Víkurfréttir - 17.12.1987, Qupperneq 48
JÓLABLAÐ
viKun
pittíí'
Gunnar Tómasson:
Sveitin er skipuð
áhugasömum og
traustum mönnum
Nokkrar sagnir eru í ann-
álum um hrakninga sjó-
manna úr Grindavík í fyrri
tíð.
24. mars 1916 varð mörg-
um Grindvíkingum eftir-
minnilegur. Þann dag reru
öll skip, 24 að tölu, til fiskjar,
flest áttæringar með 11
mönnum á. Þegar skammt
var liðið morguns brast á
ofsaveður af norðri líkt og
hendi væri veifað. Með veðr-
ið beint í fangið tóku menn
nú að berjast að landi en flest
voru skipin 4-6sjómílurund-
an. Fæstum tókst að lenda á
réttum stað, en björguðust
þó upp í Víkurnar vestan við
byggðina og víðar. Flest
skipanna lentu heil eftir
nokkra hrakninga en nokkur
brotnuðu við landtöku án
þess þó að menn skaðaði.
Fjögur skip sem dýpst
voru náðu ekki landi um
sama leiti og önnur. Var því
nokkuð óttast um afdril
þeirra. En hjálpin var nær en
menn grunaði, því innan
skamms höfðu skipshafnirn-
ar fjórar, 38 menn, bjargast
um borð í kútterinn Ester frá
Reykjavík.
Ester hafði leitað vars í
Grindavíkursjó á leið sinni
fyrir Reykjanes. Um borð í
kútternum voru Grindvík-
ingarnir í 3 sólarhringa í
góðu yfirlæti þótt þröngt
væri, en þá komst skipið loks
inn til Grindavíkur. Voru þá
sem heimtir úr helju þeir síð-
ustu af hrakningamönnun-
um 220 af 20 bátum sem
lentu í erfiðleikum þennan
eftirminnilega dag. Aðeins 4
skip náðu lendingu á eðlileg-
an hátt. Má því ljóst vera, að
glatt hafi verið yfirbyggðinni
eftir þessi málalok enda þótt
sjö skip hafi eyðilagst eða
tapast og tafir því orðið
nokkrar frá róðrum.
Bátar frá öðrum verstöðv-
um sunnanlands lentu í mikl-
um erfiðleikum í sama veðri
og nokkrir fórust.
Ég hef valið að hefja mál
mitt á þessari frásögrí af
hrakningum á sjó hér við
Grindavík á öndverðri öld-
inni. Það var einmitt í skugga
slíkra atburða sem Slysa-
varnafélag íslands var stofn-
að 1928 og skipulagt slysa-
varna- og björgunarstarf
hófst hér á landi.
Það var fyrir um það bil
10-15 árum að flestar slysa-
varnasveitir landsins stóðu á
ákveðnum tímamótum. Þær
voru að breytast úr því að
vera sérhæfðar t.d. sjóbjörg-
unarsveitir, yfir í að vera al-
hliða björgunarsveitir, sem
sinna hverskonar beiðni um
hjálp eða aðstoð. Samhliða
því hófust svo frekari tækja-
kaup og þar af leiðandi ýmis-
konar fjáraflanir.
Lengst af hafði Slysavarn-
asveitin Þorbjörn yfir að
ráða skúr, sem var tækja-
geymsla sveitarinnar eða frá
árinu 1933, rétt eftir strand
Skúla fógeta. Það var svo ár-
ið 1977 að hafist var handa
við að byggja stærra hús fyrir
tæki og bíla sveitarinnar en
það var byggt við gamla ver-
búð, sem nýlega hafði verið
gefjn sveitinni.
I dag eru aðalbækistöðvar
sveitarinnar í þessum hús-
um, sem við nefnum einu
nafni „Hrafnabjörg". Þarna
eru haldnir fundir sVeitar-
innar og aðgerðum stjórnað
Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason rennur í sjóinn. - innfellda myndin er af Gunnari Tómassyni.
þegar svo ber undir.
Slysavarnasveitin er vel
akandi, t.d. á hún 3 vel búna
bíla, hvern ágætan til síns
brúks. Þá á sveitin hinn
ágætasta björgunarbát „Odd
V. Gíslason“.
Og nú síðast eignaðist
sveitin stórt og gott báta-
skýli fyrir Odd og stóra
MAN bílinn, ásamt sjósetn-
ingarrennu, sem hafnarsjóð-
ur stóð straum af kostnaði
við og er hún vel þegin.
Það hefur ætíð verið gott
að manna slysavarnasveitina
áhugasömum og traustum
mönnum og frekar þurft að
takmarka fjöldann en hitt.
Nú í dag eru í sveitinni 60
menn, þar af ein kona, og
mættu þær vera fleiri.
Til að reka slíka slysa-
varnasveit og kaupa allskon-
ar tæki hefur þurft margs-
konar fjáröflunarleiðir. Það
hefur verið fundið upp á
ýmsu svo sem söfnun og sölu
á netariðli, flugeldasölu,
jafnvel vegalagningu. Ekki
má gleyma fisköfluninni,
sem er orðin árviss hjá sveit-
inni, en þá gefa sjómenn og
útvegsmenn 1 mál af fiski úr
hverjum bát. Þessifiskurhef-
ur verið verkaður t.d. sem
V erslunarbanki
f
Islands hf.
Útibú - Keílavík
óskar viðskiptavinum sínum og
öðrum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsœls komandi árs,
og þakkar viðskiptin á árinu
sem er að líða.
saltfiskur eða hann ísaður í
kassa og sendur á erlendan
markað. Þessi fjáröflun hef-
ur verið sveitinni mjög mikil-
væg og kunnum við sjó-
mönnum og útvegsmönnum
bestu þakkir fyrir örlæti
þeirra.
Þá hefur sveitin notið
margra góðra gjafa frá vel-
unnurum sveitarinnar og
verða þær seint fullþakkað-
ar.
Ég held ég móðgi engan þó
ég nefni einn aðila, en það er
Slysavarnadeildin Þórkatla,
en þær hafa verið óþreytandi
að leggja okkur lið t.d. eiga
þær veg og vanda að þessum
veitingum sem hér verður
boðið upp á.
Þá hefur sveitin alltaf átt
vísan stuðning hjá stjórn og
starfsfólki Slysavarnafélags
íslands, sem við metum mik-
ils.
Það hefur oft verið leitað
aðstoðar slysavarnasveitar-
innar og oft hefur hún verið
beðin um að vera viðbúin.
Helstu verkefnin hafa verið
leitir að týndu fólki, aðstoð
við vegfarendur, björgun
manna úr sjávarháska,
aðstoð við húseigendur í of-
viðrum, þátttaka í almanna-
varnaæfingum og samæfing-
um björgunarsveita og verið
viðbúin væntanlegri nauð-
lendingu flugvélar. Svona
mætti lengi telja. Allir sem
hér eru inni þekkja þetta af-
skaplega vel.
Ég vil svo að síðustu þakka
öllum samstarfsaðilum okk-
ar hér i bæ og utanbæjar kær-
lega fyrir ánægjulegt og
árangursríkt samstarf á liðn-
um árum.
Sendum starfsmönnum
okkar, svo og öðrum
Suðurnesjamönnum
bestu óskir um
gleðileg jól, gott og
farsœlt komandi ár.
Þökkum samstarfið á
árinu sem er að líða.
Dverghamrar
Keflavíkurflugvelli