Frón - 01.06.1944, Síða 29

Frón - 01.06.1944, Síða 29
Að yrkja á íslenzku 91 Pá gerir rímið sínar kröfur engu síður en stuðlarnir. Einnig það heimtar mikilvæg orð sér til handa, eigi það ekki að vera máttlaust og ónýtt og verra en ekki. Og þá má segja að fari að þrengjast um fyrir veslings skáldinu. Pó að hann ráðist ekki í meira en setja saman eina ferskeytlu, þarf hann í tvígang að finna þrjú orð, helzt veigamikil, er beri stuðla, og fjögur orð, ekki síður veigamikil, er rími tvö og tvö. öllu þessu verður að halda innan þeirra skefja sem vísuformið setur. Engu orði má vera ofaukið og engu of fátt. Skáldið verður að gera sér allt far um að láta líta svo út sem sú vísa er hann kann að hafa legið yfir dögum saman hafi orðið til fyrirhafnarlaust, eins og af sjálfu sér. Pað er alkunnugt að fjöldi vísna hefur þann annmarka að allt er sagt í síöara helmingnum, en hinn fyrri verÖur eintóm eyðufylling. Frægt er þetta erindi: Mín er þetta meining full, maður, vel það heyr: Heldur leirugt gef mér gull en gylltan leir. Barnamaðurinn í kotinu skýrir frá högum sínum: »Ég á ekki neitt til neins nema börn og skuldir«. En fyrri parturinn verður miklu síðri: »Ekki bíður svarið Sveins, sízt eru hagir duldir«. — DrykkjumaÖurinn lýsir hvernig komið sé fyrir sér: »Flöskur standa framan í mér fyrir löngu tómar«. Svo staglar hann framan við: »Von er andinn vikni hér verði þröngir gómar«. — Lang- ferÖamaÖurinn horfir með ógn og kvíða til fjallvegarins sem hann á í vændum aS næturlagi: »KvíSi ég fyrir Kaldadal, kvölda tekur núna«. En úr þessu broti hefur aldrei orSið heil vísa; þaS sem skeytt hefur verið framan viS: »Herra guS í himnasal, haltu mér viS trúna«, er eins og hver önnur dauðans vandræði. Og þannig mætti telja endalaust. Nokkur galli þykir sumum það á vísu ef rökrétt samband vantar milli upphafs og niðurlags. Eftirfarandi heillaósk hefur veriS birt í ljóSabók sem lofuð var í blöSunum: Ætti eg ráð á alls kyns gæðum, eins eg bæði af klökku hjarta: Gefi ykkur guð á hæðum gleði mikla og framtíð bjarta. Ef skáldiö ætti ráS á alls kyns gæSum, væri honum innan handar aS ráSstafa þeim sjálfur, og óþörf krókaleiS aS biSja guS að

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.