Víkurfréttir - 17.12.1987, Qupperneq 19
VIKUR
JÓLABLAÐ
Hvernig er þá að eiga við
nútímaþjóðfélag?
„Það gekk nokkuð vel
fyrstu árin á eftir hér fyrir
sunnan. Um áramótin ’83-
’84 hætti ég í skólanum og
flutti í bæinn, því mér fannst
ég vera svo ofsalega vernduð
og leit í rauninni ekki á mig
sem fatlaða. Eg skellti mér á
vinnumarkaðinn eiginlega af
þrjósku, því ég vildi fá að
sanna sjálfa mig en það varð
nú ævintýri út af fyrir sig.
í bænum ert þú ókunnug
og það fyrsta sem menn sjá er
fötluð manneskja. Aftur á
móti í smáplássi sem þessu,
hér þekkja þig allir og þú
missir ekki persónuleg ein-
kenni þó þú verðir fyrir slysi.
Eg ætlaði mér að komast í
venjulega vinnu og æddi því
inn á hvern staðinn á eftir
öðrum. Mér var allsstaðar
hafnað með voðalegum
óhreinindum og hreinlega
logið að manni. Allir þóttust
voða almennilegir og vildu
allt fyrir mig gera en þegar
kom að því að hafa samband
við mann aftur, þá „gleymd-
ist“ það alltaf. Svona gekk
þetta mánuðum saman og
tilgangsleysið var orðið svo
mikið að maður nennti ekki
að vakna á morgnana. Að
lokum var það gamla góða
þrjóskan sem kom upp í mér
og ég fór í einn stórmarkað-
inn, þar sem ég vissi að vant-
aði starfsfólk. Eftir að hafa
fengið enn eina neitunina fór
ég til verslunarstjórans og
kom honum til að viður-
kenna að það hefði verið út af
hendinni^ sem ég fékk þessa
neitun. Eg dreif mig því til
forstjórans og krafðist að fá
að vinna í einn dag kauplaust
og ef hann leyfði mér það
ekki skyldi ég stefna honum
hjá öllum mannréttindasam-
tökum í bænum. Hann lét
undan og þennan dag gekk
ég í öll erfiðustu verkin enda
stíf og þrjósk. Það varð líka
léttir þegar mér var tjáð að ég
gæti mætt daginn eftir kl.
átta. A þeim mánuðum, sem
ég vann þar, gekk ég hart að
mér og neitaði að láta hlífa
mér. Þegar ég bað um um-
sögn frá verslunarstjóranum
í lokin sagðist hann skrifa
undir hvað sem er.
Eftir þetta fékk ég vinnu,
hvar sem ég sótti um. Það
virðist vera þessi hindrun
sem fólk sér strax á þér og ef
þú ert ekki nógu aðgangs-
harður sjálfur þá er bara lok-
að á þig. Maður þarf alltafað
vera að sanna fyrir fólki og í
raun var þetta geysigóður
skóli fyrir mig. En svona er
þetta, því miður, og þessi
ómanneskjulega höfnun,
sem maður fær, er sko auð-
veld leið til að brjóta hvern
mann niður.“
Er eitthvað gert til að létta
undir með fó/ki, sem er á
sama báti og þú?
„Að undanskildum þeim
bótum sem maður fær frá
Tryggingastofnun þá kom-
um við aftur að muninum á
smáplássinu og stórborg-
inni. Eftir að ég vissi að ég
væri ófrísk, var það fyrsta
sem mér kom til hugar að
flytja hingað suður. Ef ég
hefði verið ein í bænum að
strögglast hefði ekki nokkur
maður skipt sér af því. Þess
vegna er sú hjartahlýja mót-
taka sem maður fær við að
koma hingað suður ekki við-
miðunarhæf við stórborgina.
Bæði fyrir og eftir fæðingu
barnsins fóru að flæða til mín
gjafir og hamingjuóskir. Vel-
viljinn er svo ofboðslegur
hérna að það er eins og allir
eigi eitthvað í barninu.
