Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015
HEIMURINN
KÚBA
HAVANA Papa, ný m way
myhefur verið frumsýnd e
1tekin er upp á Kúbu frá
ptikunnugt er dáði Hemin
gunskömmu eftir að hann
BANDARÍKIN
WASHINGTON
Enda þótt Donald
Trump hafi mánuðum
saman mælst með
mest fylgi þeirra
sem vilja hljóta
útnefningu Repúblíkanafl
forsetakosninganna á næ
ekki öruggur
Clinton 20 p
Obama á þe gab
fyrir átta áru
repúblíkönum
með mest fy
forsætisráðher ákvörðun sína
að taka Muammar Gaddafi L leiðtoga í sátt
árið 2004. „Eyðimerkursamkomulagið umdeilda
hafi mögulega komið í veg r að efnavopn hafi
fallið í hendur Ríkis
íslams en það sneris
einmitt um útrý
pna gegnvoefna
yi i bend
ngrunein
ÝRL
DAMAS
ýjan skhafa kynnt n
ttmlokuska ð fti
uvarandi str
inborgarastríðsins
katturinn leggjast
r. Þykirem er vinsæll sam
semtinrks u
auknumsteinh
Þingkosningarnar í Venesúelasíðasta sunnudag voru ekkibara ósigur fyrir sósíal-
istaflokkinn þar í landi heldur reið-
arslag.
Árið 2008 sameinuðust stjórn-
arandstöðuflokkarnir undir merkj-
um MUD, Mesa de la Unidad De-
mocrática, með það fyrir augum að
velta PSUV, sósíalistaflokki Hugo
Chávez úr sessi í þingkosningunum
sem fram fóru 2010. Þó MUD tæk-
ist að bæta við sig miklu fylgi það
árið og hrifsa til sín 22 nýjum
þingsætum þá vann PSUV nauman
sigur og fékk með 48,2% atkvæða
99 af 165 sætum.
Nú hefur hlutfallið á þinginu
snúist við og gott betur. Á sunnu-
dag veittu kjósendur MUD 56,2%
atkvæða og 109 þingsæti. Hefur
MUD nægilega sterka stöðu á
þinginu til að standa uppi í hárinu
á forsetanum Nicolas Maduro, arf-
taka Chávez heitins, og gæti jafn-
vel – mjög naumlega – efnt til
þjóðaratkvæðagreiðslu til að koma
Maduro úr forsetastólnum. Kjör-
sókn var góð, rúm 74%, og viðhorf
kjósenda skýrt.
Blússandi verðbólga og
skortur á nauðsynjum
Maduro er að vonum óhress, enda
hafa sósíalistarnir ráðið þinginu í
sextán ár. Hann hefur lengi sakað
MUD-flokkana um að heyja „efna-
hagslegt stríð“ á hendur landinu og
kennir þeim um það hörmulega
ástand sem er á efnahag landsins.
Er alkunna að mikill skortur er
orðinn á nauðsynjavörum í þessu
landi þar sem allt virtist einu sinni
vera á uppleið. Verðbólgan er í
hæstu hæðum og matvælaverð
meira en tvöfaldast milli ára.
Stefnir í 10% samdrátt landsfram-
leiðslu á þessu ári og Alþjóðabank-
inn spáir þvi að atvinnuleysishlut-
fallið verði 18,1% árið 2016.
Gjaldmiðillinn er í frjálsu falli og
glæpaalda gengur yfir landið svo
að morðtíðnin er hvergi hærri. Er
ekki að sjá í tölunum að Venezúela
býr að heimsins stærstu olíu-
lindum.
Er hætta á ofbeldi?
Er samt óvíst hvort ráðlegt væri
fyrir MUD að leggja til atlögu við
Maduro. Næstu forsetakosningar
eru á dagskrá 2018 en Maduro
sigraði naumlega í kosningunum
2013 með 50,6% atkvæða á meðan
fulltrúi MUD hlaut 49,1%, og
nokkuð ljóst hvernig færi ef efnt
yrði til nýrra kosninga í dag.Vand-
inn við að reyna að reka Maduro
úr starfi með þessum hætti er ekki
hvað síst að herinn hefur stutt
sósíalistana, og ekki óþekkt í þess-
um heimshluta að stjórnendur
hersins grípi inn í með valdi þegar
pólitíkin tekur stefnu sem þeim
hugnast ekki. Bætir ekki úr skák
að margir eru með puttana í olíu-
tekjum landsins og því eðlilega
hræddir við hvers kyns róttækar
breytingar á ríkjandi ástandi.
Maduro hefur líka þótt mjög
herskár í ummælum sínum upp á
síðkastið og jafnvel ýjað að því að
hans fólk muni grípa til ofbeldis, ef
það er það sem þarf til að verja og
viðhalda þeirri stefnu sem Chávez
markaði landinu fyrir sautján ár-
um.
Lauslega tengd hreyfing
Síðan má ekki gleyma að MUD-
hreyfingin er samsett úr mörgum
flokkum sem eru ekki allir á sömu
línunni. Flóran spannar allt frá
hörðum vinstriflokki sem varð til
við klofning úr kommúnistaflokki
Venesúela árið 1971, yfir í kristi-
legan hægriflokk. Bara það eitt að
marka skýra stefnu fyrir MUD-
framboðið var heilmikil áskorun.
„Það er eitt að sameinast í andstöðu
[við sósíalistaflokkinn] og annað að
sameinast við stjórnun landsins,“
sagði Jesús Torrealba, leiðtogi
MUD í viðtali við Financial Times.
Vinsamleg sambúð með Maduro
er nær útilokuð. Fylkingarnar tvær
hatast hvor við aðra og allar líkur
á hörðum átökum á öllum stigum á
meðan sósíalistar halda enn vold-
ugu forsetaembættinu.
Meðal þess sem gæti rekið fleyg
á milli MUD-flokkanna er sú ósk
leiðandi flokka í samstarfinu að
koma í gegnum þingið lögum sem
myndu veita pólitískum föngum
uppgjöf saka. Einn af leiðtogum
MUD-flokkanna, Leopoldo López
var fyrir skömmu dæmdur til
þrettán ára fangelsisvistar fyrir
hlut sinn í mótmælum snemma árs
2014 sem fuðruðu upp í átökum og
lauk með því að 43 lágu í valnum.
Þótti margt bogið við meðferð
dómstóla á máli López og málum
annarra leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar sem hafa verið fangelsaðir.
Venesúela
snýr baki við
vinstrinu
KJÓSENDUR VIRÐAST HAFA FENGIÐ NÓG AF HREMMING-
UNUM SEM EFNAHAGSSTJÓRN SÓSÍALISTA HEFUR KALLAÐ
YFIR LANDIÐ. EN STÓRSIGUR STJÓRNARANDSTÖÐUNNAR
UM SÍÐUSTU HELGI ÞÝÐIR EKKI AÐ HLUTIRNIR MUNI
STRAX FARA BATNANDI.
Venesúelska forsetaembættið dreifði þessari mynd af fundi sem Nicolás Maduro boðaði ráðherra sína á þegar nið-
urstöður kosninganna voru ljósar. Maduro bað ráðherrana að segja af sér, en fundarstaðurinn var gröf Hugo Chavez.
AFP
* „Einkageirinn, ekki að öllu leyti en að mestu, sam-anstendur af lötum sníkjudýrum. Landinu stafarhætta af þeim.“ Nicolás Maduro AlþjóðamálÁSGEIR INGVARSSON
ai@mbl.is