Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 17.12.1987, Page 24

Víkurfréttir - 17.12.1987, Page 24
JÓLABLAÐ „Bútungurinn heldur uppi 10 tíma vinnu á dag“ - segir Rafn Guðbergsson, fiskverkandi í Garði mun juUit Rafn Guðbergsson í fiskvinnslufyrirtæki sínu húrra fyrir og afkoman er ansi lítil“. Verðið á bútungnum er ekkert til að hrópa Ljósm.: hbb. í Garðinum er starfrækt lít- ið fiskvinnslufyrirtæki með fimm manns í vinnu. Fisk- vinnslufyrirtæki það er hér um ræðir er Fiskverkun Rafns Guðbergssonar, en það er til húsa í nýju húsnæði við Iðngarða. „Við hófum verkun á salt- fiski í húsinu um mánaða- mótin ágúst/september,“ sagði Rafn Guðbergsson er blaðamaður hitti liann að máli fyrir skömmu. Auk þess að verka saltfisk þá hefur Rafn og starfsfólk hans það að aukabúgrein að rista bútung. ,,Flvað er bútungur?“ kunna margir að spyrja? „Bútungur er undirmáls- fiskur, þorskur. Það er byrjað á því að skera hann, rista, og fiskurinn síðan settur beint í þurrkun en þar er hann í 3 til 4 sólarhringa, en það fer allt eftir veðráttu. Eftir þurrkun- ina er honum síðan pakkað í öskjur og fiuttur út.“ Hvar er markaðurinn fyrir bútunginn? „Hann er aðallega fiuttur til Frakklands. Ég erbúinnað taka um 50 tonn af blautum bútung til verkunar, sem gera 30 tonn úr þurrk. Ég sendi frá mér 400 kassa af bútung í síð- ustu viku.“ En hvað kostar hráefnið og hvert er markaðsverð? ,,K ílóið af bútungnum kostar rúmar 50 krónur í hús. Verðið úti er ekki til að hrópa húrra fyrir. En það dekkar þó laun starfsfólks og hráefnis- kostnað. Afkoman er ansi lítil en við getum haldið uppi 10 tíma vinnu á dag fyrir starfsfólkið, það er fyrir mestu,“ sagði Rafn Guð- bergsson, fiskverkandi í Garði, að lokum. Persðnu- legar skoð- anir odd- vitans „Sú skoðun, sem fram kom í máli oddvita Vatns- leysustrandarhrepps á fundi SSS á dögunum er hans persónulega skoðun en ekki hreppsnefndar- innar sem slíkrar“ sagði Jón Gunnarsson, hrepps- nefndarmaður í Vatns- leysustrandarhreppi, í samtali við blaðið vegna frásagnar um sameining- armál í næstsíðasta tölu- blaði. Oddvitinn lét í veðri vaka á fundinum, að Vogamenn vildu samein- ingu. Um bréf það sem sagt er að hreppsnefndin hafi sent öðrum sveitarstjórn- um á svæðinu um mál þetta, sagði Jón: „Þetta bréf var persónulegt bréf Omars Jónssonar, odd- vita, til oddvita og for- mánna bæjarráða hinna sveitarfélaganna á Suður- nesjum. Mál þetta hefur ekki verið afgreitt í hreppsnefnd Vatnsleysu- strandarhrepps, hér er því um persónuleg skrif hans að ræða.“ _ Cral'ik - Ingunn Fydal kr. 6.200.- Grafík, Ingiberg Magnússon kr. 7.500.- Vandaðar gjafavörur Viljir þú vin gleðja, þá veldu honum eitthvað sérstakt. Hef til sölu úrval málverka og grafíkmynda eftir þjóðkunna listamenn. Grafík, Ingunn Eydal kr. 5.800.- Grafík, Þórður Hall kr. 5.500.- Grafík, Jón Reykdal kr. 6.200.- Teikning, Kjartan Guðjónsson kr. 14.800,- Vatnsnesvegi 12 INNRÖMMUN SUÐURNESJA Sími 13598

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.