Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015
* Á meðan íslenskunnar nýtur við munumvið skilja betur hver við erum og hvaðanvið komum.
Sigmundur Ernir Rúnarsson á hringbraut.is
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
UM ALLT LAND
REYKJANESBÆR
Útgreidd fjárhagsaðstoð hjá
en í sama mánuði í fyrra.
BÚÐARDALUR
Eyjólfur Sturlaugsson
SKAGAFJÖRÐUR
Í tilefni af 60
ára afmæli FISK
Skagfirðingum
boðið til
tónleikunum
verða sunnudaginn 20. desember og hefjast
hinir fyrri kl. 17 og þeir síðari kl. 20.
BREIÐDALUR
Fjórðungur um 200 íbúa í
Breiðdalshreppi mætti til
fundarins Breiðdælingar
móta framtíðina sem
haldinn var nýlega. Þar
var leitað hugmynda
til sóknar. Veittir voru
styrkir til uppbyggingar
frá Byggðastofnun og
meðal annars fékk Hið
austfirzka bruggfjelag 500
þús. kr.
upp til foreldra ungra barna.
barna 9-18 mánaða geta sótt um greiðslur sem
verða 30 þús. kr. á mánuði.
Birgit Kositzke hefur í fjögur ár ræktaðkanínur til manneldis á Syðri-Kárastöðum, skammt frá Hvamms-
tanga. Kanína ehf., fyrirtækið sem hún er
aðaleigandi að, glímir við fjárhagsvanda eins
og er, en hún freistar þess nú að afla fjár til
rekstrarins.
Búskapurinn hófst 2011 þegar Birgit átti
fjórar kanínur, karlinn Daddy Cool og þrjú
kvendýr í skúr ofan við Hvammstanga, en
starfsemin vatt heldur betur upp á sig. „Við
höfum slátrað reglubundið síðan í janúar á
þessu ári en ekki í miklu magni; ég held við
höfum slátrað um 650 kanínum á árinu og
við ætlum að framleiða fleiri sláturdýr. Það
þarf að fjárfesta meira næstu sex mánuði en
skv. áætlun mun fyrirtækið standa undir
rekstrinum eftir þann tíma. Ég setti peninga
í fyrirtækið en hef ekki meira og mér þætti
hundleiðinlegt ef ég þyrfti að gefast upp,
þegar ég veit að eftir sex mánuði gæti stað-
an verið orðin góð,“ segir Birgit í samtali við
Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Safnar á Karolina Fund
Hún hyggst setja af stað fjársöfnun á Karo-
lina Fund á netinu auk þess sem hún býður
fólki að kaupa sútuð kanínuskinn í forsölu,
eins og sagt er frá hér til hliðar. „Skinnin
nota menn á ýmsan hátt; sumir sem skraut,
handverksfólk getur líka unnið úr þeim, til
dæmis föt, og svo eru nýfædd börn líka
stundum látin liggja á kanínuskinni.“
Birgit seldi kanínukjöt á matarhátið í
Hörpu í ár og kjöt frá henni er í boði á
nokkrum veitingastöðum; Kolabrautinni í
Hörpu, Coconut úti á Granda, það fæst á
Bergi, veitingahúsi á Icelandair hótelinu í
Vík í Mýrdal, og á Sjávarborg á Hvamms-
tanga. „Eini möguleiki fólks á að kaupa sér
kanínukjöt til að elda sjálft er Matarbúrið
úti á Granda og það lítur vel út með sölu.“
Fólki gafst kostur á að smakka kanínukjöt
á matarhátíðinni í Hörpu. „Kokkarnir á
Kolabrautinni elduðu það og mörgum kom á
óvart hve kjötið er gott. Kanínukjöt er mjög
hollt en það verður aldrei ódýrt. Þrátt fyrir
það er ég mjög bjartsýn en það tekur auðvit-
að tíma að fá fótfestu á markaðnum. Íslend-
ingar eru vanir að borða mikið kjöt og mér
finnst kanínukjöt spennandi valkostur í við-
bót við það sem er til staðar.“
Birgit er frá Þýskalandi. „Heima vorum
við alltaf með 4-5 kanínur og það kom mér
á óvart þegar ég kom til Íslands að kjötið
væri ekki til hér. Lambakjötið er mjög gott
en mig langar að auka fjölbreytni. Þegar ég
spurði hvers vegna hér væri ekki kanínu-
kjöt í boði sagði fólk að það borðaði ekki
vini sína! Þegar ég ákvað að búa á Íslandi
langaði mig að vinna við eitthvað sem ég
hef gaman af og ákvað því að reyna þetta.
Fór á námskeið og lærði að búa til við-
skiptaáætlun en það var frekar erfitt því
engin fordæmi voru fyrir þessu. Ég notaði
því íslensku aðferðina: ákvað að prófa og
sjá svo bara til!“
HÚNAÞING VESTRA
Bjartsýn á kanínurækt til manneldis
BIRGIT KOSITZKE REYNIR AÐ SAFNA
FÉ Í REKSTUR KANÍNU EHF. TIL AÐ
ÞURFA EKKI AÐ HÆTTA. SEGIR
VANDAMÁLIÐ TÍMABUNDIÐ OG
VONAST TIL AÐ GETA HALDIÐ
ÁFRAM ÞVÍ BJART SÉ FRAMUNDAN.
Birgit Kositzke: Kanínukjöt er hollt og gott og skemmtileg viðbót við kjötmarkaðinn á Íslandi.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Birgit býður fólki að kaupa sútuð kan-
ínuskinn í forsölu. „Það er aðferð sem
gæti reynst mér mjög vel til að fá pen-
inga í reksturinn. Ég á nóg hráefni og
býð fólki að kaupa skinn fyrirfram; að
borga núna fyrir jólin en fá skinnin af-
hent snemma á næsta ári þegar búið
verður að súta þau. Hugmyndina fékk
ég þegar kunningi minn keypti rófuflög-
ur með þessum hætti fyrirfram, til þess
að styrkja viðkomandi rekstur. Það
finnst mér mjög sniðugt og kanínuskinn
gæti auðvitað verið falleg jólagjöf!“ segir
Birgit við Morgunblaðið.
Hún nefnir að frumkvöðlar fái gjarnan
styrk til að þróa hugmynd en styrkveit-
ingu ljúki oft áður en verkefnið sé kom-
in það langt að starfsemin sé farin að
standa undir sér. „Þannig er staðan ná-
kvæmlega hjá okkur núna. Kanínukjöt
framleitt á vistvænan hátt á Íslandi er
komið á markið og ég er mjög bjartsýn
á framhaldið en uppbyggingin hefur ekki
gengið jafn hratt og vonast var til, verk-
fall dýralækna tafði okkur til dæmis dá-
lítið,“ segir Birgit.
Viltu skinn
í forsölu?