Morgunblaðið - 26.11.2015, Page 51

Morgunblaðið - 26.11.2015, Page 51
FRÉTTIR 51Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -2 3 6 1 Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is. Opið virka daga kl.10–18 og laugardaga kl.12–16. Flug fyrir 2 til Kaupmannahafnar, Berlínar, London eða Dublin. GLK 220 4MATIC árgerð 2012, ekinn 41 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Dráttarbeisli, inniljósapakki, krómpakki, Parktronic, hiti í framsætum, skyggðar rúður, Offroad pakki o.fl. Verð 5.890.000 kr. Afb./mán. 55.300 kr.* Flug fyrir 2 með öllum notuðum Mercedes-Benz Mercedes-Benz GLK er ríkulega búinn og einstaklega öflugur sportjeppi með mikla veghæð og dráttargetu upp á heil 2,4 tonn. Öllum notuðum GLK fylgja vetrardekk og þeir hafa staðist þjónustuskoðun fyrir veturinn. Að auki fylgir flug fyrir tvo með WOW Air öllum notuðum Mercedes-Benz í eigu Öskju í nóvember. Tilboðið gildir fyrir bifreiðar að verðmæti 1,5 milljónir eða meira. *Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar 11,03% um Kambana og athygli vekur foss, sem er á vinstri hönd þegar ekið er niður efstu brekkuna. Fossinn varð til fyrir um 40 árum þegar vegagerð- armenn útbjuggu núverandi Kamba- veg. Þá var áin úr Hengilsdölum færð úr upphaflegum farvegi þangað sem heitir Svartagljúfur og er alveg við veginn. Áin rennur þar og svo niður í Reykjadal inn af Hveragerði og um Varmá og svo áfram til sjávar. Það vekur athygli að þessi tilbúni foss virðist aldrei hafa fengið nafn. Grúsk í ýmsum ritum svo og samtöl við kunnuga hafa engu skilað. Í því samhengi skal minnt á fræga hend- ingu úr Fjallgöngu, ljóði Tómasar Guðmundssonar, „að landslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt“. Hvar er Surtur? Á Hellisheiði eru margir slóðar, sumir faldir og aðrir gleymdir. Gamli Hellisheiðarvegurinn sem far- inn var í áratugi er lítið eitt sunnar en núverandi vegur. Af honum er ek- ið til suðurs inn á gamla veginn sem nú er reyndar orðinn illfær enda hef- ur honum ekkert verið sinnt í ára- tugi. Sé þar farið er gráupplagt að staðnæmast við hringsjána á Kambabrún. Hún var sett upp árið 1950 og hefur ekkert verið uppfærð síðan, þó svo að landið hafi breyst. Það er í aðra röndina broslegt að á skífu hringsjárinnar vantar enn áttavísi að landi út við sjóndeild- arhring, Surtsey sem myndaðist í eldgosi á árunum 1963 til 1967. Surturinn, eins og margir nefna eyjuna, er hins vegar merktur á hringsjá sem er við Kambaveginn sem nú er. Áttaviti sá er beint niður af bílastæði sem var útbúið fyrir Ís- landsheimsókn Margrétar Þórhildar Danadrottningar árið 1973. Stóð til að sýna hinni tignu frú útsýnið af fjallsbrúninni, en slík var rigningin að hún sté aldrei út úr bílnum þó að Henrik prins léti sig hafa það. Snubbótt viðstaðan á Kambabrún festist þó í minni fólks og rampurinn á fjallsbrúninni er alltaf kallaður Drottningarplan.  Hellukofinn sem reistur var árið 1830 er óvenjulegt mannvirki, sem hefur jafnan verið öruggt skjól.  Hvað heitir fossinn í Kömbunum? Sá var útbúinn árið 1972 en það virðist hafa láðst að nefna hann.  Henrik prins á Kambabrún árið 1973. Margrét Þórhildur fór ekki út í regnið. Þarna heitir síðan Drottningarplan í daglegu tali Sunnlendinga.  Óskar Ragnarsson í Þorlákshöfn á gömlu Kamba- brún við Hringsjána sem þar var sett upp árið 1950. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Það rýkur úr holum í Hverahlíð, syðst á Hellis- heiði, en til stendur að beisla gufuafl þeirra.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.