Morgunblaðið - 15.12.2015, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
!!
"#
$$
!%#
#!!"
%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#%
"
$%
##
#$
"!$
$!"
!
%#
!#
##
"$
$
#
#%"
"$%
$!
! %
%"
$%
#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Greiningardeildir spá 0,2% til 0,4%
hækkun vísitölu neysluverðs í desem-
bermælingu Hagstofu Íslands sem birt
verður þriðjudaginn eftir viku, 22. des-
ember. Greiningardeild Arion banka og
hagfræðideild Landsbankans spá 0,2%
hækkun neysluvísitölu sem myndi leiða
til lækkunar ársverðbólgu úr 2,0% í
1,9%. Greining Íslandsbanka spáir
0,3% hækkun vísitölunnar og því
óbreyttri 2,0% verðbólgu. Capacent
birtir einnig verðbólguspá þar sem gert
er ráð fyrir 0,4% hækkun neysluvísitölu
og 2,1% verðbólgu. Allar eru spárnar þó
langt undir 2,5% verðbólgumarkmiði
Seðlabankans.
Spá því að verðbólgan
verði áfram í kringum 2%
● Viðskiptaráð Íslands telur að nýleg
úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á
skatt- og bótakerfinu hér á landi sé
áfellisdómur yfir þeirri húsnæðisstefnu
sem er nú við lýði. VÍ segir vaxtabætur
ríkissjóðs fá falleinkunn og sagðar ákaf-
lega flóknar (e. extremely complex) og
hvetji til of mikillar skuldsetningar
heimila. AGS gagnrýni stjórnvöld fyrir
að starfrækja þrjú ólík stuðningskerfi
sem hafi öll sama markmið, þ.e. að
tryggja efnaminni fjölskyldum húsnæði,
í stað eins heildstæðs kerfis.
Úttekt AGS áfellisdómur
yfir húsnæðisstefnu
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Olíumarkaðir voru opnaðir með
nokkrum látum í gær og á tímabili var
verðið á tunnu af Brent-hráolíu komið
í 36,33 Bandaríkjadali en svo lágt hef-
ur verðið ekki verið síðan í niður-
sveiflunni í desember 2008. Sú lækk-
un sem markaðurinn horfði upp á í
gær kemur í kjölfar frekari lækkana í
liðinni viku en þá tilkynntu forystu-
menn OPEC-ríkjanna að ekki yrði
dregið úr olíuframleiðslu á þeirra
vettvangi.
Hallsteinn Arnarson, sérfræðingur
hjá IFS-greiningu, segir að hráolíu-
markaðurinn einkennist af mikilli
óvissu.
„Hvorki OPEC-ríkin né Bandarík-
in virðast ætla að draga úr fram-
leiðslu svo nokkru nemi og birgða-
staðan á heimsvísu er mikil. Minni
hagvöxtur og eftirspurn í nýmarkaðs-
ríkjum hefur neikvæð áhrif og þá rík-
ir mikil óvissa um það hversu mikið af
olíu muni koma á markaðinn frá Íran
en aflétting viðskiptabanns á landið
opnar á þann markað á nýju ári.“
Hallsteinn bendir þó á að nýjasta
spá Bandarísku orkumálastofnunar-
innar (e. EIA) geri ráð fyrir því að
tunnan af Brent-hráolíunni kosti að
meðaltali 56 Bandaríkjadali á næsta
ári.
„Það verð er töluvert frá því verði
sem við sjáum í dag. Að okkar mati er
verð á hráolíu í þeim fasa í dag að það
sé að reyna að finna botninn, og að
það sé í raun og veru ómögulegt að
segja til um hvar eða hvenær það ná-
kvæmlega gerist. Fyrsta vísbending
um mögulegan botn og viðsnúning í
Brent-hráolíuverði væri sannfærandi
hækkun upp fyrir 47 dollara á tunn-
una,“ segir Hallsteinn. Hækkun upp í
47 dollara jafngilti 26% hækkun á
verði olíunnar frá því verði sem fæst
fyrir hana á mörkuðum í dag.
Offramboðið leynir sér ekki
Hallsteinn segir að svokallað „cont-
ango“-ástand ríki nú á markaðnum.
Það geri markaðsaðilum kleift að
hagnast með því að kaupa og geyma
olíu en láta hana af hendi fyrir hærra
verð í framtíðinni.
