Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 100
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Stærð: 370 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 648,5 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 1.501 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Íslenska ríkið er eigandi þeirra fasteigna sem auglýstar eru. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar
eftir tilboðum í þær. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun
eignanna, s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum.
Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is
Stærð: 2.385 m2
Tegund: Skrifstofur/Vöruhús
Stærð: 400 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
SUÐURBRAUT 890 VALHALLARBRAUT 891
Fasteignir til sölu á Ásbrú
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja,
gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
BOGATRÖÐ 17BOGATRÖÐ 2BOGATRÖÐ 1
Okkur hefur lengi langað að spila þessi verk,“ segir Grímur Helgason klarínettuleikari um fjórar sónatínur
sem hann og Hrönn Þráinsdóttir
píanóleikari ætla að spila í Nor-
ræna húsinu á morgun, sunnudag,
í 15:15 tónleikasyrpunni. Þau kalla
dagskrána Síðdegi sónatínunnar.
„Valið snerist svolítið í kringum verk
eftir Áskel Másson sem við ákváð-
um fyrst að spila. Það er að verða
íslensk klassík. Svo fundum við
aðrar sónatínur með eftir Bohuslav
Martinu, Arthur Honegger og Ant-
oni Szalowski.
Grímur segir París tengja saman
höfundana, nema kannski Áskel.
Hinir þrír hafi á einhverjum mikil-
vægum tímapunktum í sínu lífi
verið í París að drekka í sig stemn-
inguna þar. „Martinu er einn af
höfuðstónskáldum Tékka á 20. öld-
inni og Honegger er Svisslendingur
og einn af tónskáldahópnum Les
Six. Áhrifa djasstónlistar og austur-
evrópskrar þjóðlagatónlistar gætir í
verkum þeirra beggja. Szalowski er
þeirra minnst þekktur utan heima-
landsins, Póllands, en verkið hans
er klassísk sónatína fyrir klarínett,“
lýsir hann. En hver er munurinn á
sónatínu og sónötu?
„Þær eru ívið léttari en sónötur
og formið allt knappara. Á þeim er
kannski álíka munur og á óperettu
og óperu. Það á við um þessar fjórar
sem eru á okkar efnisskrá núna
nema kannski verkið hans Áskels,
sem er býsna svipmikið. Miðkafl-
arnir eru kannski dálítið drama-
tískir en létt yfir fyrsta og þriðja.“
Grímur segir íslenska verkið eftir
Áskel Másson hafa verið samið fyrir
hjónin Sigurð Yngva Snorrason og
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
og þau frumflutt það árið 1998.
„Það er til í tveimur hljóðritunum
með þeim, upplýsir hann. „Svo var
Einar Jóhannesson að hljóðrita það
líka svo það er að verða svolítið rót-
fast stykki.“
Hrönn og Grímur hafa bæði
komið víða við í íslensku tónlistar-
lífi og ferðast um landið með verk
fyrir klarínett og píanó í farteskinu.
Tónleikarnir eru um klukkustund
að lengd. Miðaverð er 2.000 krónur
en 1.000 fyrir eldri borgara, öryrkja
og námsmenn.
Parísarborg tengir saman flest tónskáldin
Síðdegi Sónatínunnar er yfirskrift tónleika í Norræna húsinu á morgun sem tilheyra 15:15 tónleikasyrp-
unni góðkunnu. Þar leika Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og Grímur Helgason klarínettuleikari.
Hrönn og Grímur hlakka til að spila sónatínurnar sem eru sjaldgæfara afbrigði hefðbundinnar sónötu.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Valið SNeriSt
SVolítið í kriNGum
Verk eftir ÁSkel mÁSSoN Sem
Við ÁkVÁðum fyrSt að Spila.
Það er að Verða íSleNSk
klaSSík.
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r48 M e n n i n G ∙ F r É T T a B L a ð i ð
menning
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
2
-0
7
1
4
1
B
F
2
-0
5
D
8
1
B
F
2
-0
4
9
C
1
B
F
2
-0
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K