Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 6

Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 6
Tekna - Sjálfskiptur - Rafmagn Leður - Xenon - Bose hljóðkerfi Bakkmyndavél - Ekinn 23þ. km Verð: 3.150.000,- Raðnr. 152295 Comfort - Sjálfskiptur - Rafmagn Ekinn 5þ. km - Vel búin bíll Ásett verð 4.450.000,- Tilboðsverð: 3.650.000,- Raðnr. 100109 Outlander Instyle Plugin Hybrid Sjálfskiptur - Ísl. leiðsögukerfi Leður - Ekinn 9þ. km Tilboðsverð: 5.550.000,- Raðnr. 230133 Discovery 3 SE G4 breyttur 7 manna - Sjálfskiptur - Dísel Ekinn 161þ. km - Ný yfirfarinn Verð: 3.790.000,- Raðnr. 151111 Acenta - Sjálfskiptur - Rafmagn Margir litir í boði - Sólarsella 7” snertiskjár - Ekinn 9þ. km Verð: 2.850.000,- Raðnr. 151735 AWD - Sjálfskiptur - Bensín Panorama þak - Leður Bose hljóðkerfi - Ekinn 89þ. km Verð: 3.490.000,- Raðnr. 117266 Escalade - 7 manna - Leður Ný dekk - Mjög vel með farinn Krókur - Ekinn 65þ. km Verð: 4.900.000,- Raðnr. 221155 Durango Limited - Sjálfskiptur Bensín - 7 manna - Leður - Lúga Umboðsbíll - Ekinn 20þ. km Verð: 9.590.000,- Raðnr. 152776 Instyle - Sjálfskiptur - Bensín Leður - AWD - 17” felgur Krókur - Ekinn 222þ. km Verð: 1.790.000,- Raðnr. 100105 Grand Cherokee Overland Sjálfskiptur - Bensín - Leður ofl. Umboðsbíll - Ekinn 31þ. km Verð: 8.490.000,- Raðnr. 152819 Nissan Leaf 2015 Jeep Grand 2014 VW Golf E 2015 MMC 2016 Landrover 2007 Nissan Leaf 2015 Cadillac CTS 2008 MMC Pajero 2007 Dodge 2016Cadillac 2007 Mikil sala - Vantar bíla á skrá - 800m2 innisalur NÝ R BÍ LL Til bo ðs ve rð 100 bílar ehf. Stekkjarbakka 4 109 Reykjavík Sími: 517 9999 100bilar@100bilar.is www.100bilar.is Fótbolti Undanfarnar vikur og mán- uði, nú síðast í gær, hafa borist fregnir af því að staða landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar væri í mikilli óvissu. Kolbeinn er á mála hjá Nantes í Frakklandi, og var haft eftir Wald- mar Kita, forseta félagsins, að Kol- beinn væri í felum á Íslandi og það næðist ekki í hann. Hann hefði ekki einu sinni fyrir því að fá borguð laun. Kolbeinn er vissulega staddur á Íslandi. Ég settist niður með honum yfir kaffibolla í húsakynnum Knatt- spyrnusambandsins í Laugardal í gær. Þar vísar hann þessum fregnum á bug og segir að bróðir hans, Andri, hefði verið í daglegu sambandi við framkvæmdastjórann Franck Kita, son forsetans. Hann fór vel og vand- lega yfir meiðslasögu sína, sem lengist því miður sífellt. Hann viðurkennir að staðan sé erfið og framtíð hans sem knattspyrnumanns í óvissu en hann heldur þó í vonina og ætlar sér að ná sér góðum á nýjan leik, hvenær sem það verður. Ástæðan fyrir því að Kolbeinn hefur ekki spilað fótbolta síðan á EM í sumar er að hann hefur verið að glíma við erfið meiðsli í vinstra hné. Skömmu eftir að Nantes lánaði hann til tyrkneska stórliðsins Galatasaray í upphafi tímabilsins var staðan orðin það slæm að ákveðið var að hann myndi fara í aðgerð og skrapað yrði af liðþófanum. Forsagan er þó löng og flókin. „Undanfarin þrjú ár hef ég verið með litla rifu í liðþófanum. Ég hef þrátt fyrir það náð að spila og það hafa fleiri knattspyrnumenn gert með álíka meiðsli,“ útskýrir Kolbeinn. „En svo hefur eitthvað gerst. Mögu- lega var það í síðasta deildarleiknum með Nantes í vor, þar sem ég stífnaði upp í hnénu.