Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 56

Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 56
56 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Kauptúni 3 / Garðabæ / Sími 564 3364 Frábær opnunar- tilboð laugardaginn 28. nóvember Opnum nýja, stærri og glæsilegri verslun Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil kíktu í heimsókn „Héðan í frá styðja Frakkar ekki bara stríðsyfirlýsingar, þeir styðja líka aðgerðir sem leiða munu til skerðingar borgaralegra réttinda,“ sagði Jerome Fourquet, forstjóri Ifop, um niðurstöður könnunarinn- ar. Í tilraunum sínum til að auka á öryggi hafa Frakkar mætt mót- stöðu forystumanna Evrópusam- bandsins (ESB), sem ekki hafa vilj- að taka undir kröfur um aukið eftirlit á landamærum og með ferð- um fólks innanlands. Ástæðan mun m.a. vera sú, að innan við eins pró- sents líkur eru taldar á því að með því mætti góma hryðjuverkmenn á heimleið frá útlöndum. Schengen gagnslaust vopn? Dimitris Avramopoulos, sem fer með innflytjendamál í fram- kvæmdastjórn ESB, segir engar breytingar þurfa á landamæra- samþykktum sem kveða á um lág- markseftirlit með handhöfum vega- bréfa aðildarríkja sambandsins er þeir snúa heim frá Mið-Austur- löndum eða annars staðar frá. Hryðjuverkin í París og hversu auðvelt meinsærismönnunum var að ferðast til og frá Sýrlandi og síðan frá Belgíu til Frakklands með alvæpni í bílum sínum hefur vakið spurningar um lífvænleika Schengen-upplýsingakerfisins. Frakkar krefjast þess einnig, að fyrir árslok verði ESB-löndin búin að innleiða nýja farþegaskráningu (PNR-kerfi) sem geyma mun fullt nafn og persónuupplýsingar flug- farþega og gera mun leyniþjónust- um kleift að fylgjast með ferðalög- um einstaklinga. Hafnar stjórn ESB að þessar reglur nái líka til ferju- og lestarfarþega. Franskur stjórnarerindreki hef- ur látið svo um mælt við fréttastof- una AFP, að Frakkar séu gall- harðir í þeirri afstöðu sinni, að til þess að kerfið geti orðið skilvirkt verði að nota það innan ESB einn- ig og ekki bara fyrir farþega sem koma inn á sambandssvæðið utan frá. Um slíkt er ekki samstaða enn sem komið er og kölluðu slíkar ráðstafanir á breytingar á grund- vallarlögum ESB. Á það er hins vegar bent að gagnagrunnur Schengen (SIS) sé í raun gagns- laus sem tæki til að hindra eða stöðva för glæpamanna eða verð- andi hryðjuverkamanna sem bera ESB-vegabréf eða fullkomin fölsuð skilríki. Mannréttindafrömuðum stendur viss ógn af ráðstöfunum sem Francois Hollande hefur heitið að innleiða í framhaldi af hryðjuverk- unum í París. Þeir benda og á að þegar hafi á þessu ári verið sett lög er ógni mannréttindum og kyndi fremur undir öfgamennsku en að slá á hana. Umdeild farþegaskráning Þótt nýja farþegaskráningin (PNR-kerfið) sé umdeild hefur fylgi við hana sem vörn gegn hryðjuverkastarfsemi vaxið. Kerfið kallar á að allur farangur verði gegnumlýstur og farþegar sömu- leiðis skannaðir. Hún mun enn- fremur gera kleift að rannsaka far- þegalista í rauntíma og mæla ferðamynstur fólks frá einum tíma til annars. Öryggiskerfi af því tagi sem beðið gæti Frakka og þeirra sem eru á leið úr landi gæti verið eitthvað í líkingu við það sem við- gengst á ísraelskum flugvöllum. Ben Gurion-flugvöllurinn í Tel Aviv í Ísrael er almennt talinn sá öruggasti í veröldinni vegna örygg- isráðstafana þar. Allir farþegar sem bíða við inn- ritunarborðin eru yfirheyrðir um ferðalag sitt og sérþjálfaðir örygg- isverðir fylgjast sérstaklega með ósamræmi í svörum og viðbrögðum farþeganna. Veki svörin grunsemd- ir er viðkomandi tekinn til frekari skoðunar sem haft geta í för með sér margra klukkustunda yfir- heyrslur