Frón - 01.06.1944, Qupperneq 29
Að yrkja á íslenzku
91
Pá gerir rímið sínar kröfur engu síður en stuðlarnir. Einnig
það heimtar mikilvæg orð sér til handa, eigi það ekki að vera
máttlaust og ónýtt og verra en ekki. Og þá má segja að fari
að þrengjast um fyrir veslings skáldinu. Pó að hann ráðist ekki
í meira en setja saman eina ferskeytlu, þarf hann í tvígang að
finna þrjú orð, helzt veigamikil, er beri stuðla, og fjögur orð,
ekki síður veigamikil, er rími tvö og tvö. öllu þessu verður að
halda innan þeirra skefja sem vísuformið setur. Engu orði má
vera ofaukið og engu of fátt. Skáldið verður að gera sér allt far
um að láta líta svo út sem sú vísa er hann kann að hafa legið
yfir dögum saman hafi orðið til fyrirhafnarlaust, eins og af
sjálfu sér.
Pað er alkunnugt að fjöldi vísna hefur þann annmarka að
allt er sagt í síöara helmingnum, en hinn fyrri verÖur eintóm
eyðufylling. Frægt er þetta erindi:
Mín er þetta meining full,
maður, vel það heyr:
Heldur leirugt gef mér gull
en gylltan leir.
Barnamaðurinn í kotinu skýrir frá högum sínum: »Ég á ekki
neitt til neins nema börn og skuldir«. En fyrri parturinn verður
miklu síðri: »Ekki bíður svarið Sveins, sízt eru hagir duldir«.
— DrykkjumaÖurinn lýsir hvernig komið sé fyrir sér: »Flöskur
standa framan í mér fyrir löngu tómar«. Svo staglar hann framan
við: »Von er andinn vikni hér verði þröngir gómar«. — Lang-
ferÖamaÖurinn horfir með ógn og kvíða til fjallvegarins sem hann
á í vændum aS næturlagi: »KvíSi ég fyrir Kaldadal, kvölda tekur
núna«. En úr þessu broti hefur aldrei orSið heil vísa; þaS sem
skeytt hefur verið framan viS: »Herra guS í himnasal, haltu mér
viS trúna«, er eins og hver önnur dauðans vandræði. Og þannig
mætti telja endalaust.
Nokkur galli þykir sumum það á vísu ef rökrétt samband
vantar milli upphafs og niðurlags. Eftirfarandi heillaósk hefur
veriS birt í ljóSabók sem lofuð var í blöSunum:
Ætti eg ráð á alls kyns gæðum,
eins eg bæði af klökku hjarta:
Gefi ykkur guð á hæðum
gleði mikla og framtíð bjarta.
Ef skáldiö ætti ráS á alls kyns gæSum, væri honum innan handar
aS ráSstafa þeim sjálfur, og óþörf krókaleiS aS biSja guS að