Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 63

Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 63
63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Litadýrð Það er eflaust ekki amalegt að vinna í jafn litskrúðugri nýbyggingu og þessir tveir verkamenn gerðu í miðborginni. Þeir eru klæddir í samræmi við umhverfið. Golli Mikið er undir á ársfundi aðild- arríkja Loftslagssamnings SÞ (COP-21) sem hefjast á í París eftir komandi helgi. Allt frá því staðið var upp eftir árangurslausan fund sömu aðila í Kaupmannahöfn 2009 hefur verið leitað samkomulags í stað Kyótóbókunarinnar frá 1997 um að bregðast við augljósum og háskaleg- um loftslagsbreytingum af manna- völdum. Þar var þó samþykkt að stefna að því að halda hlýnun and- rúmsloftsins að meðaltali innan við 2°C og að iðnríkin legðu þróunar- ríkjum til 100 milljarða dollara árlega til að aðstoða þau við aðlögun að röskun á loftslagi jarðar. Augljóst var að meginábyrgð á að ekki náðist víðtækt samkomulag á Kaupmanna- hafnarfundinum var andstaða Bandaríkjanna og Kína, en hvorugt ríkjanna, sem til samans losa um 40% gróðurhúslofts, hafði tekið á sig skuldbindingar samkvæmt Kyótó. Vonir um að nú megi ná árangri byggjast ekki síst á því að á síðasta ári lýstu bæði Kína og Bandaríkin yf- ir vilja sínum til að takmarka losun, þó án skuldbindandi markmiða. Þannig var í fyrra í Lima lagður grunnur að þeirri aðferðafræði sem síðan hefur verið unnið eftir í aðdrag- anda Parísarfundarins, þ.e. að hvert einstakt aðildarríki að loftslagssamn- ingi SÞ tilgreini þær skuldbindingar sem það sé reiðubúið að taka á sig eftir 2020. Summa þeirra skuldbind- inga eigi að skila því markmiði að halda hlýnun innan 2°C-marksins. Tekist verður á um lagalega stöðu þessara áforma á fundinum í París og þar með hvort til verður samkomulag sem eitthvert hald reynist í. Fjölmargar efasemdarraddir Nú í aðdraganda Parísarfundarins heyrast varnaðarorð úr ýmsum átt- um. Þau snerta í senn aðferðafræðina og mat á því hvort eitthvert hald verði í hugsanlegu samkomulagi. Lyfta þarf grettistaki ef komast á út úr öngstræti jarðefnaeldsneytis sem orkugjafa. Menn eru brenndir af skilningsleysi og skammtímahugsun á liðinni tíð og síendur- tekinni refskák sterkra hagsmunaafla. Allt frá því um 1970 sýndu mæl- ingar vísindamanna á Hawai hvert stefndi með uppsöfnun gróður- húsalofts í andrúmsloft- inu og forspá þeirra hef- ur fullkomlega gengið eftir (sjá meðfylgjandi mynd). Það tók hins vegar alþjóðasamfélag- ið tvo áratugi að ná saman um loftslags- samninginn á Ríó-ráðstefnunni 1992 og síðan 5 ár að leggja grunn að Kýótóbókuninni. Eftir að hún rann sitt skeið 2012 fengust aðeins nokkur ríki, sem stóðu fyrir um 15% heims- losunar, til að styðjast áfram við þessa bókun fram til ársins 2020. Hópur vísindamanna við MIT í Bandaríkjunum sem leggur mat á framtíðarhorfur í umhverfis- og orkumálum fullyrðir að fyrirhugað samkomulag sé verra en ekkert, m.a. þar eð það byggist á óskhyggju og skammsýnum eiginhagsmunum. Jafnvel OPEC sé í hópi ábekinga! Forysta SÞ leggi nú mest upp úr sýndarárangri. 2°C- markið þýði að tak- marka verði CO2-losun við samtals 1.000 gíga- tonn og jafnvel þótt staðið yrði við allar framkomnar skuld- bindingar væri því marki náð um 2030 og engu mætti bæta við í losun þaðan í frá. Margvísleg gagnrýni hefur einnig komið frá alþjóðasamtökum eins og Oxfam og Green- peace, m.a. að engin skilyrt gagn- kvæmni sé innbyggð í ferlið og áhugasamtökum hafi verið haldið frá undirbúningi fundarins. Segja verður skilið við jarðefnaeldsneyti Lengi hefur verið ljóst að árangri verður ekki náð í glímunni við lofts- lagsbreytingar af mannavöldum nema markvisst verði dregið úr notk- un jarðefnaeldsneytis. Með núver- andi aukningu stefnir í 5°C hlýnun í stað 2°C sem talið er það hámark sem unnt væri að búa við. Um þrefalt meiri birgðir jarðefnaeldsneytis eru þekktar en hægt væri að nýta ef halda á sig innan við 2°C-markið. Samkvæmt nýlegum niðurstöðum at- hugana University College í London þyrfti að láta um 80% af kolum ónot- uð, um 50% af jarðgasi og þriðjung af þekktum olíulindum. Engin skyn- semi sé í að hreyfa við olíu og gasi á norðlægum slóðum. Eigi að nást samkomulag um fjárhagslega hag- kvæma nýtingu innan þessara marka á heimsvísu þurfi að verja stórum fjárhæðum í millifærslur til að bæta þeim sem láta af nýtingu þessara birgða. Hér væri á ferðinni hags- munadæmi á heimsvísu af áður óþekktri stærð. Þetta sýnir jafnframt hversu óskynsamlegt er að verja háum fjárhæðum á vegum ríkja og fyrirtækja í leit að frekari birgðum þessara úreltu orkugjafa. Meðfylgj- andi mynd frá Global Commons Institute (GCI) sýnir hvernig einstök lönd og svæði þurfa að draga saman í losun fram til næstu aldamóta til að halda hlýnun innan þolanlegra marka. Hver verður stefna íslenskra stjórnvalda? Íslensk stjórnvöld hafa frá því loftslagsmálin komu á dagskrá al- þjóðasamfélagsins leikið tveim skjöldum. Stuðningur þeirra við Kyótóbókunina var bundinn því skil- yrði að losun frá álverum hérlendis yrði tekin út úr bókhaldinu! Nú heng- ir ríkisstjórnin sig á snaga hjá ESB um 40% samdrátt í losun til 2030, en engin áætlun þar að lútandi hefur enn séð dagsins ljós. Á sama tíma eru í undirbúningi nokkur stóriðjuver sem bæta drjúgum við losunarbók- haldið. Við skulum vona að þögn ís- lenskra stjórnvalda bendi ekki til að enn eigi að fara á flot með sérstakar undanþágur Íslandi til handa. Eftir Hjörleif Guttormsson »Nú í aðdraganda Parísarfundarins heyrast varnaðarorð úr ýmsum áttum um að- ferðafræðina og líkur á að eitthvert hald verði í hugsanlegu samkomu- lagi. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Parísarráðstefnan, loftslagsbreytingar og þögn íslenskra stjórnvalda
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.