Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 44

Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 44
VIÐTAL Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Fida Abu Libdeh var 16 ára þegar hún flutti til Íslands með fjölskyldu sinni. Móðir hennar Amal Tamimi hafði þá fengið atvinnu- og dvalar- leyfi á Íslandi og hér átti Amal bróð- ur, Salmann Tamimi sem aðstoðaði fjölskylduna við að koma sér fyrir. Fida þekkir þó vel hvernig er að vera innflytjandi með rætur í stríðs- hráðu landi og finnur til samkenndar með öllu því fólki sem nú flýr stríðs- hrjáð heimalönd og óskar eftir að setjast að í löndum þar sem friður ríkir, m.a. á Íslandi. „Ég er stríðsbarn og veit alveg hvernig fólkinu líður. Fólk er ekki að koma hingað af því að það hati landið sitt og vilji ekki búa þar, heldur af því að það er neytt til þess. Þess vegna skiptir miklu máli hvernig er tekið á móti því, vegna þess að síð- asta úrræði þess er að flýja land og leita betra lífs. Ég tek það líka nærri mér þegar fólk er að alhæfa og setja alls kyns titla á fólk eftir trúarbrögð- um eða útliti og dæma um hvernig það eigi eftir að haga sér. Til varnar þessu fólki tek ég oft sjálfa mig sem dæmi, því ég er ekkert öðruvísi en þú, þó ég sé dekkri og eigi önnur trúarbrögð,“ segir Fida við Morgun- blaðið. Fordómarnir komu seinna Fida segir þetta þó ekki hafa verið sín reynsla þegar hún flutti til Ís- lands 16 ára gömul. Íslendingar hafi tekið henni og fjölskyldu hennar vel og það á sjálfsagt stóran þátt í því hversu vel þeim gekk að samlagast íslensku samfélagi. „Við bjuggum fyrst hjá frænda mínum Salmann í nokkra mánuði en fluttum svo í Kópavoginn. Þar tóku nágrannar okkar vel á móti okkur. Fólk kom með föt til okkar og hús- gögn, bauð okkur í afmæli og kom til okkar í afmæli og færðu okkur af- mælis- og jólagjafir. Við vorum vel- komin allsstaðar þar sem við kom- um. Það er öðruvísi þegar maður kemur inn í landið sem flóttamaður, þá tekur við ákveðið kerfi sem held- ur utan um mann þangað til maður hefur fest rætur. Við völdum hins vegar að koma og þá er stuðningur minni.“ Fida segir sama hafa verið upp á teningnum þegar hún var í skóla, fannst hún ekki merkja fordóma í sinn garð fyrir að vera innflytjandi frá Palestínu. „Þetta er eiginlega svolítið sérstakt, ég þekkti ekki for- dóma og fannst ég því ekki verða fyrir fordómum fyrr en seinna. Þeg- ar ég var orðin fullorðin fór ég að hugsa meira um fordóma, hvað for- dómar væru. Þá fannst mér ég frek- ar upplifa fordóma vegna þess að ég væri kona en ekki innflytjandi. En það er auðvitað verra að vera kona og innflytjandi. Þegar ég fullorðnað- ist og fór að segja mína skoðanir þá fannst mér fólk ekki dæma mig út frá skoðunum mínum heldur sagði að ég hugsaði svona af því ég væri kona og innflytjandi,“ segir Fida gráglettin. Átak MS skilaði árangri Það er aðdáunarvert að hlusta á Fidu mæla á íslenskri tungu, aldrei er hik í samtalinu og íslenskan renn- ur áreynslulaust þó vissulega heyr- ist að Fida er af erlendu bergi brot- in. Það er ekki síður áhugavert að heyra hvað varð kveikjan að brenn- andi áhuga Fidu á að læra íslenskt mál. „Ég man alltaf hvað það fór í taugarnar á mér að geta ekki lesið hvað stóð á mjólkurfernunum. Það var markmið mitt fyrst og fremst að vita hvað stæði á mjólkurfernunum. Það skiptir líka máli hvað íslenskan er vernduð, menningin í kringum tungumálið og hvernig íslenskan er út um allt. Þetta smitaðist til mín og hjálpaði mér að læra. Mjólkurfernan var eitthvað sem ég þurfti að kaupa og vildi skilja hvað stóð á henni. Ég var viss um að það væri eitthvað mjög skemmtilegt.