Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 62
| AtvinnA | 14. janúar 2017 LAUGARDAGUR26 VILT ÞÚ STARFA HÉR? Laust er til umsóknar starf í móttöku Blue Lagoon spa í Hreyfingu. Hæfniskröfur: * Rík þjónustulund og vönduð framkoma * Góð samskipta- og samstarfshæfni * Góð tungumálakunnátta * Menntun sem nýtist í starfi * Reynsla af starfi í gestamóttöku kostur * Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum * Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki * Jákvæðni og vilji til að takast á við fjölbreytt verkefni Starfssvið: * Fagleg móttaka gesta * Þjónusta við gesti og sala * Úrlausn mála sem upp kunna að koma * Önnur verkefni sem tilheyra gestamóttöku Um er að ræða framtíðarstarf. Vinnutími er umsemjanlegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendið umsókn ásamt ferilskrá og upplýsingum um umsagnaraðila á thorny@bluelagoonspa.is fyrir 22. janúar. Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Lögreglustjórinn fer með stjórn lögregluliðs í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi vestra í samræmi við ákvæði lögreglulaga, hann er handhafi ákæruvalds, sbr. ákvæði laga um meðferð sakamála, og ber ábyrgð á rekstri embættisins. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Aðrar hæfniskröfur eru: • Haldgóð reynsla af stjórnun með mannaforráð • Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan réttarvörslukerfisins, einkum hjá lögreglu æskileg • Mjög góð íslenskukunnátta • Góð enskukunnátta • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum Innanríkisráðherra skipar í embættið frá 1. apríl 2017 til fimm ára. Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um: • Menntun • Reynslu af stjórnun • Reynslu af lögmannsstörfum, störfum við löggæslu og saksókn • Reynslu af stjórnsýslustörfum • Upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði • Aðrar upplýsingar sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf lögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja staðfest afrit af prófskírteinum og upplýsingar um umsagnaraðila Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um embættið. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs. Nánari upplýsingar veitir Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðsstjóri í innanríkisráðuneytinu, í síma 545 9000. Umsóknir óskast sendar rafrænt á netfangið postur@irr.is eða skriflega til innanríkisráðuneytis, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknarfrestur er til 30. janúar nk. Embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra laust til umsóknar Sölvhólsgata 7 • 101 Reykjavík • Sími 545 9000 Þrif Óska eftir að ráða starfmann við sendiferðir, þrif á bílum, verkstæðinu, skrifstofum og önnur tilfallandi verkefnum Umsóknir sendast á bilaretting@bilaretting.is Skútuvogi 12 H Fyrirtækið Into the Glacier ehf. Into the Glacier er ungt og ört vaxandi fyrirtæki í ferðaþjónustu með starfsstöð bæði í Reykjavík og Húsafelli. Félagið starfrækir ísgöngin á Langjökli og er með daglegar ferðir þangað allt árið um kring. Hjá fyrirtækinu starfar þéttur hópur af hæfileikaríku fólki sem tekst á við margskonar verkefni á næst stærsta jökli Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 29. Janúar 2017. Frekari upplýsingar veitir Hulda Rós starfsmannastjóri, hulda@intotheglacier.is. Viðhaldsteymi Hæfniskröfur • Gerð er krafa um meirapróf. • Vinnuvélaréttindi og reynsla af akstri stórra vinnuvéla skilyrði. • Menntun á sviði bifvélavirkjunar eða sambærilegu námi kostur. • Reynsla úr starfi björgunarsveita / fjallamennsku kostur. • Reynsla af akstri breyttra jeppa er kostur. • Reynsla og/eða menntun úr ferðaþjónustu er kostur. • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. • Geta unnið undir álagi. • Lipur í samskiptum. Into the Glacier ehf leitar eftir aðila í viðhaldsteymi hjá fyrirtækinu. Um er að ræða fullt starf. Helstu verkefni eru viðhald í ísgöngum og á tækjum fyrirtækisins. Einnig tilfallandi verkefni við akstur á 8 hjóla trukkum. #intotheglacier Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is Starfsmaður á lager Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa á miðlagerinn okkar í Reykjavík. Umsækjandi þarf að vera vandvirkur í vinnubrögðum og ábyrgðarfullur í garð viðskiptavina okkar. Rétt manneskja fær tækifæri til að vaxa í starfi og taka virkan þátt í uppbyggingu og rekstri fyrirtækisins. Vinnutími er frá kl 08:00 til 17:00. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfssvið • Ábyrgð á vöruafgreiðslu til viðskiptavina og verslana. • Samantekt á pöntunum og áfyllingum á lager • Útkeyrsla til viðskiptavina Hæfniskröfur • Góð tölvukunnátta • Vandvirk vinnubrögð • Ábyrgðarfull/ur • Bílpróf • Hreint sakavottorð Umsóknarfrestur er til 23. janúar. Umsóknir sendist á atvinna@stilling.is 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F 2 -7 3 B 4 1 B F 2 -7 2 7 8 1 B F 2 -7 1 3 C 1 B F 2 -7 0 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.