Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.04.2000, Síða 82
LEIKRIT
SHASHKIN (stendur á miðju sviði). Konan mín er hlaupin frá mér.
Hvað get ég gert að því? Annars kemur það út á eitt, fyrst hún er
farin þá fæ ég hana ekki heim aftur. Maður verður að vera heim-
spekingur og taka öllu spaklega sem fyrir kemur. Sæll er sá hefur
vald á viskunni. Hann Kúrov til dæmis veit ekki hvað viska er, en
hana hefi ég. Tvisvar hefi ég lesið bók í almenningsbókasafninu. Þar
var svo mikið gáfulega skrifað um alla hluti.
Ég hefi áhuga á öllu, meira að segja tungumálum. Ég kann að
telja á frönsku og veit hvað magi er á þýsku. Der Magen. Einmitt!
Kozlov listamaður er meira að segja vinur minn. Við drekkum
saman. En Kúrov? Hann kann ekki einu sinni á klukku. Hann snýtir
sér í fingurna, étur fisk með gaffli, sefur í skónum, burstar ekki í sér
tennurnar... iss! Sannkallaður sveitalubbi. Ef maður sýnir sig með
honum í sæmilegum félagsskap þá er manni hent út, já og með bölvi
og klúryrðum. Ef þú þykist vera menntaður maður, er þá sagt, vertu
þá ekki að flækjast um með einhverjum sveitaruddaskíthæl.
Enginn skal snúa á mig. Ef mér er sýndur greifi, nú þá tala ég við
greifa eins og vera ber. Ef þið komið með barón, þá tala ég við barón.
Menn geta ekki einu sinni áttað sig á því strax hver ég er sjálfur.
Að vísu er ég lélegur í þýsku enda þótt ég viti að magi er der
Magen. En ef einhver segir við mig: Der Magen findel mún, þá veit
ég ekki hvað það þýðir. En hann Kúrov, hann þekkir ekki einu sinni
der Magen. Og svo strauk hún með þessum afglapa! Það er þá þetta
sem hún vill! Hún telur mig ekki vera karlmann, hugsið ykkur. „Þú
talar eins og kerling" segir hún. En ég er ekki með kvenmannsrödd
heldur barnsrödd! Hvella barnsrödd og ekkert kerlingarpíp. Hún er
svo vitlaus! Hvað vill hún vera að dandalast með þessum Kúrov?
Kozlov málari segir að það sé alveg upplagt að mála af mér mynd.
80