Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 97

Morgunblaðið - 26.11.2015, Side 97
MINNINGAR 97 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 Það var um svip- að leyti og fyrsti snjórinn féll á höfuð- borgarsvæðinu þennan veturinn að flugvélin hans Hjalta Más brotlenti. Fréttirnar af andláti Hjalta voru yfirþyrmandi. Hvernig gat þetta gerst? Sorgin lagðist yfir fallega heimilið þeirra Önnu og Hjalta eftir því sem leið á daginn og úti frysti brátt. Hjalti Már skilur eftir sig djúpt skarð í hjörtum þeirra sem hann umgekkst. Það er þyngra en tárum taki að nefna djúpu sár- in þeirra Önnu Ýrar og stelpn- anna, foreldra hans og systkina. Hann var mikill fjölskyldumaður og setti sína nánustu alltaf í for- gang. En Hjalti var einfaldlega þannig maður úr garði gerður að hann skilur eftir sig spor í hjört- um allra þeirra sem hann kynnt- ist og umgekkst. Sem mág og svila var einstak- lega gott að eiga hann Hjalta Má að. Hann var hlýr og skemmti- legur og maður naut sannarlega samvista við hann, hvort sem það var yfir kaffibolla í tveggja manna tali, yfir góðri kvöldmáltíð eða í fjölskylduboðum. Hjalti var selskapsmaður og heimili þeirra hjóna hlýlegur staður þar sem maður var alltaf velkominn. En það var ekki eingöngu í gleði sem unnt var að treysta á hann Hjalta Má því ef eitthvað bjátaði á var hann jafnan stoð og stytta. Hjálpsemi Hjalta var einstök og hafði hann jafnan frumkvæði að því að aðstoða og láta gott af sér leiða. Hann gerði manns eigin vandamál að sínum. Skiptir þá engu hvort vandamálin voru af veraldlegum eða andlegum toga, því að Hjalti var ekki bara dug- legur og handlaginn; hann var einnig ráðagóður og í honum var mikill stuðningur. Á þessum sorgartímum minnumst við þeirra fjölda tilfella þegar Hjalti studdi við bakið á okkur eða öðr- um innan fjölskyldunnar. Okkur eru ofarlega í huga und- anfarnir mánuðir þar sem heimili okkar hefur verið óíbúðarhæft og kalla þurfti til iðnaðarmenn. Í þessum vandræðum var ekki að spyrja að hjálpsemi Hjalta og Önnu; bílskúrinn var einfaldlega tæmdur, málaður og breytt í íbúð fyrir okkur. Við erfiða fæðingu sonar okkar í sumar veittu Anna Ýr og Hjalti okkur einnig mikinn stuðning. Fyrir þessa ómetan- legu hjálp átti eftir að þakka. Elsku Hjalti Már. Það er óbærilegt að hugsa til þess að við fáum ekki að njóta frekari sam- vista. Á þessum tímum hugsum við með söknuði til allra gleðistund- anna sem við átt höfum saman sem ná allt aftur til menntaskóla- áranna þegar þið Anna Ýr kynnt- ust. Allar útilegurnar, utanlands- ferðirnar, matarboðin, dagspartarnir með börnunum okkar, kvöldstundirnar yfir góðu viskíi og ýmsar hversdagslegar athafnir. Allar þessar frábæru samverustundir sem nú verða að ljúfsárum minningum. Þið Anna Ýr voruð einstök hjón og gott teymi. Við höfum alltaf dáðst að hvernig þið settuð stelpurnar og fjölskylduna ykkar í forgang. Nú búa þær vel að þessum mikla auði og litli dreng- urinn þinn mun alast upp í þinni fallegu minningu. Við sem áfram göngum munum passa upp á fólk- ið þitt og reynum að lifa í þínum Hjalti Már Baldursson ✝ Hjalti MárBaldursson fæddist 9. febrúar 1980. Hann lést 12. nóvember 2015. Útför Hjalta Más fór fram 24. nóvem- ber 2015. anda. Því eins og segir í laginu sem þú hélst svo mikið upp á, „Líttu sér- hvert sólarlag sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að“. Lára og Sturla. Fimmtudagurinn 12. nóvember var sorgardagur og reiðarslag fyrir okkur öll. Það var eins og tíminn hefði verið stöðv- aður, eða eins og segir í fyrsta er- indi kvæðis eftir enska skáldið W.H. Auden: „Stöðvið allar klukkurnar, af- tengið símann, stöðvið gelt hundsins með girnilegu beini, lát- ið píanóin þagna og með daufum trumbudyn berið fram kistuna, gefið syrgjendunum frið.