinu 1998 hafa verið gerðar ýmsar mikilvægar úrbætur til að draga úr líkum á að kynferðisofbeldi eigi sér stað innan vébanda kirkjunnar og stuðla að því að þolendur fái viðeigandi stuðning. Þar varðar mestu stofnun fagráðs og starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar. Engu að síður er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.