Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Side 71
71
Fyrir liggur tillaga um að Þingvallaprestakall sameinist Skálholts-
prestakalli, Suðurprófastsdæmi. Sparnaður vegna þessara ráðstafana árið
2012 er 3,3 m.kr.
Á árinu 2012 eru niðurlögð embætti héraðspresta og sérþjónustupresta sem
svara til tveggja og hálfs stöðugildis og sparast á ári 12,6 m.kr. vegna
launa og embættiskostnaðar.
3. Fyrir liggur tillaga um lækkun embættiskostnaðar presta sem nemur 10 m.kr.
árið 2012. Lækkun annars rekstrarkostnaðar er um 2 m.kr. Samtals sparnaður
vegna rekstrarkostnaðar presta og prófasta um 12 m.kr. árið 2012.
Sparnaður vegna ákvarðana árið 2009 og 2010
Sparnaður vegna námsleyfa verður um 22,6 m.kr. árið 2012 miðað við árið 2009.
Vegna samþykktar á kirkjuþingi 2010 um niðurlagningu héraðsprestsembættis sparast
8,5 m.kr. á árinu 2012 .
Vegna samþykktar á kirkjuþingi 2010 um niðurlagningu prófastsdæma sparast árið
2012 um 3 m.kr.
Samtals verður sparnaður árið 2012 vegna presta og prófasta að fjárhæð um 39,4
m.kr. en á móti hækka laun um 12,5 m.kr. og sértekjur dragast saman um 4,4 m.kr.
Heildarsparnaður vegna presta og prófasta milli áranna 2011 og 2012 miðað við
þessar forsendur er um 22,5 m.kr. eða 2%.
Sérframlög
Sérframlög lækka í heildina um 3% milli áranna 2011 og 2012 eða sem nemur 1
m.kr.:
Í fjárlagafrumvarpi 2012 er stofnkostnaðarframlag ríkisins til Skálholts 10,1 m.kr. og
lækkar þannig um 300 þús. kr. milli ára. Af framlaginu eru 6 m.kr. sjötta greiðsla sem
veitt er í átta ár vegna samnings við ríkið í tilefni af 950 ára afmæli biskupsstóls í
Skálholti.
Sérframlag ríkisins árið 2012 til Hallgrímskirkju vegna viðgerða á turni að fjárhæð
12,4 m.kr. er síðasta greiðsla af sex ára greiðsluloforði sem er samtals um 74,5 m.kr.
Auk þess eru veittar 3,3 m.kr. vegna annars stofnkostnaðar og er því heildarframlag
ríkisins til Hallgrímskirkju 15,7 m.kr. árið 2012 og lækkar því um 500 þús.kr. milli
áranna 2011 og 2012.
Framlag til Hóladómkirkju verður 4,4 m.kr. samkvæmt fjárlagafrumvarpi 2012 og
lækkar því um 100 þús.kr. Framlag til Dómkirkjunnar í Reykjavík verður 4,8 m.kr. og
lækkar um 100 þús.kr.