Morgunblaðið - 15.12.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Gísli Örn Garðarsson, leikari og ein aðalsprautan í Vesturporti,er að leika í bíómynd eftir Baltasar Kormák, sem heitir Eið-urinn. Ólafur Egill Egilsson og Baltasar gerðu handritið sem
er Reykjavíkursaga í nútímanum. Meðal annarra leikara eru Hera
Hilmarsson, Baltasar, Ingvar Sigurðsson og Margrét Bjarnadóttir.
„Við hófum tökur fyrir viku og verðum að eitthvað fram í febrúar. Ég
verð því við upptökur á afmælisdaginn en ég held að ég hafi ekki átt
afmæli á Íslandi í fimm ár. Það er dásamlegt að vera hérna heima á
þessum tíma með fjölskyldunni í jólastemningunni í snjónum. Ég
hlakka mikið til að fá mér skötu, hef saknað hennar og var einmitt að
bóka með hestamönnum í skötuveislu í nýju reiðhöllinni í Kópavogi.“
Gísli Örn Garðarsson hefur undanfarna átta mánuði verið í tökum á
breskri sjónvarpsþáttaröð, Beowulf, sem er byggð á samnefndu
ensku miðaldakvæði, og heitir Bjólfskviða upp á íslensku. „Þar verð
ég að berja á ýmsum tröllum og risum. Við vorum allan tímann í New-
castle, ég hef einu sinni leikið þar í leikhúsi en nú var enginn tími til
að skoða sig um. Þetta er margra milljarða verkefni og allt keyrt
áfram, 6 tökudagar í viku og 12-14 klukkustunda vinnudagar. En ég
hef hvort sem er þvælst mikið um England. Þetta eru 13 þættir og
verða frumsýndir 3. janúar. RÚV er búið að kaupa þættina en ég veit
ekki hvenær sýningar á þeim hefjast hér.“
Eiginkona Gísla Arnar er Nína Dögg Filippusdóttir leikkona og
börn þeirra eru Rakel María Gísladóttir 8 ára og Garðar Sigur Gísla-
son 4 ára.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölskyldan Gísli Örn og Nína Dögg ásamt börnum í leikhúsi í vor.
Nýtur þess að vera á
Íslandi á aðventunni
Gísli Örn Garðarsson er 42 ára í dag
S
igríkur fæddist í Bolung-
arvík 15.12. 1965 og ólst
þar upp til átta ára ald-
urs. Þá flutti fjölskyldan í
Grænuhlíð í Hjalta-
staðaþinghá á Fljótsdalshéraði og
þar átti hann heima þar til hann
hleypti heimdraganum rúmlega
tvítugur.
Sigríkur var tvö ár í Barnaskóla
Bolungarvíkur, var síðan í heimavist
í Barna- og unglingaskólanum á Eið-
um, lauk 8. og 9. bekk í Alþýðuskól-
anum á Eiðum og var eitt ár í Hér-
aðsskólanum á Laugum í Reykjadal
1981-82. Hann hóf síðar nám við
Bændaskólann á Hólum 1986 og
lauk þaðan búfræðiprófi 1988.
Sigríkur ólst fyrst upp við sjávar-
síðuna en síðan við öll almenn
sveitastörf þess tíma en í Grænuhlíð
var blandað bú. Hann vann við bú-
Sigríkur Jónsson, form. Hrossaræktarsamtaka Suðurl. – 50 ára
Úti að aka Dætur Sigríks og Sigríðar láta fara vel um sig í aftursætinu. Talið frá vinstri: Sara, Rikka og Bryndís.
Hrossin eru hans vinna
og helsta áhugamálið
Eiginkona og dóttir Sigríkur og Sigríður með dóttur sinni, Bryndísi.
Eva Lind Árnadóttir og Sara Margrét Andradóttir héldu tombólu við Víði á
Garðatorgi og söfnuðu 7.020 krónum fyrir Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Innrömmunarþjónusta
Rauðarárstíg 33 – Fjarðargötu 19, Hafnarfirði – S. 511 7000
Tilbúnir rammar
margar stærðir
og gerðir