Morgunblaðið - 26.11.2015, Blaðsíða 108
108 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015
Reykjavíkurvegi 64, Hfj,
s. 555 1515, enjo.is
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Tímasparnaður
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun
Nýja ENJO vörulínan er
komin á markað
Ferskari, líflegri og enn meiri gæði
Komið í verslun okkar
og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Ég byrjaði ekki að skrifa söguna
fyrr en ég var að verða viðþols-
laus. Og það á við um flestar mín-
ar bækur,“ segir Ólafur Jóhann
Ólafsson, rithöfundur með meiru,
þegar við ræðum nýja skáldsögu
hans, Endurkomuna. Óþolið staf-
aði af því að per-
sónur sögunnar
voru orðnar mót-
aðar í huga hans
og þurftu að
komast á papp-
írinn. En hvern-
ig vinnur Ólafur
Jóhann að sög-
um sínum; þaul-
hugsar hann
persónur og atburði áður en hann
byrjar að skrifa eða mótast það að
einhverju leyti jafnóðum þegar
hann skrifar?
„Áður en ég byrja eru viðfangs-
efni sem ég hef áhuga á komin í
hugann en síðan ráða persónurnar
ferðinni – í þessari sögu er það
hálfíslenskur læknir í New York,
Magnús Colin, og persónan þarf
að búa með mér um tíma og mót-
ast. Áður en ég byrjaði að skrifa
hafði Magnús eflaust verið í höfð-
inu á mér í eitt ár. Og eins og ég
sagði þá hófst ég ekki handa fyrr
en mig var farið að klæja í fing-
urna, ég var búinn að halda aftur
af mér um tíma, og persónan var
farin að banka nokkuð harkalega
inni í mér og vildi komast út. Fyr-
ir vikið var Magnús orðinn býsna
mótaður og réði nokuð ferðinni í
framhaldinu. Þegar ég skrifa
skáldsögur mínar þarf ég síðan
sjaldan að stoppa og velta fyrir
mér hvað persónurnar myndu gera
í stöðunni sem blasir við, það á að
liggja nokkuð ljóst fyrir.“
Endurkoman er afar grípandi
samtímasaga sem er skrifuð af
mikilli snerpu, er haganlega
byggð, og gerist að stórum hluta í
New York-borg þar sem höfund-
urinn hefur, eins og menn þekkja,
verið búsettur um langt árabil og
starfað að skriftum en jafnframt í
mörg undanfarin ár verið aðstoð-
arforstjóri fjölmiðlarisans Time
Warner. Magnús Colin elst reynd-
ar upp á Englandi, einkabarn ís-
lenskrar móður sem er píanóleik-
ari og föður sem gefur út tónlist.
Hann fetar hinsvegar allt aðra leið
í lífinu en þau, nemur læknisfræði
og helgar sig rannsóknum á fólki
sem er fullkomnlega lamað og
reynir hann að komast að því
hvort heili þess starfar enn.
Lendir í púðurtunnu
„Í sögunni fléttast saman þrír
þræðir: líf og starf læknisins, ást-
arsamband hans við argentínskan
dansara og ákveðið uppgjör við
foreldrana,“ segir Ólafur Jóhann.
„Læknirinn er staddur á vegamót-
um þar sem fortíðin leitar á hann
og tengist því sem hann er að fást
við í sínu starfi, þar sem hann leit-
ar að vitsmunum í algjörlega löm-
uðu fólki. Fyrir mörgum árum
fékk ég áhuga á þessu fyrirbæri
sem er kallað upp á ensku „locked-
in syndrome“, las mér mikið til um
það og þá ekki síst um enskan
lækni sem hefur verið frumköðull í
rannsóknum á þessu ástandi. Fólk
getur orðið fyrir slysi, fengið
heilablóðfall eða lömunin stafað af
sjúkdómi, fólkið verður ófært um
að tjá sig og er oft álitið heiladautt
en þessi Breti sem var mér ákveð-
in fyrirmynd hvað vísindaþátt sög-
unnar varðar var sannfærður um
að einhverjir hlytu að vera með
rænu og hannaði vél, sambland
segulómtækis og tölvubúnaðar sem
fólki er rennt inn í. Það er síðan
spurt spurninga og ef það skilur
„Persónan
var farin að
banka nokkuð
harkalega“
Ólafur Jóhann Ólafsson sendir
frá sér skáldsögu eftir fjögurra
ára hlé Í Endurkomunni segir frá
hálfíslenskum lækni í New York
Ljósmynd/Ahron R. Foster
Rithöfundurinn „Ætli þetta sé ekki ákveðið bergmál af manni sjálfum, með fæturna í tveimur heimum og jafnvel fleirum,“ segir Ólafur
Jóhann um sögusvið nýju skáldsögunnar og aðstæður aðalpersónunnar í New York-borg.
Nýlókórinn/Íslenski hljóðljóðakór-
inn heldur hljóðleikana Ég sakna
ekki framtíðarinnar í salnum Gym &
tonic á Kex hosteli í kvöld kl. 20.
Kórinn mun frumflytja þrjú ný verk
eftir þrjá höfunda sem nálgast kór-
inn á ólíkan hátt. Nýtt verk eftir
Harald Jónsson myndlistarmann,
„Fet“, verður frumflutt en hann hef-
ur kannað um langt skeið í gjörn-
ingum sínum skynjun og upplifun
manneskjunar í tíma og rúmi, eins
og segir í tilkynningu.
Í nýju „Fjalli“, nýju verki ljóð-
skáldsins Jóns Arnar Loðmfjörð,
Lomma, er brugðið á leik með
hljómfall, merkingu og merking-
arleysu ólíkra textabrota sem kallast
á við eitt málverka Jóhannesar Kjar-
vals og Hörður Bragason, tónskáld
og einn kórstjóri Nýlókórsins, nálg-
ast kórinn sem líkamlegan og hljóð-
legan skúlptúr í nýju verki sínu,
„Edik-önd“. Nýlókórinn eða Íslenski
hljóðljóðakórinn var stofnaður árið
2003 og sérhæfir sig í flutningi hljóð-
ljóða og gjörninga og hefur allt frá
stofnun komið fram við ýmis tæki-
færi og á ýmsum hátíðum á borð við
Listahátíð í Reykjavík, Tectonics
Reykjavík auk annarra hátíða.
Miðaverð er 1.000 kr. og er tekið
fram að atriði á hljóðleikunum geti
valdið viðkvæmu fólki óþægindum.
Geta valdið óþægindum
Frumflutt Úr nótum verks Haraldar Jónssonar, „Fet“, sem verður frumflutt
á hljóðleikum Nýlókórsins á Kex hosteli í kvöld ásamt tveimur öðrum.