Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Þegar ekið er til og frá borginni á
Vesturlandsvegi er farið um hvert
hringtorgið á fætur öðru og akst-
urinn tekur sinn tíma. Ökumenn
margir hverjir horfa út á sundin blá
og hugsa með sér: Hvenær kemur
eiginlega þessi Sundabraut?
Staðan á þeim áformum er sú að
ökumenn verða að bíða enn um sinn
í allnokkur ár. Engar alvarlegar
viðræður hafa átt sér stað milli rík-
is og borgar, þrátt fyrir fögur fyrir-
heit og ótal ályktanir og bókanir
gegnum tíðina. Samkvæmt upplýs-
ingum úr innanríkisráðuneytinu er
biðstaða í málinu og ekki horfur á
að nokkuð gerist á næstu mánuð-
um.
Fyrst í skipulag árið 1984
Rúm 30 ár eru síðan Sundabraut
fór fyrst á skipulagsáætlun, þegar
hún var sett í aðalskipulag Reykja-
víkur árið 1984. Síðan þá hefur
framkvæmdin nokkrum sinnum
komið til tals og skýrslur verið unn-
ar af hálfu Vegagerðarinnar og
Reykjavíkurborgar.
Ekki verður öll sagan rakin hér
en á vormánuðum 2004 var gefin út
matsskýrsla. Í nóvember sama ár
felldi Skipulagsstofnun úrskurð
sinn en þar var fallist á alla valkosti
nema þann að leggja Sundabraut á
fyllingu fyrir Gufuneshöfðann. Um-
hverfisráðuneytið staðfesti síðan úr-
skurð Skipulagsstofnunar í nóvem-
ber 2005, með ákveðnum skilyrðum.
Í framhaldinu var farið í vinnu við
matsskýrslu fyrir 1. áfanga Sunda-
brautar og hún gefin út í mars árið
2008. Þar var kynntur nýr valkost-
ur; að leggja brautina í göng fyrsta
kaflann úr borginni, Sundagöng,
eða allt frá Laugarnesi í vestri að
Gufunesi í austri með því að þvera
Kleppsvík. Áætlaður heildarkostn-
aður Sundabrautar, samkvæmt
þessari matsskýrslu, var um 24
milljarðar króna, sem í dag leggst á
tæplega 36 milljarða að teknu tilliti
til verðlagsþróunar.
Ýtt til hliðar eftir hrun
Tveimur mánuðum áður hafði
borgarráð Reykjavíkur samþykkt
að Sundabraut yrði lögð í göngum
frá Gufunesi í Laugarnes, með fyr-
irvara um niðurstöðu umhverfis-
mats. Í bígerð var að ráðast í hönn-
un og framkvæmdir við 1. áfanga,
sem átti að taka 5-6 ár, en síðan
kom bankahrunið um haustið 2008
og Sundabrautinni var þá ýtt til
hliðar. Hún var, og er, áfram inni í
aðalskipulagi Reykjavíkur til ársins
2040.
Ekki jukust líkurnar árið 2012,
um að framkvæmdin færi í gang.
Þá gerðu ríki og borg með sér sam-
komulag, þar sem gengið var út frá
því að engar vegaframkvæmdir
yrðu í Reykjavík næstu tíu árin,
gegn 720 milljóna framlagi til al-
menningssamgangna á höfuðborg-
arsvæðinu. Í samningnum var
ákvæði um að endurskoða fram-
kvæmdastoppið á tveggja ára fresti.
Málið var tekið upp í borgar-
stjórn og borgarráði í október 2013.
Þá lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins fram tillögu um að hafn-
ar yrðu viðræður við ríkið um fram-
tíð Sundabrautar og/eða
Sundaganga. Markmið með viðræð-
unum yrði að kostnaðargreina verk-
efnið, vinna arðsemismat, finna leið-
ir til fjármögnunar, gera
áfangaskiptingu og tímasetja fram-
kvæmdina. „Arðsemismat taki tillit
til þess að með Sundabraut fæst
tenging við stór svæði innan borg-
armarkanna sem lítið er verið að
nýta (Geldinganes og Álfsnes) og
sem verða þróunarsvæði til upp-
byggingar með vegtengingu við
önnur svæði borgarinnar,“ sagði
m.a. í tillögu borgarfulltrúanna.