“ Tveir ungir menn í blóma lífs- ins fóru í sína hinstu flugferð. Fé- lagi okkar og flugkennari, Hjalti Már Baldursson, var annar þeirra. Við slíkar aðstæður veit maður hreinlega ekki hvað er hægt að segja. Orð veita litla huggun og lítið er um góð ráð þegar harmurinn er jafn mikill og raun ber vitni. Flugskóli Íslands er eins og lít- il fjölskylda og þegar hún lendir í áföllum sýnum við styrk okkar með því að standa saman. Með tíð og tíma lærum við að lifa með sorginni. Við minnumst Hjalta með hlý- hug sem góðs félaga og vandaðs manns sem vann verk sín af alúð og samviskusemi. Fjölskyldu Hjalta sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Stjórnendur, starfsmenn og nemendur Flugskóla Íslands – Tækniskólans deila sorginni með ykkur. Minning um ungan og glæsilegan mann lifir áfram í hjörtum okkar. Jón B. Stefánsson og Baldvin Birgisson. Nú er komið að kveðjustund. Kveðjustund sem er erfiðari en orð fá lýst. En á svona stundum er mikilvægt að hafa allar þær góðu minningar sem við eigum í huga. Lífið er dýrmæt gjöf sem við eigum að njóta og var Hjalti Már duglegur að minna mann á það. Ef maður þurfti á því að halda að láta berja sér í brjóst, hughreysta eða hvað sem var þá var alltaf gott að heyra í Hjalta. Hann var óspar á hrós, vinsemd og hlýju. Þar átti maður hauk í horni. Hjalti Már var einstaklega lífs- glaður og kunni að njóta augna- bliksins. Honum tókst alltaf að sjá það góða í öllu og öllum. Hann var brosmildur, sérstaklega hlýr og hjartagóður maður. Þeir sem einhvern tíma hafa átt samskipti við Hjalta geta vottað fyrir það að hann var öðlingur. Engum vildi hann illt og var hann alltaf tilbúinn að láta aðra ganga fyrir og bjóða fram hjálp ef á þurfti að halda. Þó að nokkur ár hafi skilið að tókst með okkur Hjalta einstakur vinskapur snemma á lífsleiðinni. Við höfum alltaf fylgst að í gegn- um tíðina. Kynntumst eigin- konum okkar á sama tíma, eign- uðumst börn á sama tíma og nú eru eiginkonur okkar settar með aðeins fimm daga millibili. Hjalti var mikill fjölskyldumaður og leið honum hvergi betur en með fjölskyldunni. Var það einmitt með fjölskyldum okkar sem við áttum margar ómetanlegar stundir. Í útilegum, sumar- bústaðaferðum, heima við eða bara hvar sem var. Hjalti var ein- staklega þolinmóður maður og blíður og endaði það yfirleitt á því að hann var kominn með krakka- skarann í kringum sig að gera eitthvað skemmtilegt. Eins og sonur minn sagði og orðaði svo vel „hann var svo góður“. Það var alltaf gott að hitta Hjalta og þó að stundum hafi liðið of langur tími á milli hittinga hjá okkur var alltaf eins og við hefð- um hist síðast daginn áður og þannig verður það þegar við hitt- umst á ný. Það er margt sem flýgur í huga manns núna. Endalausar minningar og allar góðar. Minn- ing líkt og þegar hann fór í Boss- jakkafötunum að veiða og týndi næstum öðrum spariskónum en ég var algallaður í vöðlum og með nýjustu græjur. En það var hann sem veiddi, ekki ég. Allt sem hann gerði og tók sér fyrir hend- ur gerði hann