Víkurfréttir - 17.12.1987, Side 24
JÓLABLAÐ
„Bútungurinn
heldur uppi
10 tíma vinnu
á dag“
- segir Rafn Guðbergsson,
fiskverkandi í Garði
mun
juUit
Rafn Guðbergsson í fiskvinnslufyrirtæki sínu
húrra fyrir og afkoman er ansi lítil“.
Verðið á bútungnum er ekkert til að hrópa
Ljósm.: hbb.
í Garðinum er starfrækt lít-
ið fiskvinnslufyrirtæki með
fimm manns í vinnu. Fisk-
vinnslufyrirtæki það er hér
um ræðir er Fiskverkun
Rafns Guðbergssonar, en það
er til húsa í nýju húsnæði við
Iðngarða.
„Við hófum verkun á salt-
fiski í húsinu um mánaða-
mótin ágúst/september,“
sagði Rafn Guðbergsson er
blaðamaður hitti liann að
máli fyrir skömmu.
Auk þess að verka saltfisk
þá hefur Rafn og starfsfólk
hans það að aukabúgrein að
rista bútung.
,,Flvað er bútungur?“
kunna margir að spyrja?
„Bútungur er undirmáls-
fiskur, þorskur. Það er byrjað
á því að skera hann, rista, og
fiskurinn síðan settur beint í
þurrkun en þar er hann í 3 til
4 sólarhringa, en það fer allt
eftir veðráttu. Eftir þurrkun-
ina er honum síðan pakkað í
öskjur og fiuttur út.“
Hvar er markaðurinn fyrir
bútunginn?
„Hann er aðallega fiuttur
til Frakklands. Ég erbúinnað
taka um 50 tonn af blautum
bútung til verkunar, sem gera
30 tonn úr þurrk. Ég sendi frá
mér 400 kassa af bútung í síð-
ustu viku.“
En hvað kostar hráefnið og
hvert er markaðsverð?
,,K ílóið af bútungnum
kostar rúmar 50 krónur í hús.
Verðið úti er ekki til að hrópa
húrra fyrir. En það dekkar þó
laun starfsfólks og hráefnis-
kostnað. Afkoman er ansi
lítil en við getum haldið uppi
10 tíma vinnu á dag fyrir
starfsfólkið, það er fyrir
mestu,“ sagði Rafn Guð-
bergsson, fiskverkandi í
Garði, að lokum.
Persðnu-
legar
skoð-
anir
odd-
vitans
„Sú skoðun, sem fram
kom í máli oddvita Vatns-
leysustrandarhrepps á
fundi SSS á dögunum er
hans persónulega skoðun
en ekki hreppsnefndar-
innar sem slíkrar“ sagði
Jón Gunnarsson, hrepps-
nefndarmaður í Vatns-
leysustrandarhreppi, í
samtali við blaðið vegna
frásagnar um sameining-
armál í næstsíðasta tölu-
blaði. Oddvitinn lét í veðri
vaka á fundinum, að
Vogamenn vildu samein-
ingu.
Um bréf það sem sagt
er að hreppsnefndin hafi
sent öðrum sveitarstjórn-
um á svæðinu um mál
þetta, sagði Jón: „Þetta
bréf var persónulegt bréf
Omars Jónssonar, odd-
vita, til oddvita og for-
mánna bæjarráða hinna
sveitarfélaganna á Suður-
nesjum. Mál þetta hefur
ekki verið afgreitt í
hreppsnefnd Vatnsleysu-
strandarhrepps, hér er því
um persónuleg skrif hans
að ræða.“ _
Cral'ik - Ingunn Fydal
kr. 6.200.-
Grafík,
Ingiberg Magnússon
kr. 7.500.-
Vandaðar
gjafavörur
Viljir þú vin gleðja, þá veldu
honum eitthvað sérstakt.
Hef til sölu úrval málverka
og grafíkmynda eftir
þjóðkunna listamenn.
Grafík,
Ingunn Eydal
kr. 5.800.-
Grafík,
Þórður Hall
kr. 5.500.-
Grafík,
Jón Reykdal
kr. 6.200.-
Teikning,
Kjartan Guðjónsson
kr. 14.800,-
Vatnsnesvegi 12
INNRÖMMUN
SUÐURNESJA Sími 13598