Frón - 01.06.1944, Qupperneq 4
66
Jón Helgason
manna benda til aS sá hafi einnig veriS framburSur forfeSra vorra.
»Skald á búS til kalda« kvaS Kormákur eitt sinn í vosbúS er fjöll
voru alhvít af snjó. Og HallfreSur vandræSaskáld lýkur svo vísu
er hann orti meiddur í sjóvolki:
muna úrþvegin eira
aldan sínu skaldi.
Pess hefur veriS getiS til, aS orSiS skáld væri í ætt viS þýzku
sögnina schelten, sem merkir aS atyrSa eSa ávíta. MeS þessu
væri gert ráS fyrir aS flim og kerskni, ádeila og níS, hefSi veriS
svo mikill þáttur í verkum elztu skálda aS þau hefSu dregiS
nafn af því, og er ekki fyrir aS synja aS í þessu geti veriS tilhæfa.
Skáldum hefur eflaust á öllum öldum hætt til aS beita þeim
vopnum er þeim voru tiltækust, ef þau áttu hendur sínar eSa
málstaS aS verja. AS vísu bendir þaS lítiS sem oss er hermt frá
þeim skáldum er næst eru forneskju í þá átt aS þeim hafi veriS
tamara lof en last, en þar er þekking vor öll í molum og bilar
alveg er lengra dregur aftur. Hugvitssamasti fulltrúi norrænnar
málfræSi, prófessor Magnús Olsen í Osló, lék sér aS því á unga
aldri aS setja fram mjög frumlega og nýstárlega skýring orSsins
skáld. PaS er eitt merkilegt um þetta orS aS þaS er hvorugkyns
(hvorki Svíar né Danir hafa fellt sig viS þetta; báSar þessar
þjóSir hafa tekiS orSiS upp úr fornmálinu, en breytt kyninu:
en skald, en skjald). Magnús Olsen lét sér nú hugkvæmast aS
skáld væri tilorSiS úr skáald (eins og fá, ná úr fáa, náa) og
geymdi í sér hiS hvorugkennda viSskeyti -ald. önnur orS meS
þessu viSskeyti eru t. d. folald, hrúgald, rekald; stundum kemur
þaS fyrir í orSum sem merkja áhöld, svo sem hafald (í vef, sbr.
sögnina hefja), kerald, skotald (skúffa, þaS sem skotiS er inn
eSa út). En ská- tengir hann viS rót sem þýSir aS skoSa eSa
virSa fyrir sér (kunn m. a. úr þýzku sögninni schauen), og merki
þá ská-ald upphaflega áhald til aS skoSa eSa athuga meS,
skyggnigagn. MeSal frumstæSra þjóSa hvílir sérstök helgi á
athöfnum skáldsins, skáld og prestur eru stundum eitt, bundiS
mál skáldsins er taliS véfrétt úr æSri heimum, skáldiS þykir
nátengdara goSum og máttarvöldum tilverunnar en aSrir menn.
Af þessum rökum, hugSi Magnús Olsen, hefSi skáldiS dregiS
nafn, þaS hafi veriS sjónargagn, fyrir orS þess og tilstilli hafi
menn þótzt geta ráSiS í hvaS hin máttugu regin sem heiminum
stjórna ætluSust fyrir. ViS ættum eftir þessu aS gera ráS fyrir,