Erindið ítrekað
Tillögunni var vísað til um-
hverfis- og skipulagsráðs en
virðist hafa dagað uppi þar.
Júlíus Vífill Ingvarsson borg-
arfulltrúi ítrekaði erindið í
umhverfis- og skipulagsráði
en fékk ekki svör. Hyggst
hann taka málið upp að
nýju.
Engar alvöruviðræður
fóru því af stað en í árs-
byrjun 2014 tilkynnti þáverandi
innanríkisráðherra, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, um starfshóp um
samgönguverkefni sem gætu hent-
að sem fjárfestingaverkefni einka-
aðila í samstarfi við ríkið. Þar var
Sundabraut tekin sem dæmi um
slíkt verkefni í einkaframkvæmd.
Sundabrautin hefur margsinnis ver-
ið til umræðu á Alþingi, síðast í
haust í tengslum við fjárlögin fyrir
2016. Um svipað leyti og Hanna
Birna skipaði starfshópinn var lögð
fram þingsályktunartillaga á Al-
þingi, frá fjórum þingmönnum
Framsóknar, um að framkvæmdin
yrði að nýju tekin inn á samgöngu-
áætlun. Tillagan var ekki afgreidd
en samkvæmt henni gera umferð-
arspár ráð fyrir að 25-30 þúsund
bílar myndu fara um Sundabraut á
sólarhring árið 2030. Til saman-
burðar var nefnt að 5.000 bílar færu
um Hvalfjarðargöng á sólarhring,
1.000 um Héðinsfjarðargöng og að
1.200 bílar myndu fara daglega um
Vaðlaheiðargöng, þegar þau yrðu
opnuð. Töldu þingmennirnir þetta
benda til góðrar nýtingar og arð-
semi Sundabrautar.
Önnur þingsályktunartillaga um
svipað efni var sett fram í haust af
tveimur þingmönnum Framsókn-
arflokksins og einum frá Pírötum.
Er innanríkisráðherra skv. tillög-
unni ætlað að hefja viðræður við
sveitarfélög og Vegagerðina um
nauðsynlegar vegabætur á Vest-
urlandsvegi. Þar er Sundabraut
nefnd til sögunnar.
Ráðherra jákvæður
Á fjárlögum 2016 er enga fjár-
hæð að finna til Sundabrautar,
heldur eingöngu talað um að skoða
möguleika á einkaframkvæmd. Í 1.
umræðu um fjárlögin beindi Birgir
Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, þeirri spurn-
ingu til Ólafar Nordal innanríkis-
ráðherra hvort hún ætlaði að taka
Sundabraut fyrir að nýju og hvað
henni fyndist um möguleikann á
einkaframkvæmd.
Ólöf svaraði því til að hún hefði í
langan tíma verið áhugasöm um
gerð Sundabrautar en ná þyrfti ein-
hverri lendingu í viðræðum ríkis og
borgar um framkvæmdina.
„Ég er eindregið þeirrar skoð-
unar að slík framkvæmd eigi að
vera einkaframkvæmd og raunar
tel að við eigum að líta til einka-
framkvæmdar í samgöngukerfinu,“
sagði Ólöf m.a. í svari sínu til Birg-
is.
Skortir peninga
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir í samstali við Morg-
unblaðið að borgin hafi í þessu til-
felli alltaf verið opin fyrir einka-
framkvæmd.
