Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2015, Qupperneq 48
Leynivinaleikur
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2015
Frá: Ómari Ragnarssyni
Til: Arons Einars
„Ég er ekki alveg nógu góður í
jólagjöfum en mér dettur helst í hug
að gefa Aroni Einari bók og þá geri ég
ráð fyrir því að hann hafi smekk fyrir
bókum um íþróttir og þá sérstaklega
fótbolta,“ segir Ómar Ragnarsson
fréttamaður um val sitt á jólagjöf
handa Aroni Einari Gunnarssyni
knattspyrnumanni. „Bókin sem ég hef
í huga, Skagamenn skoruðu mörkin,
fjallar að vísu um gamla íslenska
fótboltann en ég trúi ekki öðru en
hann muni hafa gaman af henni.“
Frá: Aroni Einari
Til: Guðrúnar Ásmunds
„Ég sá á facebooksíðunni hennar að hún hefur
gert „like“ á Tékk Kristal við Laugaveg þannig
að ég hugsa að ég gefi henni Iittala-könnu
sem fæst þar; Ultima Thule,“ segir Aron Einar
Gunnarsson knattspyrnumaður um val sitt á
jólagjöf til Guðrúnar Ásmundsdóttur leikkonu.
„Ég sé það fyrir mér að Guðrún verði með
gott matarboð milli jóla og nýárs og þá kemur
þessi kanna að góðum notum fyrir maltið og
appelsínið. Og hver fílar ekki kristal?“
Frá: Guðrúnu Ásmunds
Til: Hafdísar Huldar
„Ég las einhvers staðar í blaðaviðtali við Hafdísi
Huld að hún sé að gefa út barnaplötu nú fyrir
jólin en fyrir mörgum árum gaf ég sjálf út bók fyrir
börn og finnst því eitthvað viðeigandi að gefa henni
eintak af henni,“ segir Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
um val sitt á jólagjöf til Hafdísar Huldar Þrastardóttur
tónlistarkonu. Guðrún bætir við að fyrir mörgum árum
hafi þær Hafdís Huld leikið saman í bíómynd.
„Ég hef nú ekki rekist á hana lengi en ég kunni svo
óskaplega vel við hana. Bókin heitir Lóma og fyrir tilviljun
fann barnabarn mitt nokkur eintök uppi á háalofti svo
að hún fær eitt af þeim. Þá langar mig líka að gefa henni
falleg heyrnartól með í pakkann.“ (Þess má geta að
Guðrún lét ekki þar við sitja heldur pakkaði
þessu inn og lét senda Hafdísi Huld.)
Frá: Hafdísi Huld
Til: Bigga löggu
„Ég sá um daginn að Biggi lögga
stofnaði síðuna „Neyslubrjálæðið
kvatt“ á Facebook. Þannig að í
leynivinaleik myndi ég gefa honum eina af
hænunum mínum og koma honum þannig
af stað í smá sjálfsþurftarbúskap,“ segir
tónlistarkonan Hafdís Huld Þrastardóttir
um val sitt á jólagjöf til Birgis Arnar
Guðjónssonar, eða Bigga löggu. „Þetta
er vistvæn gjöf sem gefur og ég hef góða
reynslu af því að gefa fólki hænur.“
Frá: Heiðu Rún
Til: Ómars Ragnarssonar
„Ég ætla að gefa Ómari allar David
Attenborough-þáttaseríurnar sem
hann hefur gefið út; svo sem Planet
Earth, Humans og þá nýjustu,The
Hunt,“ segir Heiða Rún Sigurðardóttir
leikkona um val sitt á jólagjöf til Ómars
Ragnarssonar fréttamanns. „Ég held að
hann myndi hafa mjög gaman af þeim
gjöfum enda má segja að Ómar sé
David Attenborough Íslendinga.“
Frá: Vigdísi Gríms
Til: Heiðu Rúnar
„Mig langar að gefa Heiðu Rún ljóða-
bókina Frelsi eftir LinduVilhjálmsdóttur
og helgardvöl á Hótel Djúpavík í
Árneshreppi á Ströndum,“ segir
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur um
val sitt á jólagjöf til Heiðu Rúnar
Sigurðardóttur leikkonu. „Þar mun
hún fá kyrrð og ró í stórkostlegu
umhverfi til að lesa bókina.“
Frá: BragaValdimar
Til: Vigdísar Gríms
„Ég myndi vilja gefa henni brauðvél. Bara
svona litla og netta, sem tekur ekki mikið
pláss,“ segir Bragi Valdimar Skúlason,
Baggalútur með meiru, um val sitt á jólagjöf
handaVigdísi Grímsdóttur rithöfundi. „Það
er gefandi og göfugt að baka sér og öðrum
brauð. Brauðið hefur líka átt undir högg að
sækja undanfarið og orðið fyrir alls kyns
fordómum, ég held því væri borgið hjá henni
Vigdísi. Ég myndi alla vega sofa betur. En
kannski á hún
brauðvél, þá bara
skiptir hún henni
og fær sér eitthvert annað
mannbætandi heimilistæki.“
Skiptust á
jólagjöfum
Í TILEFNI KOMANDI HÁTÍÐAR FÉKK SUNNUDAGSBLAÐ
MORGUNBLAÐSINS FÓLK ÚR ÝMSUM ÁTTUM TIL AÐ
SKIPTAST Á JÓLAPÖKKUM. ÞETTA VAR LEYNIVINA-
LEIKUR ÞANNIG AÐ HVERJUM OG EINUM VAR ÚT-
HLUTAÐ LEYNIVINI SEM HANN ÁTTI AÐ GEFA JÓLA-
PAKKA EN SÁ HINN SAMI VISSI EKKI HVAÐ HANN
SJÁLFUR MYNDI FÁ NÉ FRÁ HVERJUM FYRR EN HÉR
MEÐ. EINA SKILYRÐIÐ VAR AÐ HÆGT VÆRI AÐ PAKKA
GJÖFINNI INN EN ANNARS VAR ÞETTA FRJÁLST VAL.
LEIKURINN VAR EKKI TIL ÞESS GERÐUR AÐ FÓLK ÞYRFTI
RAUNVERULEGA AÐ GEFA ÞESSAR GJAFIR HELDUR
VAR ÞETTA LAUFLÉTTUR ÍMYNDUNARLEIKUR.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is