Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 132
132
Ráðningar starfsmanna o.fl.
21. gr.
Sóknarnefnd, í samráði við sóknarprest, ræður starfsmenn sóknarinnar.
22. gr.
Auglýsa skal laus störf hjá sókninni með tveggja vikna umsóknarfresti hið minnsta.
Auglýsing skal birtast í prentuðum fjölmiðli og á vef kirkjunnar
Í auglýsingu skal m.a. tiltekið:
a) hvernig ráðningarkjör eru
b) hvenær umsóknarfrestur rennur út
c) hvert umsóknir skuli sendar
d) að veitt sé heimild til að afla sakarvottorðs.
23. gr.
Ráðningarsamningur starfsmanna skal vera skriflegur og með gagnkvæmum þriggja
mánaða uppsagnarfresti, en mánaðar uppsagnarfresti á fyrstu þremur mánuðum í
starfi. Sóknarnefnd í samráði við sóknarprest semur starfslýsingu fyrir þessa
starfsmenn.
24. gr.
Óheimilt er að ráða til starfa hjá sókn einstakling sem kemur að starfi með börnum og
ungmennum undir 18 ára aldri, sem hlotið hefur refsidóm vegna brota á eftirtöldum
lagabálkum:
- barnaverndarlög nr. 80/2002
- kynferðisbrot skv. 22. kafla, önnur ofbeldisbrot skv. 23. kafla og brot gegn
frjálsræði manna skv. 24. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þó ekki
minniháttar líkamsmeiðingar samkvæmt 217. gr. almennra hegningarlaga.
- lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sem og 173. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940, þ.e. refsidóm síðustu fimm ár.
Ofangreint ákvæði nær einnig til sjálfboðaliða sem starfa með börnum og ung-
mennum undir 18 ára aldri hjá sókn. Sóknarnefnd skal óska eftir samþykki allra, sem
sækjast eftir starfi, launuðu, sjálfboðnu eða í verktöku, til þess að fá aðgang að
upplýsingum úr sakaskrá viðkomandi hvað varðar ofangreindar tegundir brota. Synji
umsækjandi um heimild er óheimilt að ráða hann til starfa.
Hafa ber hliðsjón af starfsreglum um djákna og organista við gerð ráðningarsamninga
við þá og starfslýsinga, svo og samþykktum stefnumálum kirkjuþings sem varða
starfssvið þeirra sérstaklega.
25. gr.
Ef upp kemur ágreiningur um störf starfsmanna innan sóknar, sem ekki tekst að leysa
þar á vettvangi, skal vísa málinu til prófasts.
IV. Annað
26. gr.
Komi fram skrifleg tillaga í söfnuði, um að embætti sóknarprests eða prests skuli
auglýst laust til umsóknar, á grundvelli 40. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, skal hún berast prófasti. Prófastur kynnir presti tillöguna.
Hann ræðir síðan við málsaðila og kannar möguleika á sáttum, ef því er að skipta.
Náist ekki sættir gerir prófastur sóknarnefnd viðvart og boðar hún til almenns
safnaðarfundar, þar sem tillagan er tekin til afgreiðslu. Boða skal safnaðarfundinn