„Þetta er augljóst dæmi um of-
framboð á markaðnum. Lækkunin nú
tengist mögulega líka því að markaðs-
aðilar eru farnir að færa sig úr
janúarsamningunum og yfir í samn-
ingana með afhendingu í febrúar, sem
sést meðal annars á því að meiri við-
skipti hafa átt sér stað með þá síð-
arnefndu frá 10. desember síðastliðn-
um. Svo virðist sem aðilar á markaði
búist ekki við miklum verðhækkunum
á næstunni.“
Vinnur gegn verðbólgunni
Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Íslandsbanka, seg-
ir þróunina á olíumörkuðum hafa
áhrif hér heima.
„Bensínið vegur þungt í vísitölu
neysluverðs og eftir því sem það hef-
ur farið lækkandi þá hefur það unnið
gegn verðbólguþrýstingi. Þetta gerist
á sama tíma og gengi krónunnar hef-
ur styrkst. Það er heppilegt að þetta
skuli gerast á þessum tíma þegar aðr-
ir þættir á borð við kjarasamninga
þrýsta á verðlagið upp. Það er hins
vegar ekki hægt að treysta á að þessi
þrýstingur verði til staðar, næst þeg-
ar innlendur verðbólguþrýstingur
eykst.“
Þá segir Ingólfur að verðbólguspá
Seðlabankans hafi ekki staðist og að
þróun olíuverðs hafi þar meðal annars
haft áhrif.
„Seðlabankinn hefur ofspáð verð-
bólgunni undanfarið og við teljum að
verðbólgan muni haldast talsvert
undir nýjustu spá Seðlabankans
næstu misseri. Reiknum við því með
að verðbólgan verði um og á tíma
undir 2% fram á mitt ár en að hún
aukist þá og sigli yfir 2,5% verðbólgu-
markmið Seðlabankans á seinni
helmingi ársins. Er þetta talsvert
hagfelldari verðbólguþróun en Seðla-
bankinn reiknar með.“
Skjálfti á olíumörkuðum
Morgunblaðið/Júlíus
Verðþróun Verð á eldsneyti hefur lækkað á síðustu misserum og enn heldur heimsmarkaðsverð áfram að hrynja.
Verð á Brent-hráolíu ekki lægra síðan 2008 Mun að öllum líkindum hafa áhrif
á verðlag hérlendis Tunnan stóð í 61 Bandaríkjadal fyrir ári en kostar nú 37 dali
Skósala jókst um 9,3% í nóvember
frá sama tíma í fyrra jafnvel þó að
verð á skóm hafi hækkað lítillega.
Hins vegar hefur sala á fatnaði
minnkað um 3,1% þó að verð á fötum
hafi verið 3,1% lægra. Þetta kemur
fram í nýrri samantekt Rannsóknar-
seturs verslunarinnar. Það virðist
því sem aðgerðir ýmissa fataversl-
ana, sem fólust í verðlækkun á fötum
til að hvetja til aukinna kaupa, hafi
ekki skilað sér og bendir rann-
sóknarsetrið á að skýringuna megi
ef til vill rekja til aukinna kaupa á
fötum frá útlöndum, ýmist í gegnum
netverslanir eða í ferðum til útlanda.
Sala á minni raftækjum jókst um
39,5% og 19,8% aukning varð á sölu
stórra raftækja. Velta í dagvöru-
verslun jókst um 0,4% á breytilegu
verðlagi í nóvember miðað við sama
mánuð í fyrra og minnkaði um 2,8% á
föstu verðlagi. 10% aukning varð í
veltu byggingarvöruverslana og seg-
ir í samantektinni að að baki þessari
aukningu séu bæði nýbyggingar og
endurnýjun á eldra húsnæði.
Velta húsgagnaverslana var 20%
meiri og velta sérverslana með rúm
jókst um 22% frá því í fyrra. Sala á
farsímum dróst saman um 1,4% frá
nóvember í fyrra en þá varð reyndar
sprenging í sölu farsíma þegar salan
jókst um 141% frá árinu þar á undan.
Tilboðsdagurinn „svartur föstu-
dagur“ sem var í lok nóvember virð-
ist hafa skilað mismikilli veltuaukn-
ingu eftir tegundum verslana. Í
samantektinni kemur fram að heim-
ilistæki og húsbúnaður hafi selst í
miklum mæli en ekki hafi verið sama
ris í sölu á nauðsynjum eins og mat-
vöru og fatnaði.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Smásala Sala á skóm hefur aukist
en ekki að sama skapi á fatnaði.
Meiri sala á skóm
en minni á fatnaði
Mikil sala á
heimilistækjum
og húsbúnaði