„Sundabraut er bæði í nýsam-
þykktu svæðisskipulagi fyrir höfuð-
borgarsvæðið og aðalskipulagi
Reykjavíkur. Það hefur verið stefna
borgarinnar frá 2008 að hún eigi að
vera í ytri leið í göngum. Ekki hef-
ur hins vegar hreyfst mikið í málinu
undanfarinn áratug heldur má
segja að það bíði á borði innanrík-
isráðherra. Þar held ég að skorti
ekki vilja heldur peninga, því veg-
gjöld muni aldrei standa undir
nema hluta framkvæmdarinnar,“
segir Dagur.
Í tengslum við umræðu um
einkaframkvæmd á Sundabraut
hafa lífeyrissjóðirnir verið nefndir á
nafn sem mögulegir fjárfestar. Þor-
björn Guðmundsson, formaður
Landssamtaka lífeyrissjóða, segir
engar slíkar viðræður hafa farið
fram um nokkurn tíma. Meira hafi
verið rætt um aðkomu lífeyrissjóð-
anna að vegaframkvæmdum fyrstu
árin eftir hrun. Rætt hafi verið um
að stofna sérstakan framtakssjóð
en ekkert orðið af því.
Sundabrautin ofan í skúffu
Engar viðræður í gangi milli ríkis og borgar um Sundabraut Tekið aftur upp í umhverfis- og
skipulagsráði borgarinnar Vilji til staðar hjá borgarstjóra og ráðherra að skoða einkaframkvæmd
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Sundabraut Svona gæti Sundabraut legið, yfir Álfsnes, Gunnunes, Geldinganes, Gufunes og áfram til Reykjavíkur.
Hugmyndir um Sundabraut
Loftmyndir ehf.
Kollafjörður
Saltvík
Viðey
Geldinganes
Grafarvogur
Álfsnes
Gunnunes
Þerney
Hugsanleg
Sundabraut
Sundagöng
Dagur B.
Eggertsson
Ólöf
Nordal
„Að okkar mati er ekki nógu mik-
ið að gerast í þessum málum,“
segir Regína Ásvaldsdóttir, bæj-
arstjóri á Akranesi, um Sunda-
brautina.
Í tengslum við fjárlagagerðina
í haust sendi Akraneskaupstaður
umsögn til fjárlaganefndar þar
sem hún var hvött til að tryggja
fjármagn til að ráðast í nauðsyn-
lega undirbúningsvinnu vegna
Sundabrautar.
Regína segir að þar hafi bæj-
aryfirvöld heilshugar lýst yfir
stuðningi við að einka-
framkvæmd yrði skoðuð en það
hafi vakið athygli að ekki væri
neitt fjármagn áætlað á fjár-
lögum til nauðsynlegrar undir-
búningsvinnu, s.s. við gerð um-
ferðarspár.
„Það þarf að ráðast í meiri
grunnvinnu en gert hefur verið.
Við höfum rætt þetta við innan-
ríkisráðherra um leið og við höf-
um rætt almennt um vegabætur
og tvöföldun Vesturlandsvegar.
Einnig hefur Sundabrautin
verið rædd við borgaryfirvöld.
Þetta skiptir okkur miklu máli,“
segir Regína sem telur brýnt að
tvöfalda Vesturlandsveg.
Vegurinn sé beinlínis hættu-
legur á köflum t.d. þegar er bæði
hálka og vindasamt.
„Sundabraut er einn
angi af þessum fram-
kvæmdum en horfa
þarf á vegasam-
göngurnar í heild
sinni og til lengri
tíma, alla leiðina frá
miðbæ Reykjavíkur
og upp í Borg-
arnes,“ segir Reg-
ína ennfremur.
Hvetja ríkið
til dáða
SKAGAMENN
Regína
Ásvaldsdóttir
Sími 555 2992 og 698 7999
FISKIOLÍA OG BLÁBER
í einum pakka
Það gerist varla betra fyrir:
OMEGA 3
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Hjartað og æðar
Gegn skaðlegum sindurefnum
í frumum líkamans sem
tengist hrörnun, skýi á auga
og krabbameini