Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Litadýrð Það er eflaust ekki amalegt að vinna í jafn litskrúðugri nýbyggingu og þessir tveir verkamenn gerðu í miðborginni. Þeir eru klæddir í samræmi við umhverfið.
Golli
Mikið er undir á ársfundi aðild-
arríkja Loftslagssamnings SÞ
(COP-21) sem hefjast á í París eftir
komandi helgi. Allt frá því staðið var
upp eftir árangurslausan fund sömu
aðila í Kaupmannahöfn 2009 hefur
verið leitað samkomulags í stað
Kyótóbókunarinnar frá 1997 um að
bregðast við augljósum og háskaleg-
um loftslagsbreytingum af manna-
völdum. Þar var þó samþykkt að
stefna að því að halda hlýnun and-
rúmsloftsins að meðaltali innan við
2°C og að iðnríkin legðu þróunar-
ríkjum til 100 milljarða dollara árlega
til að aðstoða þau við aðlögun að
röskun á loftslagi jarðar. Augljóst
var að meginábyrgð á að ekki náðist
víðtækt samkomulag á Kaupmanna-
hafnarfundinum var andstaða
Bandaríkjanna og Kína, en hvorugt
ríkjanna, sem til samans losa um 40%
gróðurhúslofts, hafði tekið á sig
skuldbindingar samkvæmt Kyótó.
Vonir um að nú megi ná árangri
byggjast ekki síst á því að á síðasta
ári lýstu bæði Kína og Bandaríkin yf-
ir vilja sínum til að takmarka losun,
þó án skuldbindandi markmiða.
Þannig var í fyrra í Lima lagður
grunnur að þeirri aðferðafræði sem
síðan hefur verið unnið eftir í aðdrag-
anda Parísarfundarins, þ.e. að hvert
einstakt aðildarríki að loftslagssamn-
ingi SÞ tilgreini þær skuldbindingar
sem það sé reiðubúið að taka á sig
eftir 2020. Summa þeirra skuldbind-
inga eigi að skila því markmiði að
halda hlýnun innan 2°C-marksins.
Tekist verður á um lagalega stöðu
þessara áforma á fundinum í París og
þar með hvort til verður samkomulag
sem eitthvert hald reynist í.
Fjölmargar efasemdarraddir
Nú í aðdraganda Parísarfundarins
heyrast varnaðarorð úr ýmsum átt-
um. Þau snerta í senn aðferðafræðina
og mat á því hvort eitthvert hald
verði í hugsanlegu samkomulagi.
Lyfta þarf grettistaki ef komast á út
úr öngstræti jarðefnaeldsneytis sem
orkugjafa. Menn eru brenndir af
skilningsleysi og skammtímahugsun
á liðinni tíð og síendur-
tekinni refskák sterkra
hagsmunaafla. Allt frá
því um 1970 sýndu mæl-
ingar vísindamanna á
Hawai hvert stefndi
með uppsöfnun gróður-
húsalofts í andrúmsloft-
inu og forspá þeirra hef-
ur fullkomlega gengið
eftir (sjá meðfylgjandi
mynd). Það tók hins
vegar alþjóðasamfélag-
ið tvo áratugi að ná
saman um loftslags-
samninginn á Ríó-ráðstefnunni 1992
og síðan 5 ár að leggja grunn að
Kýótóbókuninni. Eftir að hún rann
sitt skeið 2012 fengust aðeins nokkur
ríki, sem stóðu fyrir um 15% heims-
losunar, til að styðjast áfram við
þessa bókun fram til ársins 2020.
Hópur vísindamanna við MIT í
Bandaríkjunum sem leggur mat á
framtíðarhorfur í umhverfis- og
orkumálum fullyrðir að fyrirhugað
samkomulag sé verra en ekkert, m.a.
þar eð það byggist á óskhyggju og
skammsýnum eiginhagsmunum.
Jafnvel OPEC sé í hópi ábekinga!
Forysta SÞ leggi nú mest upp úr
sýndarárangri. 2°C-
markið þýði að tak-
marka verði CO2-losun
við samtals 1.000 gíga-
tonn og jafnvel þótt
staðið yrði við allar
framkomnar skuld-
bindingar væri því
marki náð um 2030 og
engu mætti bæta við í
losun þaðan í frá.
Margvísleg gagnrýni
hefur einnig komið frá
alþjóðasamtökum eins
og Oxfam og Green-
peace, m.a. að engin skilyrt gagn-
kvæmni sé innbyggð í ferlið og
áhugasamtökum hafi verið haldið frá
undirbúningi fundarins.
Segja verður skilið
við jarðefnaeldsneyti
Lengi hefur verið ljóst að árangri
verður ekki náð í glímunni við lofts-
lagsbreytingar af mannavöldum
nema markvisst verði dregið úr notk-
un jarðefnaeldsneytis. Með núver-
andi aukningu stefnir í 5°C hlýnun í
stað 2°C sem talið er það hámark sem
unnt væri að búa við. Um þrefalt
meiri birgðir jarðefnaeldsneytis eru
þekktar en hægt væri að nýta ef
halda á sig innan við 2°C-markið.
Samkvæmt nýlegum niðurstöðum at-
hugana University College í London
þyrfti að láta um 80% af kolum ónot-
uð, um 50% af jarðgasi og þriðjung af
þekktum olíulindum. Engin skyn-
semi sé í að hreyfa við olíu og gasi á
norðlægum slóðum. Eigi að nást
samkomulag um fjárhagslega hag-
kvæma nýtingu innan þessara marka
á heimsvísu þurfi að verja stórum
fjárhæðum í millifærslur til að bæta
þeim sem láta af nýtingu þessara
birgða. Hér væri á ferðinni hags-
munadæmi á heimsvísu af áður
óþekktri stærð. Þetta sýnir jafnframt
hversu óskynsamlegt er að verja
háum fjárhæðum á vegum ríkja og
fyrirtækja í leit að frekari birgðum
þessara úreltu orkugjafa. Meðfylgj-
andi mynd frá Global Commons
Institute (GCI) sýnir hvernig einstök
lönd og svæði þurfa að draga saman í
losun fram til næstu aldamóta til að
halda hlýnun innan þolanlegra
marka.
Hver verður stefna íslenskra
stjórnvalda?
Íslensk stjórnvöld hafa frá því
loftslagsmálin komu á dagskrá al-
þjóðasamfélagsins leikið tveim
skjöldum. Stuðningur þeirra við
Kyótóbókunina var bundinn því skil-
yrði að losun frá álverum hérlendis
yrði tekin út úr bókhaldinu! Nú heng-
ir ríkisstjórnin sig á snaga hjá ESB
um 40% samdrátt í losun til 2030, en
engin áætlun þar að lútandi hefur
enn séð dagsins ljós. Á sama tíma eru
í undirbúningi nokkur stóriðjuver
sem bæta drjúgum við losunarbók-
haldið. Við skulum vona að þögn ís-
lenskra stjórnvalda bendi ekki til að
enn eigi að fara á flot með sérstakar
undanþágur Íslandi til handa.
Eftir Hjörleif
Guttormsson
»Nú í aðdraganda
Parísarfundarins
heyrast varnaðarorð úr
ýmsum áttum um að-
ferðafræðina og líkur á
að eitthvert hald verði í
hugsanlegu samkomu-
lagi.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Parísarráðstefnan, loftslagsbreytingar
og þögn íslenskra stjórnvalda