vel. Það var fátt sem hann gat ekki og hann vildi gera hlutina sjálfur. Hann var alltaf eitthvað að starfa. Í alla staði var hann og er fyrirmynd, ekki bara fyrirmynd barnanna okkar heldur líka mín. Það er erfitt að kveðja góðan vin og frábæran dreng en hann lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hver minning dýrmæt perla, að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki er gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg S.) Það er engin sanngirni fólgin í því að Hjalti Már skuli vera hrif- inn frá okkur svona snemma. Líf- ið er ekki sanngjarnt. En nú er komið að okkur að umvefja Önnu Ýri og krakkana hlýju. Við mun- um í sameiningu faðma og vernda þessa yndislegu fjölskyldu. Elsku Anna Ýr, Elísa Björk, Ester Laufey og fjölskylda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Úlfar og Linda Björk. Góðir vinir eru vandfundnir og eitt það dýrmætasta sem hægt er að eignast í lífinu. Flest eignumst við okkar bestu vini í barnæsku og á unglingsárum og því var það okkur hjónum mikil gæfa að kynnast Hjalta og Önnu á full- orðinsárum því að traustari og heilsteyptari vini er ekki hægt að hugsa sér. Eftir okkar fyrstu kynni varð ekki aftur snúið. Þegar horft er til baka koma upp í hugann marg- ar ljúfsárar minningar sem við munum varðveita vel í hjarta okkar. Þær voru ófáar samveru- og gleðistundirnar með fjölskyld- unni. Má þar m.a. nefna öll skipt- in sem við borðuðum saman, bú- staðar- og rjúpnaveiðiferðirnar, sundferðir og morgunkaffi, brúð- kaupsdaginn og ferðin á tindinn þar sem Hvannadalshnúkur var toppaður að ógleymdri menning- arferðinni okkar til Berlínar árið 2011. Í þeirri ferð tókst ljúfmenn- inu Hjalta að reita mann til reiði, örugglega í fyrsta og eina skiptið á ævinni. Þá hjólaði hann á appelsínu- gula „Rent a bike“-hjólinu í veg fyrir hjólreiðakappa sem kom á mikilli siglingu. Sá féll með látum í malbikið þannig að fínu þröngu buxurnar hans rifnuðu. Þegar sá þýski stóð upp bunaði hann út úr sér öllum ljótustu orðum þýskrar tungu. Ekki batnaði ástandið þegar hinn hjálpfúsi Hjalti kom brosandi og sagði við frussandi Þjóðverjann „English please“. Þessi stutta saga lýsir Hjalta vel. Hann hafði einstakt geðslag, var ávallt í góðu skapi og bar hags- muni annarra fyrir brjósti auk þess að vera mikill húmoristi. Hjalti var sannur vinur okkar allra og hans verður sárt saknað. Eftir standa minningar sem við munum ylja okkur við um ókomna tíð. Elsku Anna Ýr, Elísa Björk, Ester Laufey, Baldi, Beta, syst- kini Hjalta og aðrir aðstandend- ur. Harmur ykkar er mikill og engan veginn hægt að setja sig í þær aðstæður sem á ykkur eru lagðar. Við færum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðj- um algóðan guð að styrkja ykkur og styðja á þeim tímum sem fram undan eru. Nú reynir á okkur fjölskyld- una á Álfhólsveginum að vera sannir vinir. Alda, Björgvin Þór og börn. Mann setur hljóðan. Það er ólýsanlega sárt að þurfa að sjá á eftir Hjalta Má, ungum manni í blóma lífsins. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og geymum minningu um einstak- lega hjartahlýjan, glaðan og heil- steyptan dreng í hjörtum okkar. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur (Höf. ókunnur) Við vottum Önnu Ýri, Elísu Björk, Ester Laufeyju og öllu ykkar fólki okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd vina ykkar í matar- klúbbnum, Ýrr. Við Hjalti Már kynntumst þegar við vorum ráðnir saman hjá Flugfélagi Íslands snemma árs árið 2005. Okkur varð fljótt til vina og mynduðum við góð tengsl með konum okkar og börnum. Stórt skarð hefur nú verið höggv- ið í litla vinahópinn okkar. