Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 105

Morgunblaðið - 26.11.2015, Síða 105
ÍSLENDINGAR 105 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2015 boltafélagið Körfuna um 1958 og vor- um þá að leika okkur í ÍR húsinu sem þá stóð við Túngötu. Þegar körfu- boltadeild KR var endurvakin 1959, fórum við auðvitað þangað en sá hóp- ur er kjarninn í gullaldarliði KR næstu árin. Þar má m.a. nefna Jón Otta, Helga Ágústsson, Einar Bolla- son, Gunnar Gunnarsson og Kristinn Stefánsson. Við urðum fyrst Íslands- meistarar í þriðja flokki 1961, unnum fyrsta Íslandsmeitaratitilinn í meist- araflokki 1965, en ég náði sjö Íslands- meistaratitlum með meistaraflokki KR á árunum 1965-79, jafn mörgum bikarmeistaratitlum, er margfaldur Reykjavíkurmeistari og á enn leikja- metið með meistaraflokki KR, 386 leiki. Og gamli hópurinn er ekkert hættur. Við mætum á alla leiki og styðjum stöðugt við KR og körfubolt- ann.“ Kolbeinn lék fimmtíu og fimm landsleiki á árunum 1965-86, varð landsliðsfyrirliði í sínum fyrsta lands- leik, tvítugur að aldri. og síðan oftast fyrirliði. Hann var kosinn íþrótta- maður ársins 1966, hefur hlotið fjölda viðurkenninga og var m.a. sæmdur Heiðurskrossi ÍSÍ, Heiðurskrossi KKÍ og Stjörnu KR. Kolbeinn og Guðrún stunda golf, skíði og siglingar og eiga hlut í 29 feta seglskútu í Reykjavíkurhöfn. Þá eiga þau sumarbústað með fjölskyldu Guðrúnar í Norðurárdal í Borgarfirði og Kolbeinn situr í stjórn Golfklúbbs- ins þar, Glanna. Þau ferðast auk þess mikið innanlands sem utan og nota mikið gamla fellihýsið sitt. Fjölskylda Kona Kolbeins er Guðrún Jóhanns- dóttir, f. 9.12. 1952, flugfreyja hjá Ice- landair. Hún er dóttir Vilborgar Kristjánsdóttur, f. 29.3. 1930, fyrrv. deildarfulltrúi hjá forseta Íslands, og Jóhanns Gíslasonar, f. 1.5. 1925, d. 9.5. 1968, flugrekstrarstjóra. Dóttir Kolbeins og Guðrúnar er Kolbrún Heiða, f. 21.2. 1991, við- skiptafræðinemi við HÍ og flugfreyja hjá Icelandair á sumrin. Stjúpsynir Kolbeins eru Atli Freyr Einarsson, f. 17.8. 1975, fram- kvæmdastjóri DHL, kvæntur Önnu Svandísi Gísladóttur og eiga þau tvær dætur og einn son, og Hjalti Már Ein- arsson, f. 29.9. 1978, forstöðumaður vef- og markaðssviðs Nordic Visitor, kvæntur Lindu Ósk Þorleifsdóttir og eiga þau tvær dætur og einn son. Fyrri kona Kolbeins er Bryndís Stefánsdóttir, f. 12.2. 1946, leikskóla- kennari. Börn Kolbeins og Bryndísar eru Páll Hermann, f. 17.4. 1964, þrór- unarstjóri Vörustýringar hjá Eggerti Kristjánssyni, kvæntur Þórunni Pét- ursdóttur og eiga þau þrjár dætur og barnabarn; Sigríður, f. 25.4. 1966 en sambýlismaður hennar er Skúli Sig- fússon og eiga þau tvær dætur; Þórð- ur Hermann, f. 5.1. 1969, fjárfestir, kvæntur Lovísu Sigurðardóttur og eiga þau tvær dætur og einn son. Systkini Kolbeins eru Brynjar, f. 10.6. 1936, kaupmaður á Sauðárkróki; Vigdís, f. 24.5. 1948, flugfreyja í Reykjavík; Sigurbjörg, f. 14.7. 1957, innanhússhönnuður búsett í Brussel. Foreldrar Kolbeins: Páll Sigurðs- son, f. 4.1. 1918, d. 19.3. 2000 hár- skerameistari í Reykjavík, og k.h., Kristbjörg Hermannsdóttir, f. 17.9. 1923, d. 18.11. 