Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 12
Viðskipti Íslenskt fyrirtæki hefur hannað forrit til að finna fólk á sam- félagsmiðlum sem getur auglýst vörur með nýstárlegum hætti. Fyrirtækið kallar fólkið áhrifavalda og flokkar þá, sem undir frumskilgreiningu fyrir- tækisins falla, eftir áhugasviði þeirra og markhópsins sem fólkið nær til. Fyrirtækið Ghostlamp var stofnað árið 2014 af Jóni Braga Gíslasyni. Nýlega gengu til liðs við fyrirtækið forritarar sem komu í gagnið leitar- forriti sem gengur sjálfvirkt allan sólarhringinn og finnur fólk sem hefur nægilega stóran fylgjendahóp á sam- félagsmiðlum. Jón Bragi fullyrðir að forritið sé það fyrsta sinnar tegundar í heiminum og hafi fyrirtækið nú þegar um milljón manns á skrá sem falla að skilyrðum fyrirtækisins. Þar af eru ríflega 20 þúsund Íslendingar. „Við erum að miða við að þú hafir yfir eitt þúsund fylgjendur á Instagram. Það er samt ekki nóg að vera með mjög marga fylgjendur því við leitum að fólki sem er búið að byggja upp sterk tengsl við sinn fylgjendahóp,“ segir Jón Bragi. Fyrirtækið flokkar áhrifavaldana í mikilvægisröð eftir því hversu stóran markhóp hver og einn hefur. Í stuttu máli virkar það þannig að Ghostlamp fær til viðskipta við sig fyrirtæki sem skipuleggja herferð. Sem dæmi má nefna að fyrirtækið hefur auglýst úti- vistarfatnað. Í kjölfarið hefur Ghost- lamp samband við það fólk sem passar við vöruna og býður því að auglýsa Flokka Íslendinga eftir áhrifum þeirra Höfundur forrits segir það hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og að fyrirtækið sé nú þegar komið með milljón manns á skrá. Hvað eiga áhrifa- valdar sammerkt? l Að leggja mikla vinnu í sam- félagsmiðla sína l Tíðar birtingar á til dæmis Instagram l Birta fyndið efni, áhugavert, persónulegt og óvenjulegt l Birta efnið sitt á ákveðnum tímum sólarhrings sem eru líklegastir til að vekja mikil við- brögð l Myndir í bláum tónum eru mun líklegri til að fá mikil viðbrögð en myndir í gulum eða brún- leitum tónum l 60 til 70 prósent áhrifavalda hjá Ghostlamp eru konur Jón Bragi hafnar því að um duldar auglýsingar sé að ræða meðal annars vegna þess að efninu sé ekki ritstýrt af Ghostlamp heldur sé fólki í sjálfs- vald sett hvað það birtir á samfélags- miðlunum. Í leiðbeiningum Neytendastofu um auðþekkjanlegar auglýsingar kemur fram að duldar auglýsingar séu bannaðar samkvæmt lögum um eftir- lit með viðskiptaháttum og markaðs- setningu. Þar segir að í stuttu máli sé auglýsing hvers konar tilkynning sem miðlað er gegn endurgjaldi og felur í sér kynningu á ímynd, vöru eða þjónustu. Þá segir að lögin gildi bæði um fjölmiðla og einstaklinga. „Lögin gilda um þig ef þú færð greiðslu eða annað endurgjald gegn því að skrifa um eða dreifa upplýsingum um vörur eða þjónustu fyrirtækja á vefsíðum eða samfélagsmiðlum.“ Sumir áhrifavaldar Ghostlamp virðast vilja baktryggja sig með þetta og merkja auglýsingar með einum eða öðrum hætti, til dæmis með myllumerkinu #ad en þá stendur ad fyrir advertisement, eða auglýsing. ✿ Herferðir á instagram sem Ghostlamp hefur staðið fyrir hana gegn gjaldi. Jón Bragi hafnar því að um duldar auglýsingar sé að ræða. „Nei, þetta eru ekki duldar auglýsingar. Við erum ekki að ritstýra neinu. Áhrifa- fólkið fær bara tilboð um að taka þátt og við gefum því algjört listrænt frelsi á það hvernig það tjáir sig um vörur og þjónustu og þar af leiðandi er þetta ekki auglýsing sem slík.“ Innan skamms heldur Jón Bragi utan til að skipuleggja stóra herferð með alþjóðlegum risavörumerkjum sem þó má ekki greina frá strax vegna samninga. Fyrirtækið er nú þegar farið að starfa í Evrópu og Bandaríkjunum með þarlendum áhrifavöldum. „Þú getur fengið allt að 50 þúsund krónur fyrir herferð sem tekur þig einn dag að framkvæma. Fyrirtækin fá alvöru fólk til að vera talsmenn vörunnar sinnar og þeir búa til frábært efni til að kynna vöruna. Það fólk fær svo bara borgað eftir því hversu áhrifa- ríkt það er.“ snaeros@frettabladid.is Ísbúð / Ísgerð – Til sölu Af sérstökum ástæðum er til sölu einkahlutafélag sem rekur ísbúð með eigin framleiðslu, miðsvæðis í Reykjavík. Öll aðstaða er mjög góð og gert er ráð fyrir kaffisölu og tilheyrandi. Miklir möguleikar fyrir duglega aðila. Nánari upplýsingar í síma: 896 0240. Össur leitar að íbúð til langtímaleigu á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning nálægt Grjóthálsi væri kostur. Íbúðin þarf að vera í góðu standi og með a.m.k. 4 svefnherbergjum. Upplýsingar sendist á netfangið: egunnlaugsdottir@ossur.com Össur er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði stoð- og stuðningstækja. Hjá félaginu starfa um 2800 manns í 20 löndum. Gildi félagsins eru: Heiðarleiki – Hagsýni – Hugrekki. Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Gunnþóra Ólafsdóttir Jón Gauti Jónsson Hvað einkennir góð útivistarsvæði? Hvernig má bæta aðstöðu til útivistar? Hvernig hefur útivist áhrif á skipulag? Reykjavík býr yfir margskonar útivistar- svæðum sem vefja sig inn í byggðina og umhverfis hana og setja mark sitt á yfirbragð borgarinnar. Vel útfærð græn svæði, garðar og göngustígar auka lífsgæði, hvetja til útivistar og stuðla að bættri lýðheilsu. Ný rannsókn sýnir að markviss útivist hefur marktækt betri áhrif á heilsuna en líkamsrækt innandyra. Fram koma á fundinum: Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, Gunnþóra Ólafsdóttir mannvistarlandfræðingur, Áslaug Traustadóttir landslagsarkitekt og Jón Gauti Jónsson, skólastjóri Fjallaskólans. Fundurinn er í kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum þriðjudaginn 17. janúar, kl. 20. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Áslaug Traustadóttir Útivist í borgarumhverfi Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröðinni BORGIN – HEIMKYNNI OKKAR um þróun og mótun borgarinnar. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Þriðjudaginn 17. janúar kl. 20 á Kjarvalsstöðum Hjálmar Sveinsson Hafnar því að um duldar auglýsingar sé að ræða Við leitum að fólki sem er búið að byggja upp sterk tengsl við sinn fylgjendahóp. Jón Bragi Gíslason, stofnandi Ghostlamp 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B F 2 -1 5 E 4 1 B F 2 -1 4 A 8 1 B F 2 -1 3 6 C 1 B F 2 -1 2 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.