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóðan við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur.) Takk fyrir þær stundir sem við áttum saman elsku Hjalti, þín verður sárt saknað. Elsku Anna Ýr, Elísa Björk, Ester Laufey og fjölskyldan öll, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að veita ykkur styrk og huggun á þessum erfiðu tímum. Þínir vinir Jóhann Axel og Ásdís Björk. Hjartans þakkir til ykkar sem sýnduð okkur samúð og vináttu vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐMUNDU BJÖRGVINSDÓTTUR, Egilsbraut 19, Þorlákshöfn, áður Hásteinsvegi 64, Vestmannaeyjum. . Björghildur Sigurðardóttir, Stefán Jónasson, Jóna Sigurðardóttir, Guðni Þór Ágústsson, Kári Jakobsson, María Sigurðardóttir, Jón Haukur Guðlaugsson, Petrína Sigurðardóttir, Guðni Friðrik Gunnarsson, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR LÁRUSDÓTTIR, Gauksmýri, Húnaþingi vestra, verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju 27. nóvember næstkomandi klukkan 14. . Jóhann Albertsson, Hrund Jóhannsdóttir, Gunnar Páll Helgason, Albert Jóhannsson, Ása Karen Baldurs. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BIRGIR ÞÓRÐARSON, Tryggvagötu 26, Selfossi, lést á dvalarheimilinu Lundi 15. nóvember. Útförin fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 30. nóvember klukkan 14. Sérstakar þakkir til starfsfólks Lundar fyrir trausta og góða umönnun. . Vilborg Salóme Birgisdóttir, Unnsteinn Marvinsson, Margrét Eygló Birgisdóttir, Auðunn Leifsson, Sigurbjörg Helga Birgisdóttir, Steinlaug Birgisdóttir, Gunnar Kristjánsson, Guðrún Kristmanns Birgisdóttir, Eyjólfur Ólafsson, Benjamín Aage Birgisson, Rikard Arnar Birgisson, Linda Ramdani, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA RANNVEIG KJARTANSDÓTTIR frá Bolungarvík, lést mánudaginn 23. nóvember á LSH Hringbraut. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 3. desember klukkan 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks LSH fyrir alúð og umhyggju. . Víðir Jónsson, Jóna Arnórsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Guðmundur J. Matthíasson, Guðmundur Þ. Jónsson, Vigdís E. Hjaltadóttir, Friðgerður B. Jónsdóttir, Páll Ingi Kristjónsson, Svala Jónsdóttir, Birkir Hreinsson, ömmu- og langömmubörn. Okkar ástkæra FANNEY TRYGGVADÓTTIR, Grund, Reykjavík, áður Mánatúni 4, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 21. nóvember. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 2. desember klukkan 13. . Joseph Lee Lemacks, Tryggvi Friðjónsson, Kristbjörg Leósdóttir, Þórarinn Friðjónsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Gróa Friðjónsdóttir, Vigdís Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG BOGADÓTTIR frá Hvammi í Fljótum, lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar þann 22. nóvember. Jarðsett verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 5. desember klukkan 14. . Kristrún Helgadóttir, Karl Sighvatsson, Ingibjörg Karlsdóttir, Þórir Árnason, Sigurður Karlsson, Kristjana Hafliðadóttir, Helgi Einar Karlsson, Stella Bogadóttir og langömmubörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.