Frón - 01.06.1944, Síða 23

Frón - 01.06.1944, Síða 23
AS yrkja á íslenzku 85 hátta útlendir að uppruna, en hafa þó tekiS á sig slíkar myndir að Iíklegt þykir að rímglaðir íslendingar eigi hlut í þeim: Eg veit eina baugalínu, af henni tendrast vann eldheit ást í hjarta mínu, allur svo eg brann, bjartleit burtu hvarf úr rann. Nú er ei hugurinn heima, því hana ei öðlast kann. Það er minn vandi, þó eg standi í þessum skugga, mœrðar blandi af minnis landi mun eg brugga, sérdeilis fyrir þig, sæmdin ungra fljóða, lukkuna fáðu, laukaskorðin rjóða. Áður á tíðum var tízka hjá lýðum, svo tryggorðir kenndu: frá barndómi blíðum með fremdarhag fríðum að frægðum sér vendu; af strengboga stríðum í Hárs elda hríðum þeir herskeytin sendu, eða á mar víðum skervallar skíðum til skemmtunar renndu. Krúsar lögur kveikir bögur og kvæðin smá, dæmisögur og glettur grá; skúmin fögur fótaskjögur færa margan á inter poculá. Hættir eins og þessir hafa nú fengið á sig elliblæ, og íslenzkum skáldum leika þeir ekki Iengur á tungu. En þar fyrir er okkur ekki þess varnað að heyra þokka þeirra. Engin nálæg þjóð og líkast til engin þjóð í Evrópu hefur á liðnum öldum lagt aðra eins ást á dýran kveðskap og íslendingar. I3eir hafa ekki þreytzt á að finna upp alls konar ný tilbrigði og skemmta sér við þau sem fyrir voru: Helztar tel eg þær harmabætr, hugsa eg um þegar lengjast nætr, hversu að miðjungs mjöðurinn sætr marga vega í kvæðum lætr. Islenzkir rithöfundar fyrr á öldum fara ekki dult með að þeim finnst til um ljóðagerð þjóðar sinnar. T. d. kemst Guðbrandur biskup svo að orði í formála sálmabókarinnar 1589, að forfeður

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.