“ Hún segir það sama upp á ten- ingnum með það flóttafólk sem nú sé að koma til Íslands, það ætli að setj- ast hér en ekki koma til að starfa tímabundið og finnist því ekki taka því að læra íslensku. „Til þess að geta lifað hér og vera þátttakandi í samfélaginu, verður þú að læra mál- ið.“ Lesblinda fjötur um fót Íslenskunámið í skólakerfinu reyndist þó langt frá því að vera auð- velt fyrir Fidu þrátt fyrir jákvæða hvatningu frá málræktarátaki Mjólkursamsölunnar. Fida veltist um í íslensku skólakerfi og gekk illa í íslensku- og dönskunámi en skuld- inni var alltaf skellt á þá staðreynd að hún ætti ekki íslensku að móður- máli. Henni tókst ekki að klára stúd- entspróf og þrátt fyrir að hafa marg- sinnis sótt um undanþágu frá íslensku- og dönskunámi og fá að einbeita sér að raungreinum, sem lágu vel fyrir henni, því hún átti sér þann draum að komast í háskóla, voru dyrnar á íslensku skólakerfi lokaðar. Þar til hún uppgötvaði Keili á Ásbrú. „Í millitíðinni var ég hins vegar búin að gefast upp og árið 2004 fór ég aftur til Palestínu og var ekki nema rúma sjö mánuði, því ég var orðin miklu meiri Íslendingur en ég hélt. En þetta var mikil barátta því ég átti mér þann draum að klára námið mitt en gat það aldrei.“ Dæmið snerist við í Keili, þar var minni áhersla lögð á tungumálin og Fidu gert kleift að einbeita sér að því sem hún gerði vel. Það sem meira var, hún var send í lesblindu- greiningu sem gaf jákvæða niður- stöðu og var því undirrót erfiðleik- anna í málanáminu. Frá því lá leiðin bara upp á við, enda Fida komin með úrræði í hendurnar sem auðveldaði námið til muna og efldi hana mikið í íslensku. Að sögn Fidu skiptu hljóð- bækur þar sköpum. Fida útskrifaðist fyrst af Háskóla- brú Keilis með viðskiptafræði og hagfræði sem fagsvið og hóf svo nám í tæknifræði við skólann um leið og það bauðst árið 2009. Um það leyti sem Fida var að útskrifast árið 2012 hófst ævintýrið með framleiðslu fæðubótarefnis úr kísli, sem hvergi sér fyrir endann á né hvernig á eftir að þróast um ókomin ár. GeoSilica fær góðar viðtökur „Ég tók orku- og umhverfis- tæknifræði og þar vorum við að skoða mikið jarðvarma, orkunýtingu og hvernig hægt er að nýta afurðir úr jarðhitavirkjunum á sjálfbæran hátt. Í lokaverkefninu var ég mikið að skoða rannsóknir á áhrifum kísils á bakteríur og sveppi í samstarfi við Matís og Burkna Pálsson, sam- starfsmann minn, sem var að skoða leiðir til að hreinsa kísil án þess að nota aukaefni. Þá datt ég inn á rann- sóknir þar sem tilgreint var að kísill væri notaður sem fæðubótarefni, væri tekinn til inntöku. Á sama tíma fann Burkni leið til að hreinsa kísil án þess að nota aukaefni. Í fram- haldi ákváðum við að stofna fyrir- tæki,“ segir Fida um upphafi fram- leiðslu fæðubótarefnisins geoSilcia sem nú hefur verið á markaðnum í rétt tæpt ár. Í júní sl. lauk Fida MBA námi með