Frón - 01.06.1944, Síða 50
Grannar vorir í vestri
Eftir Jón Helgason.
ÞaS er gamalt mál aS í einu sjáist Snæfellsjökull á íslandi og
Hvítserkur á Grænlandi, séu menn staddir í góSu skyggni
miSja vegu milli landa. En næsta lítil kynni höfum viS haft af
grönnum vorum til þeirrar handar, og liggja til þess ýms rök.
Sú þjóS sem nú byggir Grænland er okkur alveg óskyld og
talar tungu sem er gjörólík vorri. LandiS snýr viS okkur baki,
okkar megin mestmegnis ísar og jöklar, háskar og öræfi, en
hafnirnar og vistarverur mannfólksins nálega allar hinum megin.
En mestu skiptir þaS, aS landinu hefur veriS haldiS lokuSu um
langan aldur og öll mök viS þarlandsmenn óheimil.
Samt vekur orSiS Grænland jafnan einkennilegan klökkva í
hverju íslenzku brjósti...
Nú þegar ferSir eru tepptar um heiminn og hver verSur aS
hírast þar sem kominn er, reyna öll fráskila þjóSabrot eftir
föngum aS safnast um sameiginlegt ætterni og minningar. Petta
á einnig viS um granna vora í vestri. Grænlendingar í Danmörku
stofnuSu fyrsta sinni meS sér félagsskap í apríImánuSi 1939.
Félagar eru nú samtals á annaS hundraS, en margir þeirra eru
Danir sem á einhvern hátt eru eSa hafa veriS tengdir Grænlandi.
Grænlenzkir félagsmenn eru um 50, og þeir einir hafa atkvæSis-
rétt á fundum. FélagiS heldur úti blaSi sem nefnist Kalátdlit
(þaS þýSir Grænlendingar) og sent er öllum félagsmönnum
ókeypis einu sinni á mánuSi. BlaSiS nýtur stuSnings ýmissa
danskra manna og fær á þann hátt talsvert af auglýsingum, svo
aS þaS getur boriS sig. PaS er prentaS tvídálkaS, annar dálkur
á grænlenzku, hinn á dönsku, enda ekki ætlaS Grænlendingum
einum.
LaS er aS ýmsu leyti fróSlegt aS kynnast þessu blaSi, þó aS
sá er þetta ritar verSi aS láta sér nægja danska dálkinn og þykist
skilja á öllu aS meira væri variS í aS vera læs á hinn. í því eru
fréttir bæSi aS heiman og af Grænlendingum í Danmörku,
frásagnir um fundi félagsins og athafnir, eftirmæli látinna manna,
fróSleiksgreinir og hugvekjur, jafnvel smásögur. En ljóSasmiSir
virSast hérlendir Grænlendingar litlir vera. Félag þeirra hefur
bæSi efnt til umræSufunda og skemmtana, og í einu atriSi aS