“ Kolbeinn var tæpur fyrir EM í sumar, einnig vegna meiðsla í hægra hné, en náði að verða leikfær og spila alla leiki Íslands í keppninni. Óhætt er að segja að hann hafi átt frábært mót, eins og svo margir aðrir í íslenska liðinu. Gat ekki hlaupið á æfingu Í byrjun september, eftir að gengið hafði verið frá félagaskiptunum til Tyrklands, hitti Kolbeinn landsliðið í Þýskalandi. „Ég fann að ég gat ekki hlaupið. Þá var ég sendur aftur til Galatasaray og strax næsta dag vildu þeir að ég myndi fara í aðgerð. Hún var framkvæmd 5. september.“ Síðan þá hefur batinn ekki verið nægilega góður. „Hnéð bólgnaði upp og ég átti erfitt með gang. Það tók langan tíma að ná bólgunum úr mér og reynt að flýta fyrir því með alls konar sprautumeðferðum til að losa út vökva. En hann kom alltaf aftur.“ Kolbeinn gerði allt sem hann gat. Hann fór til Barcelona til að fara í meðferð hjá færustu læknum Evr- ópu, svo til Noregs þar sem hann var í meðferð hjá hnykkjara. Honum leið vel eftir það. „Ég kom aftur til Tyrklands 9. des- ember. Þá var mér tilkynnt að ef ég myndi ekki ná mér góðum innan þriggja vikna þá yrði samningi mínum rift,“ segir Kolbeinn. „Það flækti málið enda hefði ég þurft að byggja upp hnéð hægt og rólega. En ég vildi láta reyna á þetta og fór út á völl, þar sem ég æfði í eina og hálfa viku.“ Á jóladag fór hann í myndatöku og var þá enn og aftur kominn vökvi inn á hnéð. Þar með varð ljóst í hvað stefndi. Samningnum var rift og Kol- beinn kom heim til Íslands nokkrum dögum síðar. Bauðst til að spila frítt Kolbeinn ber engan kala til Gala- tasaray, þvert á móti. „Ég skildi þeirra ákvörðun mjög vel. Þetta er frábær klúbbur og afar vel komið fram við mig. Mér fannst ég vera á besta mögu- lega staðnum fyrir mig,“ segir hann. „Ég bauðst til að spila frítt með lið- inu eftir áramót. Ég var það viljugur að vera áfram. En þeir gátu ekki feng- ið annan leikmann inn nema með því að losa mig. Það var því ekki hægt.“ Kemur þá að þætti Nantes og Kita- feðganna. Waldemars forseta og Francks framkvæmdastjóra. Haft var eftir Kita eldri í L'Équipe í Frakklandi að félagið hefði aðeins verið í mjög takmörkuðu sambandi við Andra, bróður Kolbeins, og að Kolbeinn væri í raun týndur á Íslandi. Kolbeinn getur ekki annað en bros- að. „Þeir vita af mér. Bróðir minn er í daglegu sambandi við Franck Kita og ég veit einfaldlega ekki hvaðan þessar fréttir koma. Að segja að ég sé týndur er alrangt.“ Og hann segir að orð forsetans um að hann hafi ekki rukkað laun séu aukaatriði. „Ég er ekkert að pæla í launum núna. Ég er bara að hugsa um að fá mig góðan af meiðsl- unum.“ Alvarlegt að fara í aðra aðgerð Fram undan er mögulega önnur aðgerð, segir Kolbeinn. Hann bíður þess nú að fá leyfi félagsins til að fara í aðgerðina, en það er það sem íslenskir læknar vilja og læknar Galatasaray taka undir það. „Það var fyrst í gær sem við heyrðum að Nantes vildi fá mig út í læknisskoðun. Ef svo er þá fer ég út og tek ákvörðun um framhaldið eftir það. Enda færi ég aldrei í aðgerð án leyfis félagsins.