Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 129
129
II. Staða sóknarnefnda
4. gr.
Sóknarnefnd starfar á grundvelli þjóðkirkjulaga, starfsreglna og samþykkta kirkju-
þings.
Sóknarnefnd er kosin á aðalsafnaðarfundi til fjögurra ára, starfar í umboði safnaðarins
og ber ábyrgð gagnvart honum.
Sóknarnefnd starfar við hlið sóknarprests og er í fyrirsvari fyrir sóknina gagnvart
stjórnvöldum, og einstökum mönnum og stofnunum.
III. Störf og starfshættir sóknarnefnda
Störf sóknarnefnda – almenn atriði
5. gr.
Sóknarnefnd annast rekstur og framkvæmdir á vegum sóknarinnar og styður
kirkjulega þjónustu í sókninni ásamt prestum og starfsmönnum hennar.
6. gr.
Helstu störf sóknarnefndar eru sem hér segir:
1. Hafa ásamt prestum og í samráði við annað starfsfólk safnaðarins, eftir því sem
við á, forgöngu um kirkjulegt starf á vegum sóknarinnar.
2. Fjárstjórn sóknarinnar.
3. Umsjón og gæsla eigna sóknarinnar.
4. Sjá til þess að viðunandi húsnæði og búnaður sé til guðsþjónustuhalds og annars
safnaðarstarfs í sókninni.
5. Að sjá til þess að skráðir kirkjugripir og minningamörk séu verndaðir skv.
ákvæðum þjóðminjalaga.
6. Ráða starfsfólk sóknar í samráði við sóknarprest.
7. Val fulltrúa í valnefnd prestakalls.
8. Önnur verkefni sem aðstæður í sókninni kunna að útheimta
Rekstur og fjármál
7. gr.
Sóknarnefnd skal í samráði við sóknarprest gera fjárhagsáætlun fyrir hvert almanaksár
og hafa þar m.a. hliðsjón af starfsáætlun sóknarprests, annarra presta og annarra
starfsmanna sóknarinnar. Fjárhagsáætlunin skal lögð fram á aðalsafnaðarfundi til
kynningar og afgreiðslu.
Óski kirkjuráð þess skal sóknarnefnd leggja fram fjárhagsáætlun sína fyrir kirkjuráð
a.m.k. viku fyrir aðalsafnaðarfund að jafnaði.
Sóknarnefnd, sóknarpresti og öðrum prestum ber síðan að sinna verkefnum sínum og
halda uppi starfsemi á grundvelli samþykktrar fjárhagsáætlunar.
8. gr.
Við ráðstöfun fjármagns sóknarinnar til skamms eða langs tíma skal ávallt gæta þess
að fjárskuldbindingar vegna framkvæmda komi sem minnst niður á almennu
kirkjustarfi. Eigi að ráðast í miklar fjárfestingar eins og smíði nýrrar kirkju, safnaðar-
heimilis eða hljóðfærakaup skal sóknarnefnd greina kirkjuráði skriflega frá áformum
sínum um framkvæmdir og fjármögnun.
Sóknarnefnd er hvorki heimilt að greiða laun vegna prestverka né styrkja það sem
fellur undir embættiskostnað presta og prófasta, sbr. starfsreglur um rekstrarkostnað
prestsembætta og prófastsdæma. Þó er sóknarnefnd heimilt að leggja prestum til