Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 120
120
22. mál kirkjuþings 2011
Flutt af biskupi Íslands
Samþykkt þannig að lokinni umfjöllun í allsherjarnefnd:
Þingsályktun um stefnu þjóðkirkjunnar um kristniboð.
Stefna þjóðkirkjunnar um kristniboð
Grundvöllur
Jesús sagði: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni.“
(Mark. 16.15). Biðjandi, boðandi og þjónandi kirkja er sendiför að boði hans.
Hugtakið „kristniboð“ er notað til að lýsa því verki sem Drottinn kallar kirkju sína að
vinna að boða orð hans, víðfrægja dáðir hans, vitna um hjálpræði hans, fræða um vilja
hans og þjóna að vilja hans heiminum, sköpunarverkinu og jarðarbörnum öllum til
heilla.
Markmið
Þjóðkirkjan í sveit og borg er hluti af þessari sendiför, þáttur í alheimssamfélagi
kristninnar. Hennar meginhlutverk er í nærsamfélaginu en hún ber líka skyldur og
ábyrgð gagnvart þeim stóra heimi sem Guð skapar og elskar og gaf son sinn til að
frelsa.
„Sóknin hlynni að samfélagi umhyggju og kærleika, láti sér annt um að vernda
mannslífið á ólíkum skeiðum þess, og bera þannig vitni um hina kristnu von og
kærleika með líknarþjónustu, svo og með aðild að hjálparstarfi og kristniboði
kirkjunnar“ (Samþykktir um innri mál kirkjunnar, II. kafli).
Þjóðkirkjan vinnur að því að söfnuðir þjóðkirkjunnar styrkist í kristniboðsköllun
sinni, finni sig hluta hinnar alþjóðlegu kirkju og minnist hlutverks síns í boðun og
útbreiðslu trúarinnar heima og heiman. Það verði gert með:
• Boðun: Að vitna um kærleika Guðs í Jesú Kristi
• Samtali: Að trú mæti trú í trausti og heilindum
• Þjónustu: Að þjóna náunganum með umhyggju og miskunnsemi
• Þróunarhjálp: Að leggja fjármuni fram til að bæta lífskjör fátækra, efla menntun
og styðja þau sem sinna þeim málefnum á akrinum
• Samfélagi: Að miðla með sér af náðargjöfum og efnislegum gæðum öðrum
söfnuðum, kirkjum, einstaklingum til blessunar með guðsþjónustu, bæn, uppörvun
og styrk.
Með bæn, boðun og þjónustu um land allt vinnur þjóðkirkjan að friði, skilningi milli
einstaklinga og þjóða, kynþátta og trúarbragða, og vill á þann hátt vekja og glæða
vitund fyrir köllun sérhvers kristins manns að stuðla að réttlæti og sáttargjörð í
heiminum.
Þjóðkirkjan lítur á kristniboðið sem málefni kirkjunnar allrar, hjartans mál og hugsjón
í sérhverjum söfnuði sínum.
Biðjandi, boðandi og þjónandi kirkja vinnur að því á vettvangi safnaða sinna að móta
og styrkja samfélag sem stuðlar að heimi sem er laus úr viðjum ranglætis og kúgunar,
þar sem konur og karlar njóta manngildis, virðingar, réttlætis, jafnræðis og frelsis til
að lifa lífi sínu í friði og sátt.
Þjóðkirkjan stuðlar með starfi sínu og þjónustu að heilbrigðu viðhorfi einstaklinga og
samfélags til þróunarhjálpar sem mótist af gagnkvæmni og heilindum hins trúa
ráðsmanns, þar sem kirkjur og hjálparsamtök, stjórnvöld og frjáls félagasamtök hafa
sínu hlutverki að gegna. Þar sem allir njóta jafnréttis sem ráðsmenn þess lífs og heims
sem Guð gefur.