1970, húsfreyja. Úr frændgarði Kolbeins Pálssonar Kolbeinn Pálsson Guðbjörg Torfadóttir húsfr. í Fremstuhúsum Hermann Jónsson b. í Fremstuhúsum í Dýrafirði Hermann Hermannsson trésmiður í Rvík Sigurbjörg Þorsteinsdóttir húsfr. í Rvík Kristbjörg Hermannsdóttir húsfreyja í Rvík Kristín Þorláksdóttir húsfr., frá Hofi á Kjalarnesi Þorsteinn Gíslason útvegsb. á Meiðastöðum, af Meiðastaðaætt og Húsafellsætt Guðrún Jónsdóttir hjá Stígamótum Jón Pálsson b. í Fljótstungu í Hvítár- síðu, systursonur Halldóru, ömmu Guðmundar Böðvarssonar skálds Sigurður Ólafsson rakaram. í Eimskipa- húsinu í Rvík Páll Sigurðsson hárskeram. í Rvík Ásgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Rvík Ólafur Jónsson smiður í Rvík Ívar Páll Jónsson upplýsinga- fulltrúi hjá Landsvirkjun Valgerður Pétursdóttir húsfr. á Húsavík Björg Sigríður Hermanns- dóttir húsfr. í Rvík Kristín Pálsd. hjúkrunarfr. Gunnlaugur Jónsson fram- kvæmdastj. og fjárfestir Gísli Ó. Pétursson héraðslæknir á Húsavík Gísli Þorsteinsson skipstjóri í Rvík Hermann Hermannsson markmaður í Val Bergþór Pálsson óperu- söngvari Páll Bergþórsson fyrrv. veðurstofustj. Gyða Bergþórsdóttir skólastjóri Jón Bergþórsson framkvæmda- stj. Nýju sendibílastöðvarinnar Bergþór Jónsson b. í Fljótstungu Áki Jakobsson bæjarstj. á Siglufirði og alþm. í Rvík HermannGunnars- son landsliðsm. í knattspyrnu og handbolta og dag- skrárgerðarm. Jakob Gíslason orkumálastjóri Þorsteinn Gíslason (Steini box) hnefaleikaþjálfari og málarameistari í Rvík Aflaskipstjórarnir Sæmundur, Þorsteinn, Gunnar og Gísli Sæmundssynir Halldóra Jónsdóttir húsfreyja í Rvík Vilhelmína Þorsteinsdóttir húsfr. á Minni-Vatnsleysu Guðrún Pétursdóttir húsfreyja í Fljótstungu, frá Ánanaustum 90 ára Guðmundur Hallgrímsson 80 ára Áslaug Þóra Einarsdóttir Heiðrún Guðmundsdóttir Hilda Björk Jónsdóttir Hreinn Óskarsson Jóhann Tryggvi Ólafsson Kristín H. Aðalsteinsdóttir Viðar Karlsson 75 ára Geir Torfason Ingibjörg E. Ingólfsdóttir Kristbjörg Einarsdóttir Sjöfn Ottósdóttir 70 ára Björn Snorrason Edda Herbertsdóttir Eyþór Bollason Friðrik Rúnar Gíslason Gunnar Ólafsson Jósep Guðmundsson Kjartan Matthías Antonsson Kristín Þórarinsdóttir Matthías Jón Jónsson Monika Pálsdóttir Ragnar Eiðsson Þorsteinn Óskarsson 60 ára Alicja Stanislawa Szczepanska Braim Murial Ramanie Cooray Guðmundur Guðmundsson Guðrún Auður Parel Yngvadóttir Ingibjörg Jóna Jónsdóttir Jóhann Sævarsson Sigríður Jakobsdóttir Sigurlaug Magnúsdóttir Stefanía Kr. Kristjánsdóttir Trausti Elliðason Walentyna Jalocha Þorbjörg Jónsdóttir Þorbjörg Þorkelsdóttir 50 ára Baldur Vilhjálmsson Björg Þuríður Magnúsdóttir Hrafnhildur Árnadóttir Kristinn Ragnar Árnason Magnús Bragason Páll Steingrímsson Ragnheiður K. Valdimarsdóttir Snævar Árdal Hauksson 40 ára Árni Gunnlaugsson Árveig Aradóttir Guðrún Laufey Guðmundsdóttir Gunnar Örn Guðmundsson Halldór Hjalti Halldórsson Hákon Ingi Jörundsson Hulda Lilja Guðmundsdóttir Ingi Björn Sigurðsson Íris Gunnarsdóttir Kári Viðar Rúnarsson Kristín Helga Barkardóttir Nina Faryna Ragna Jenny Friðriksdóttir Rósa Dögg Flosadóttir Sigurjón Þorvaldsson Þórdís Eik Friðþjófsdóttir 30 ára Alban Troka Aron Leifsson Auður Inga ngimarsdóttir Brynjar Þór Hreggviðsson María Dinah Kathrynn R. De Luna Pawel Wasiak Sirus Bernhard Palsson Stígur Jónsson Til hamingju með daginn 30 ára Ómar ólst upp í Þorlákshöfn, býr í Eyjum, stundar sjómennsku og er að ná sér eftir vinnuslys. Maki: Jessý Friðbjarn- ardóttir, f. 1984, kenn- aranemi og leikskólakenn- ari. Dóttir: Magnea Evey, f. 2008. Foreldrar: Sólveig Páls- dóttir, f. 1955, starfsmaður hjá Náttúru, og Erlendur Ómar Óskarsson, f. 