og ítarlega skoðun á far- angri. Evrópskir sérfræðingar í örygg- ismálum sögðu á ráðstefnu í Barce- lona í síðustu viku að þeir væru tregir til að mæla með að jafn langt yrði gengið við innleiðingu PNR-kerfisins og vinnubragðanna í Ísrael. Slíkt hefði í för með sér mikinn kostnað fyrir flugvellina og mun lengri ferðatíma. Aftur á móti lýstu þeir stuðningi við skráningu hegðunar flugfarþega og sögðu gagnsemi þess mikla. Greina óeðlilegt hátterni Skráning mannlýsinga af því tagi snýst um að greina óeðlilegt hátt- erni farþega frá því augnabliki er þeir koma til flugvallarins og þang- að til þeir ganga um borð í flugvél, segir Erick Bourai, yfirmaður ör- yggismála hjá Airports Council International Europe. „Til að byrja með fylgjast sérfræðingar úr fjar- lægð með einstaklingi og ganga síðan á hann með spurningum ef þeim sýnist eitthvað einkennilegt við hann,“ bætir hann við. Mannréttindafrömuðir hafa var- að við fordómum og mismunun í þessu sambandi, með því að „próf- ílskoðendur“ velja fólk úr til athug- unar á grundvelli trúarbragða, þjóðernis eða húðlitar. Þessi hætta var undirstrikuð í síðustu viku er tollverðir á Orly- flugvellinum í París ákváðu að leita á ráðherra frá Alsír þótt hann veif- aði diplómatavegabréfi. Mótmæltu yfirvöld í Algeirsborg framkom- unni við hann formlega við frönsk stjórnvöld. Var atvikið innlegg í víðtækar umræður á ýmsum svið- um Evrópusamstarfsins um hvar og hvernig skuli draga mörkin í þeirri jafnvægislist sem snýst um öryggismál þjóða og friðhelgi einkalífs. Eftir árásirnar á skrifstofur Charlie Hebdo í París og í sér- verslun með ísraelskar vörur í jan- úar fékk lögreglan aukin meðul í baráttunni gegn hryðjuverkastarf- semi. Þannig samþykkti þingið lög í maí er skylda veitendur netþjón- ustu að setja upp búnað í gagna- verum sínum sem gerði lögregl- unni kleift að fylgjast með vafa- sömu atferli og rafrænum sam- skiptum innanlands á netinu í rauntíma. Eru þetta nokkurs konar „svartir kassar“ sem brúka reikni- rit – algóritma – til að þefa uppi og tilkynna tortryggilegt athæfi á net- inu. „Svörtum kössum“ hefur enn ekki verið beitt Þrátt fyrir að nær hálft ár sé lið- ið frá lagasetningunni mun franska stjórnin ekki hafa hrint eftirliti af þessu tagi í framkvæmd. Lög um sambærilegt eftirlit með netnotkun yfir landamærin bíður afgreiðslu hjá stjórnlagadómstól landsins. Verði þau samþykkt má segja að þau réttlæti leynilegt verkefni sem þáverandi forseti, Nicolas Sarkozy, heimilaði snemma árs 2008 og snerist um að hlera öll samskipti um netkapla neðansjávar þar sem þeir komu á land í Marseille við Miðjarðarhaf, Penmarch á Bret- aníuskaga við Atlantshaf og Saint- Valery-en-Caux við Ermarsund. Francois Hollande forseti lagði til ýmsar breytingar á stjórnar- skránni til að styrkja stjórnvöld í glímunni við hryðjuverkastarfsemi. Meðal annars vill hann fá inn í stjórnarskrána að svipta megi þá Frakka ríkisborgararétti sem sak- felldir verða fyrir hryðjuverk og einstaklinga með tvöfalt ríkisfang sem gerast sekir um fjandsamlegt athæfi í garð Frakklands. Þetta segir Hollande nauðsynlegt til að ekki þurfi að grípa til neyðarlaga til þess að fá lögreglunni aukin völd. „Við verðum að breyta stjórnar- skránni í vopn gegn hryðjuverka- starfsemi,“ sagði forsetinn. AFP Í varðstöðu Lögreglumenn standa vörð á torgi lýðveldisins, Place de la Republique, í París. Vænta má aukinna umsvifa og eftirlits lögreglu í Frakklandi. AFP Hert eftirlit Rætt er um aukið eftirlit á flugvöllum, jafn vel á borð við það sem viðgengst á ísraelskum flugvöllum. Því myndu fylgja tafir og bið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.