Frón - 01.06.1944, Side 49
»Reikult er rótlaust þangið'
111
af því aS þeir séu minni menn en hinir, heldur sökum þess a5
þeir eru opnari og næmari fyrir áhrifum, einnig áhrifum síns
eigin rótleysis. Peir eru eins og þangiS í kvæSi Jóhanns Sigur-
jónssonar, sem vitnaS var til í upphafi þessa máls:
Reikult er rótlaust þangið,
rekst það um víðan sjá,
straumar og votir vindar
velkja því til og frá.
Fuglar flugu yfir hafið
með fögnuði og vængjagný,
— hurfu út í himinblámann
hratt eins og vindlétt ský.
Þangið sem horfði á hópinn
var hnípið allan þann dag. —
Bylgjan sem bar það uppi
var blóðug um sólarlag.
AuSvitaS er veilum í skapgerS manna um aS kenna, þegar
þá dregur svo langt aS þeir stara sig blinda í eimyrju hugrenninga
sinna og lífsleiSa og berast svo meS straumnum eins og rótlaust
þangiS. En hinu má ekki gleyma aS ýmsir sleppa hjá skipbroti
á þessum furSuströndum af því aS þeir æSa áfram gegnum lífiS
án þess nokkuru sinni aS nema staSar og litast um, og deyja
jafnvel án þess aS fá nokkuru sinni séS út yfir ys og þys daglegs
lífs.
Ólíku auSugra er líf þeirra manna sem hafa þjáSst af bölsýni
og leiSa en boriS gæfu til aS snúa sínum óljósu tregakenndum
inn á frjósamari slóSir. Peir vaxa viS þá glímu, öSlast aukinn
þrótt til aS taka á vandamálum lífsins, hvort heldur þeir fara
aS eins og skáldiS sem skrifar sig út úr örSugleikum sínum (þaS
sem maSur skrifar um er aldrei verulega hættulegt lengur), eSa
þeir hugsa sig fram úr þeim á annan hátt. Þeim gefur nýja útsýn
yfir mannleg örlög, og kuldinn umhverfis þá breytist í yl. Fram
úr sviSa þögulla einverustunda geta sprottiS lindir sem svala
hug og hjarta. Pær geta orSiS dýrmæt lífsreynsla og gert auSveld-
ari þá erfiSu list aS lifa hamingjusamlega.