Frón - 01.06.1944, Page 24
86
Jón Helgason
vorir hafi »elskað og iðkað þá málsnilld og það skáldskaparlag
sem norrænu máli hæfir, allra mest í kvæðum og vísum, svo
sem opinbert er að þetta norrænu mál hefur forprís fram yfir
mörg önnur tungumál, það vér af vitum, í skáldskapar málsnilld
og kvæðahætti, hvað sannlega er ein guðs gáfa þessu norræna
máli veitt og gefin«. Fáum árum síðar lýsir hinn ónafngreindi
íslandslýsingarhöfundur, sem haldið er að sé Sigurður Stefánsson,
frumdráttum íslenzkrar braglistar í bók ætlaðri útlendingum og
heldur fram fjölskrúði hennar og yfirburðum. Hjá honum mun
orðið leirburður um klaufalegan skáldskap fyrst bókfest, og hann
tilgreinir fyrstur manna latneska visu samsetta að íslenzkum
reglum; sumir prestar hafa síðar stytt sér dægur með því að búa
til fleiri slíkar. Nálægt 1730 segir Grunnavíkur-Jón að íslenzka
eiga sér snillilegri ljóðagerð en aðrar tungur, enda þyki íslending-
um oft lítið til erlends kveðskapar koma.
Hitt er þó sönnu nær að íslendingum hefur löngum hætt til
að gera braglist sina allt of dýra. Mikið rím og þétt var oft
helzta markmiðið, málið þrautpínt til alls konar hljóma, en efni
og vit varð að hörfa. Ef engin þjóð í Norður-Evrópu hefur dekrað
eins við háttu sína og við, hefur heldur engin ort jafnmikið af
bulli og endileysu, af því að hættirnir voru svo dýrir að þeim
varð ekki fullnægt nema með því að fylla þá innantómum gjall-
anda eða misþyrma málinu:
Mállýzkan er mikið röng,
maðurinn hóf of dýran söng.
Hér er til sýnis eitt erindi úr vikivakakvæði frá 17. öld. Mér
kemur ekki til hugar að neita að þetta kvæði hefur sína fegurð;
ég hef oft lesið það hátt fyrir sjálfan mig, stundum jafnvel fyrir
aðra. En ekki virðist mér það vel fallið að lesa í hljóði aðallega
í því skyni að njóta efnisins:
Fjalars Kjalars flæða súðir
fengu lengi öngvan byr,
um sinnu ranna síðar búðir
sízt þær hristi gustur fyr,
drengir strengjum ráða rúðir,
renna nenna senn á sjá.
Út ertu við æginn blá ...
Hestar rasta reiða flúðir
fyrir rjóða tróðu flóða glóða löngum
rýrum stýra róðri lúðir,
... en eg er setztur að dröngum.