1950, sjómaður. Ómar Páll Erlendsson 30 ára Íris ólst upp á Álftanesi, býr þar, lauk stúdentsprófi frá MK og er skólaliði í Kárs- nesskóla. Systkini: Alda Björg Guð- jónsdóttir, f. 1971, og Daníel Þór Guðjónsson, f. 1986. Foreldrar: Hjördís Vil- hjálmsdóttir, f. 1953, hús- freyja, og Guðjón Ágúst Sigurðsson, f. 1954, fram- kvæmdastjóri. Þau búa á Álftanesi. Íris Dögg Guðjónsdóttir 30 ára Brynjar Þór ólst upp í Kópavogi, er nú bú- settur íReykjavík, lauk BSc-prófi í sálfræði við HR og diplomapróf í fisk- eldisfræði frá Hólum og er nú leiðsögumaður í veiðiferðum. Systkini: Anna Hlíf, f. 1981; Stefán, f. 1982, og Hrannar Bjarki, f. 1995. Foreldrar: Hreggviður Óskarsson, f. 1956, og Hafdís Guðný Halldórs- dóttir, f. 1956. Brynjar Þór Hreggviðsson  Pavla Dagsson Waldhauserová hefur varið doktorsritgerð sína í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Heiti ritgerðar- innar er: Uppruni, breytileiki og eig- inleikar ryks í andrúmslofti yfir Íslandi (Variability, origin and physical charac- teristics of dust aerosol in Iceland). Stór hluti rykframleiðslu jarðar kemur frá náttúrulegum rykupp- sprettum. Mörg strjálbýl svæði og eyðimerkur gefa frá sér mikið ryk. Ís- land er á meðal slíkra svæða. Í þessari ritgerð er greint frá þróun rykmeng- unar á Íslandi út frá rannsókn á veð- urmælingum og gerð er grein fyrir til- raunum til að mæla rykmengun í andrúmslofti og áhrif ryks á snjó. Birt eru fyrstu gögn um tíðni og virkni ryk- storma á Íslandi sem og upplýsingar um smásjáreiginleika rykefna, fjölda og massa örefna. Einnig er rykfram- leiðsla frá Íslandi metin, sem og áfok á land, sjó og jökla. Rykframleiðslan nemur 31-40 milljónum tonna sem falla á >500.000 km2 hvert ár, en sumir strókarnir ná >1.000 km burt frá landinu. Niðurstöðurnar sýna að landið er virkasta ryksvæðið á heim- skautasvæðum jarðar. Um 4,5 milljónir tonna falla á jökla en 6-14 milljónir tonna á sjó við landið. Rannsóknirnar sýna að rykið, sem er dökkleitt, minnk- ar endurgeislun af snjó meira en sót, sem annars hefur verið talið mik- ilvirkasta efnið við að draga í sig sól- arljós. Rykið er járnríkt og kann að hafa mikil áhrif á frumframleiðni í sjó og lífríki hans. Rannsóknir á eðl- iseiginleikum ryksins sýna að það er afar frábrugðið ryki frá meginlönd- unum er varðar efnasamsetningu, lög- un, stærð og lit. Um 80% ryksins er dökkt basaltgler sem inniheldur mikið af málmum á borð við járn og tít- aníum. Ryk frá jökuljöðrum inniheldur mikið af mjög fínum efnum sem svipar til rykmengunar frá eldgosum. En þó berast einnig afar stór korn (50-100 míkrómetrar) langar leiðir. Gjósku- korn stærri en 2 mm berast með vindi en vindrof flutti >11 tonn af efni yfir eins metra breiða línu í miklum stormi á Skógaheiði eftir gosið í Eyja- fjallajökli sem er trúlega einn mesti sandstormur sem hefur verið mældur á jörðinni. Líklegt er að ryk frá Íslandi auki á hlýnun heimskautasvæða vegna mikillar tíðni rykstorma á Ís- landi. Rykið veldur ekki aðeins loft- mengun á Íslandi heldur hefur líklega áhrif á loftgæði víða um lönd. Pavla Dagsson Waldhauserová Pavla fæddist í Prag árið 1980 og lauk meistaraprófi í jarðvísindum við Karlshá- skólann í Prag. Hún er nýdoktor hjá Háskóla Íslands, Raunvísindadeild og Jarð- vísindadeild. Hún er gift Ægi Dagssyni ráðgjafa. Dóttir þeirra er Thea Dagsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.