uppbyggingu fyr- irtækisins svo það hefur verið í mörg horn að líta. Fyrsta verkefni hins nýstofnaða fyrirtækis var að sækja um verk- efnastyrk til tækniþróunarsjóðs Rannís. Fida og Burkni höfðu þá fengið þjálfun í umsóknarferlinu, s.s. viðskiptaáætlun og markaðs- setningu í skólanum. Þróunin tók tvö ár og því var varan að koma fyrst á markað í janúar 2015. „Þróunin snérist um að koma í veg fyrir botn- fall í vökvanum og hreinsa kísilinn án aukaefna því við vildum hafa þetta eins náttúrulegt og hægt væri.“ Framleiðendurnir nota affallsvatn frá Hellisheiðarvirkjun og fram- leiðslan fer þar fram á hverjum degi. Allar prófanir á framleiðslunni fara hins vegar fram í höfuðstöðvunum í Eldey á Ásbrú. Vörunni er tappað á hjá fyrirtækinu Pharmarctica á Grenivík sem er vottað sem vinnslu- stöð lífrænna afurða (GMP vottun) og við það fær geoSilica sama vott- unarstimpil. Fimm starfsmenn vinna við framleiðslu og markaðs- setningu vörunnar. Hefði ekki geta gert þetta án stuðnings maka Nokkur reynsla er komin á vör- una og hafa framleiðendurnir fengið góð viðbrögð frá notendum. Kísillinn þykir reynast vel í baráttunni við gigt, á liðverki og við húðsjúkdóm- um á borð við psoriasis. Sölustaðir á Íslandi eru orðnir yfir 80 og vinna við erlenda markaði komin vel á veg, m.a. í Danmörku, Kanada og Þýska- landi. Fyrirtækið er enn smátt og þann- ig verður það áfram, að sögn Fidu meðan verið er að styrkja innviði þess betur. Það þýðir að starfsfólk gengur í öll störf því yfirbygging er engin og oft um sjálfboðavinnu að ræða. Hún segir það einkenna störf frumkvöðla. En hvenær hættir frumkvöðull að vera frumkvöðull? „Einu sinni frumkvöðull, alltaf frumkvöðull,“ segir Fida og játar að hún hefði aldrei getað staðið í þess- ari uppbyggingu með óreglulegum vinnutíma og óreglulegri innkomu nema njóta stuðnings frá maka sín- um. Saman eiga þau þrjú ung börn og reka heimili á Ásbrú. Fida fékk fyrr á þessu ári Euwinn viðurkenningu fyrir nýsköpunina geoSilica og komst í topp 10 hóp framúrskarandi ungra Íslendinga árið 2013. Í ársbyrjun var hún út- nefnd Suðurnesjamaður ársins af Víkurfréttum. Þá eru ótaldar fjöl- margar viðurkenningar sem fyrir- tækið hefur fengið. Vildi geta lesið á mjólkurfernurnar  Fida Abu Libdeh er gott dæmi um innflytjanda sem hefur tekist að aðlagast íslensku samfélagi og gefa ríkulega til þess  Hún rekur nýsköpunarfyrirtæki og framleiðir fæðubótarefni úr kísli Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Prófanir Fida Abu Libdeh prófar hvort geoSilica sé ekki eins hrein og hún á að vera, þ.e. án botnfalls og aukaefna. 44 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Söluaðilar: Gilbert úrsmiður Meba - Rhodium GÞ - skartgripir & úr Georg V. Hannah, Kef. Leonard Halldór Ólafsson, Ak. Meba Úr & Gull, Hafnarf. Collection noemia KATHERYN WINNICK Deeply involved in the Arts since its early days, RAYMOND WEIL is thrilled to count acclaimed TV series Vikings’ leading star Katheryn Winnick as its new Brand ambassador. Her strong personality, natural beauty and undisputable charisma make her the perfect match for the independent Swiss matchmaker. Join the discussiong using #RWKatherynWinnick
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.