Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 57
57
26. mál 2011. Tillaga til þingsályktunar um vímuvarnarstefnu þjóðkirkjunnar.
Nú er lögð fyrir kirkuþing endurskoðuð og breytt vímuvarnarstefna. Hlutverk og
markmið stefnunnar er að þjónandi kirkja veitir einstaklingum og fjölskyldum aðstoð,
hjálp og sálgæslu vegna erfiðleika, þjáningar og sorgar sem oft hljótast af áfengis-
neyslu og vímuefnanotkun.
Þjóðkirkjan vill auka fræðslu um vímuefnamál og efla forvarnir svo hún geti betur
komið að stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur. Styrkja skal færni vígðra þjóna og
annars starfsfólks sem sinnir einstaklingum og fjölskyldum.
28. mál 2011. Tillaga að starfsreglum um sóknarnefndir.
Hér eru lagðar fram nýjar starfsreglur um sóknarnefndir en núgildandi reglur eru að
stofni til frá 1998. Þær hafa tekið ýmsum breytingum frá gildistöku ekki hvað síst
hvað er varðar fjárstjórn sókna. Í ljósi þeirra mörgu breytinga sem orðið hafa á
reglunum frá setningu þeirra þykir rétt, til einföldunar og hagræðis að leggja til að
kirkjuþing setji nýjar starfsreglur er leysi hinar eldri af hólmi. Lagt er til að skilgreint
verði í starfsreglunum hverjar séu frumskyldur kirkjusóknar og að stjórnskipuleg
staða sóknarnefndar sé betur skilgreind en nú er. Lagt er til að skilgreint sé hugtakið
„leikmaður“, þ.e. að leikmaður sé sá sem ekki hefur tekið vígslu til prests eða djákna.
Vígður maður geti ekki tekið sæti í sóknarnefnd jafnvel þótt hann starfi ekki sem
djákni eða prestur.
29. mál 2011. Tillaga að reglum um Þingvallakirkjunefnd.
Tillaga þessi um skipun kirkjunefndar Þingvallakirkju, felur í sér að sérstaklega
skipuð nefnd fari með umsjón og eftirlit með kirkjunni og standi fyrir helgihaldi yfir
sumartímann. Nefndina skipi fulltrúar Þingvallanefndar, Suðurprófastsdæmis, íbúa
Þingvallasveitar auk vígslubiskups í Skálholti sem verði formaður nefndarinnar.
31. mál 2011. Tillaga að staðfestingu á breytingu á stofnskrá fyrir Stofnun dr.
Sigurbjörns Einarssonar.
Kirkjuráð leggur til breytingar á stofnskrá fyrir stofnunina á grundvelli tillagna
stjórnar stofnunar dr. Sigurbjörns Einarssonar. Meginatriði breytinganna felur í sér að
rofin eru þau tengsl stofnunarinnar við Kapellu ljóssins sem stefnt var að við
stofnsetningu. Kapella ljóssins er í eigu kirkjumálasjóðs en kirkjuþing hefur heimilað
sölu hennar að ósk kirkjuráðs.
Þá er lagt til að hlutverk stofnunarinnar breytist þannig að hún standi beint fyrir
fræðslu með ráðstefnuhaldi, námskeiðum og rannsóknum í stað þess að leggja til
aðstöðu til slíks eins og nú er.
32. mál 2011. Tillaga til þingsályktunar um samskiptastefnu þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð leggur nú fram tillögu að samskiptastefnu þjóðkirkjunnar. Kirkjuþing 2009
fól kirkjuráði að skipa starfshóp sem móta skyldi samskiptastefnu sem tæki til
grunngilda og markmiða samskiptastarfs kirkjunnar í sóknum, prófastsdæmum og á
landsvísu. Starfshópurinn setti sér að markmiði að draga fram forsendur
samskiptastarfs kirkjunnar og setja niður leiðir sem miða að því að styrkja samskipta-
menningu í þjóðkirkjunni og gera innri og ytri upplýsingamiðlun markvissari.
34. mál 2011. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um
rekstrarkostnað prestsembætta og vegna prófastsstarfa nr. 819/1998.
Vegna niðurskurðarkröfu ríkisins er hér lagt til að skorið verði niður í rekstrarkostnaði
prestsembætta. Rétt þykir að skerða fastan skrifstofukostnað enda er talið að það bitni