Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 105
105
undirbúning og framkvæmd kosningar á ábyrgð kjörstjórnar. Biskupsstofa lætur
kjörstjórn í té nauðsynlega aðstöðu og þjónustu svo kjörstjórn geti rækt starfa sinn.
17. gr.
Kjörstjórn ákveður hvenær kosning skuli fara fram og annast prentun kjörseðla. Á
kjörseðla skal prenta nöfn umsækjenda í stafrófsröð.
Kjörstjórn auglýsir hvenær og hvar kosning skuli fara fram og hverjir séu í kjöri.
Kjörstjórn er heimilt að ákveða að hafa fleiri en eina kjördeild ef aðstæður í
prestakalli þykja gefa tilefni til þess.
18. gr.
Kjörstjórn annast gerð kjörskrár í hverri sókn. Skal hún lögð fram til sýnis á
Biskupsstofu og hjá prófasti eigi síðar en þremur vikum fyrir kjördag. Einnig skal hún
birt á vef þjóðkirkjunnar.
Kjörskrá skal liggja frammi til sýnis hið minnsta í tvær vikur og skal kjörstjórn
auglýsa framlagninguna í Ríkisútvarpinu og hvar kjörskrá liggi frammi svo og í
prentuðum fjölmiðli.
19. gr.
Hver sá, sem kæra vill að einhvern vanti á kjörskrá eða sé ofaukið þar, þarf að hafa
afhent kjörstjórn kæru sína, ásamt rökum og gögnum máli sínu til stuðnings, eigi síðar
en tveimur vikum fyrir kjördag. Sé kæran um það að einhver sé á skrá tekinn sem ekki
hafi rétt til að standa þar skal kjörstjórn senda þeim sem yfir er kært eftirrit af
kærunni.
Aðfinnslum þeim við kjörskrána, sem fram eru komnar, skal kjörstjórn úrskurða í
síðasta lagi viku fyrir kjördag. Skal gefa þeim, er kæran varðar, kost á að tjá sig og
koma að gögnum áður en kæran er úrskurðuð.
20. gr.
Úrskurði kjörstjórnar má kæra til yfirkjörstjórnar þjóðkirkjunnar, sbr. starfsreglur um
kjör til kirkjuþings. Hún skal hafa úrskurðað fram komnar kærur degi fyrir kjördag.
Eftir þetta verður engin breyting gerð á kjörskránni.
21. gr.
Á kjörskrá skal taka þá sem voru í íslensku þjóðkirkjunni og eiga lögheimili í
prestakallinu þegar kjörskrá er lögð fram og hafa náð 18 ára aldri þegar kosning fer
fram.
22. gr.
Þeir sem staddir eru eða gera ráð fyrir að vera staddir utan sinnar sóknar þegar
kosning fer fram og af þeim sökum geta ekki sótt kjörfund hafa heimild til að greiða
atkvæði utan kjörfundar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá kjörstjórn og getur hún hafist þá er tvær
vikur eru til kjördags. Kjörstjórn er heimilt að fela prófasti eða öðrum starfsmönnum
þjóðkirkjunnar að annast á ábyrgð kjörstjórnar framkvæmd kosningar við utankjör-
fundaratkvæðagreiðslu.
Kjörstjórn auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fari fram.
Heimilt er að binda atkvæðagreiðslu við ákveðna daga og ákveðinn tíma á degi
hverjum, þó eigi skemur en klukkustund. Tilgreina skal í fundargerðabók hverjir
greiði atkvæði utan kjörfundar.