Gerðir kirkjuþings - 01.01.2011, Page 146
146
Einarssonar og staðfestingar á reglum um Þingvallakirkju. Í fyrsta skipti í sögunni
voru allir formenn og varaformenn nefndanna konur og þær hafa allar skilað verki
sínu vel og örugglega þannig að mikill sómi er að. Fyrir það skulu þær hafa heila
þökk okkar hinna.
Flest eru þessi mál þýðingarmikil í starfi og stefnumörkun þjóðkirkjunnar. Þau eru öll
borin fram af góðum huga og vilja til umbóta. Sum þeirra lúta að hinni veraldlegu
ásýnd sem á hverjum tíma verður að svara kalli samtíma síns og þeim veruleika sem
við lifum í. Önnur vísa fram á veg til þátttöku kirkjunnar í samfélaginu og þeirrar
trúarlegu og siðferðilegu forystu sem kirkjunni ber að veita til að geta risið undir því
heiti í vitund almennings að vera þjóðkirkja, kirkja sem er öllum opin og alltaf til
reiðu og til þess búin að þjóna og líkna, boða fagnaðarerindi Krists bæði í orði og ekki
síður í verki, smáu verki og stóru. Þannig kirkja hlýtur að eiga brýnt erindi við
samtíma sinn og þar liggur ábyrgð kirkjuþings að treysta þær undirstöður.
Í upphafi þessa kirkjuþings greindi biskup Íslands frá því að hann myndi láta af
embætti á sumri komanda. Og nú í lok þingsins hefur komið fram sams konar yfir-
lýsing frá vígslubiskupi á Hólum. Þetta eru mikil straumhvörf í kirkjunni og það er
sannarlega mikil eftirsjá að þessum tveimur öðlingum þótt þeir muni engan veginn
hverfa úr vitund og veruleika kirkjunnar. Það er ekki aðeins von mín heldur miklu
fremur vissa að þeir muni áfram verða öflugir leiðtogar trúarinnar og vegvísar kirkju
og kristni hér á landi um langa hríð. Þótt ég vilji ekki líta svo á að upp sé runnin
kveðjustund hlýt ég engu að síður að færa þeim báðum einlægar þakkir kirkjuþings
fyrir mikið eljuverk og framúrskarandi störf í þágu þingsins um árabil og ekki síður
gjöfula samveru og samvistir í önnum og erli margra þinga. Við óskum þeim báðum
og fjölskyldum þeirra gæfu og Guðs blessunar um ókomna tíð.
Ég vil að lokum færa kirkjuþingi innilegustu þakkir fyrir góðar samverustundir og
samvinnu, málefnalegar umræður, ótrúlega elju og vönduð vinnubrögð. Ég þakka
einnig og ekki síður starfsfólki þingsins fyrir frábærlega vel unnin störf, bæði hér á
þinginu og í aðdraganda þess. Ég þakka húsráðendum hér, sóknarpresti og starfsfólki
Grensáskirkju hlýju og velvild í garð kirkjuþings fyrr og síðar. Í þessari kirkjulegu
mannlífsmiðstöð sem hér stendur er Fjölskylduþjónusta og Hjálparstarf kirkjunnar
einnig til húsa. Öllu því góða fólki sem þar starfar færi ég fyrir hönd kirkjuþings bæði
þakkir fyrir ómetanleg störf og elju og fyrirbænir um styrk í því mannræktar- og
hjálparstarfi sem yfir stendur í hringiðu efnahagsþrenginga og upplausnar og
erfiðleika alltof margra heimila í landinu.
Við hófum þetta kirkjuþing með því að hlýða á unaðslega tónlist. Þar var meðal
annars sunginn sálmurinn Mikli drottinn, dýrð sé þér eftir séra Kristján Val Ingólfsson
vígslubiskup í Skálholti. Það fer vel á því að enda þetta þing með öðrum texta
víglubiskupsins um þann frið sem ég vona að fylgi öllum kirkjuþingsmönnum og
starfsfólki þingsins heim á leið og á leiðarenda:
Þér friður af jörðu fylgi nú
og friðurinn himni frá.
Og lækjanna friður sé með þér
og friður um höfin blá.
Djúp kyrrð komi yfir þig.
Guðs frið gefi Drottinn þér.
Kirkjuþingi 2011 er slitið.