“ Að láta skrapa liðþófann í annað sinn er háalvarlegt mál fyrir knatt- spyrnumann. Og það veit Kolbeinn manna best. „Besta lausnin er að byggja hnéð upp án aðgerðar. Styrkja það og liðböndin, losa um það og fara í sprautumeðferðir. Það hef ég reynt. Ég hef gert allt sem ég hef getað gert. En niðurstaðan er sú að ég er ekki orðinn betri. Það er ekki ákjósanlegt að fara í aðra aðgerð en óvissan yrði líka mikil ef ég færi ekki því ég veit ekki hvenær ég mun jafna mig.“ Mjög áhyggjufullur yfir stöðunni Það er engin betri leið að spyrja Kolbein en beint út: Óttast hann um ferilinn? Að meiðslin séu það alvarleg að hann óttist að hann muni mögulega ekki spila sem knattspyrnumaður í fremstu röð á nýjan leik? „Það er allavega óvissa,“ segir hann. „Ég vona að aðgerðin heppn- ist vel og að ég geti spilað aftur sem allra fyrst. En ég er sjálfur mjög áhyggjufullur yfir þessari stöðu enda komnir fimm mánuðir frá fyrri aðgerðinni og tíminn tifar. Auðvitað hef ég hugleitt það [að ferillinn sé í hættu], enda búinn að vera úti í 4-5 mánuði og mikið einn.“ Kolbeinn saknar fótboltans og leit á veru sína hjá Galatasaray sem gullið tækifæri til að koma félags- liðaferlinum aftur í gott horf eftir magurt tímabil með Nantes þar á undan. Eftir draumagengi hans og íslenska liðsins á EM í sumar virtist ekkert því til fyrirstöðu. „Svo fékk ég þennan skell og það hefur verið erfitt,“ viðurkennir Kol- beinn, sem hefur þó getað haldið sér í jafnvægi og forðast þungar hugs- anir. „Ég reyni sem minnst að pæla í svona hlutum. Það hef ég lært af gömlum meiðslum. Þá fyrst fer þetta allt að hellast yfir mann. En ég hef komið mér úr erfiðum meiðslum áður og mun gera það aftur núna.“ En hann saknar líka félaga sinna úr íslenska landsliðinu. „Ég hef sársaknað þess að spila ekki með landsliðinu. En þetta hefur farið vel af stað hjá þeim og það er vonandi að þeir haldi áfram að standa sig vel. Mitt markmið er að koma aftur inn í lok undankeppninnar [í haust] af fullum krafti og í toppformi. Ég ætla bara að horfa fram á veginn.“ Er mjög áhyggjufullur yfir ferlinum Kolbeinn Sigþórsson, maðurinn sem skaut enska landsliðið af EM í Frakklandi, hefur ekki spilað fótbolta síðan í byrjun júlí. Erfið og óútskýrð hnémeiðsli hafa nú sett stórt spurningarmerki við feril hans. Fram undan er líklega önnur aðgerð hans á fáeinum mánuðum. Kolbeinn Sigþórsson fyrir utan skrifstofu KSÍ í gær. Styttan í bakgrunni er af Alberti Guðmundssyni, fyrsta atvinnumanni Íslands í knattspyrnu. FréttABlAðið/E. StEFán Ég bauðst til að spila frítt með Galatas- aray eftir áramót. Ég var það viljugur að vera áfram. Kolbeinn Sigþórsson Eiríkur Stefán Ásgeirsson eirikur@365.is 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 l a U G a r D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B F 2 -1 A D 4 1 B F 2 -1 9 9 8 1 B F 2 -1 8 5 C 1 B F 2 -1 7 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.