Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 51
FRÉTTIR 51Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-2
3
6
1
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is.
Opið virka daga kl.10–18 og laugardaga kl.12–16.
Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar,
Berlínar, London eða Dublin.
GLK 220 4MATIC árgerð 2012,
ekinn 41 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö.
Dráttarbeisli, inniljósapakki, krómpakki, Parktronic,
hiti í framsætum, skyggðar rúður, Offroad pakki o.fl.
Verð 5.890.000 kr.
Afb./mán. 55.300 kr.*
Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz
Mercedes-Benz GLK er ríkulega búinn og einstaklega öflugur sportjeppi
með mikla veghæð og dráttargetu upp á heil 2,4 tonn. Öllum notuðum GLK
fylgja vetrardekk og þeir hafa staðist þjónustuskoðun fyrir veturinn.
Að auki fylgir flug fyrir tvo með WOW Air öllum notuðum
Mercedes-Benz í eigu Öskju í nóvember. Tilboðið gildir fyrir
bifreiðar að verðmæti 1,5 milljónir eða meira.
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25%
og árleg hlutfallstala kostnaðar 11,03%
um Kambana og athygli vekur foss,
sem er á vinstri hönd þegar ekið er
niður efstu brekkuna. Fossinn varð
til fyrir um 40 árum þegar vegagerð-
armenn útbjuggu núverandi Kamba-
veg. Þá var áin úr Hengilsdölum
færð úr upphaflegum farvegi þangað
sem heitir Svartagljúfur og er alveg
við veginn. Áin rennur þar og svo
niður í Reykjadal inn af Hveragerði
og um Varmá og svo áfram til sjávar.
Það vekur athygli að þessi tilbúni
foss virðist aldrei hafa fengið nafn.
Grúsk í ýmsum ritum svo og samtöl
við kunnuga hafa engu skilað. Í því
samhengi skal minnt á fræga hend-
ingu úr Fjallgöngu, ljóði Tómasar
Guðmundssonar, „að landslag væri
lítils virði ef það héti ekki neitt“.
Hvar er Surtur?
Á Hellisheiði eru margir slóðar,
sumir faldir og aðrir gleymdir.
Gamli Hellisheiðarvegurinn sem far-
inn var í áratugi er lítið eitt sunnar
en núverandi vegur. Af honum er ek-
ið til suðurs inn á gamla veginn sem
nú er reyndar orðinn illfær enda hef-
ur honum ekkert verið sinnt í ára-
tugi. Sé þar farið er gráupplagt að
staðnæmast við hringsjána á
Kambabrún. Hún var sett upp árið
1950 og hefur ekkert verið uppfærð
síðan, þó svo að landið hafi breyst.
Það er í aðra röndina broslegt að á
skífu hringsjárinnar vantar enn
áttavísi að landi út við sjóndeild-
arhring, Surtsey sem myndaðist í
eldgosi á árunum 1963 til 1967.
Surturinn, eins og margir nefna
eyjuna, er hins vegar merktur á
hringsjá sem er við Kambaveginn
sem nú er. Áttaviti sá er beint niður
af bílastæði sem var útbúið fyrir Ís-
landsheimsókn Margrétar Þórhildar
Danadrottningar árið 1973. Stóð til
að sýna hinni tignu frú útsýnið af
fjallsbrúninni, en slík var rigningin
að hún sté aldrei út úr bílnum þó að
Henrik prins léti sig hafa það.
Snubbótt viðstaðan á Kambabrún
festist þó í minni fólks og rampurinn
á fjallsbrúninni er alltaf kallaður
Drottningarplan.
Hellukofinn sem reistur var árið 1830 er óvenjulegt
mannvirki, sem hefur jafnan verið öruggt skjól.
Hvað heitir fossinn í Kömbunum? Sá var útbúinn
árið 1972 en það virðist hafa láðst að nefna hann.
Henrik prins á Kambabrún árið 1973. Margrét Þórhildur fór ekki út í
regnið. Þarna heitir síðan Drottningarplan í daglegu tali Sunnlendinga.
Óskar Ragnarsson í Þorlákshöfn á gömlu Kamba-
brún við Hringsjána sem þar var sett upp árið 1950.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Það rýkur úr holum í Hverahlíð, syðst á Hellis-
heiði, en til stendur að beisla gufuafl þeirra.