Þetta er algjör draumur,
þegar svona lítil dama kem-
ur í líf manns. Hún drífur
mann svo mikið áfram enda
er ég ofboðslega bjartsýn á
lífið og hjálpin kemur manni
hálfa leið.“
Hefurðu nokkuð velt því
fyrir þér hvernig líf þitt hefði
orðið, hefði slysið ekki átt sér
stað?
„I raun hef ég lítið hugsað
um það vegna þess að ég geri
Viðtal og myndir:
Valur Ketilsson.
alla hluti sem ég vil gera. Það
tekur að vísu aðeins lengri
tíma og þarf því lengri sólar-
hring en kannski aðrir. En
fyrir slysið var allt mjög
óljóst hjá mér hvað ég ætlaði
mér að gera. Það var svona
nokkurs konar kvenrétt-
indabrölt á manni sem að
vísu hefur breyst í dag og
þroskinn kennt manni aðlíta
á hlutina öðrum augum.
Þessi Iífsreynsla hefur gefið
manni ofboðslegan þroska,
bæði inn á við og út á við, og
þó svo maður eigi ekki að
óska sér né neinum öðrum
fötlunar, þá hefði ég ekki
viljað missa af þeirri lífs-
reynslu er ég hef gengið í
gegnum sl. ellefu ár.“
Jólatilboð Nesco
er jólatilboð
okkar
Schneider SPP hljóm-
tækjasamstæða á 19.900 kr.
•40 wött. • Lltvarp með FM-, mið- og
langbylgju. • Tengi íyrir hljóðnema og
höfuðtól. • Tvöí'alt kassettutæki. • Tengi
fyrir geislaspilara og aukatengi.
• Hátalarar og skápur fylgja.
• Kostar litlar 19.900 kr. (stgr.)
Schneider midi 2600
hljómstækjasamstæða
á 28.900 kr.
• 80 wött. • Þráðlaus fjarstýring. • Út-
varp með FM-, mið- og langbylgju.
• 5 banda tónjafnari. • Tengi fyrir geisla-
spilara og aukatengi. • Tvöíalt kassettu-
tæki. • Hraðupptaka og stöðug spilun.
• Sjálvirkur veijari fyrir króm- og
normal kassettur. • Plötuspilari með
magnetísku tónhöfði. • Góðir hátalarar
• Svartur skápur.
• Kostar aðeins 23.900 (stgr.)
Schneider midi 2800
hljómtækjasamstæða
á 35.900 kr.
• 100 wött. • Útvarp með FM-, mið- og
langbylgju. • 24 stöðva minni. • 2x7
banda tónjaínari. • Tengi fyrir geisla-
spilara og aukatengi. • Tvöfalt kassettu-
tæki. • Hraðaupptaka og stöðug spilun.
• Sjálfvirkur veljari fyrir króm- og
normal kassettur. • Plötuspilari með
magnetísku tónhöfði. • Vandaðir hátal-
arar. • Svartur skápur.
• Kostar aðeins 35.900 kr. (stgr.)
Fisher 2350 hljómtækjasamstæða
j með hátölurum 2x60 w. og skáp.
• Tvöfalt kassettutæki • Plötuspilari. • Útvarp. • Tónjafn-
ari. • 120 w. magnari. - Kostar aðeins 52.950 (stgr.)
• Einstök hljómgæði. • 3ja geisla
tónhöfuð. • 16 laga minni.
Áður 19.900 - NÚ 14.900
Frístund
Holtsgetu 26 - Njarðvík - Sími 12002
Xenon ferðageislaspilari
• Lítill og þægilegur. • Hægt að
tengja við hljómtæki. • Hulstur
með rafhlöðum fylgir. • Vel
hannaður.
Áður 19.900 - Nú 16.900 (stgr.)
Xenon geislaspilari
á 14.900 kr.