Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 59
UMHYGGJA • FAGMENNSKA • ÖRYGGI • FRAMÞRÓUN
Við leitum að kraftmiklum stjórnanda sem hefur áhuga á að starfa með öldruðum og leiða
fjölbreytta starfsemi öldrunardeildar á Vífilsstöðum. Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta
ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð.
Á Vífilsstöðum dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat og eru að bíða eftir að komast
á hjúkrunarheimili. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið til 5 ára í samræmi við stefnu
Landspítala um ráðningu stjórnenda.
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI
Öldrunardeild Vífilsstöðum
Við leitum eftir kraftmiklum leiðtoga sem er tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni á
nýsameinaðri deild sýkla- og veirufræði. Deildin er þjónustueining á spítalanum og þar er rekin
fjölbreytt rannsóknastarfsemi í þágu sjúklinga Landspítala. Á einingunni starfar á sjöunda tug
starfsmanna, flestir með sérhæfingu á sviði lífeindafræði og náttúrufræði.
Deildarstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra rannsóknarsviðs. Starfshlutfall er 100%
og veitist starfið til 5 ára í samræmi við stefnu Landspítala um ráðningu stjórnenda.
NÝ STAÐA DEILDARSTJÓRA
Sýkla- og veirufræðideild
Starf launafulltrúa á launadeild Landspítala er laust til umsóknar. Við sækjumst eftir öflugum
liðsmanni sem hefur ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni, sýnir frumkvæði, nákvæmni
og aga í vinnubrögðum.
Deildin heyrir undir fjármálasvið og þar starfa 19 manns í nánu samstarfi við starfsmenn
spítalans. Starfsmenn launadeildar tryggja eftir bestu getu að launavinnsla, afgreiðsla launa og
launatengdra mála hljóti afgreiðslu í samræmi við samninga, lög, verklagsreglur og leiðbeiningar.
Móttaka, úrvinnsla, skráning, úttektir og varsla launagagna eru grundvallarþættir í starfsemi
deildarinnar.
LAUNAFULLTRÚI
Launadeild
Viltu vinna í dagvinnu, virka daga og eiga frí um helgar og á lögbundnum frídögum? Við leitum
eftir liðsmanni í 80% starf í sjúkraþjálfun Grensási.
Deildin sinnir fjölbreyttri og sérhæfðri endurhæfingu sjúklinga m.a. með skaða í miðtaugakerfi,
fjöláverka, aflimanir auk almennrar endurhæfingar. Lögð er áhersla á fagþróun, rannsóknir og
kennslu heilbrigðisstétta og þverfaglegt samstarf.
SÉRHÆFÐUR STARFSMAÐUR
Sjúkraþjálfun Grensási
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í heilsuteymi mannauðssviðs, sem sinnir viðfangs-
efnum er snúa að vinnutengdum heilsufarsmálum starfsmanna. Á mannauðssviði starfa um 20
starfsmenn í þremur teymum, mönnunarteymi, kjaraþróunarteymi og heilsuteymi. Teymin vinna
náið með stjórnendum og starfsmönnum spítalans.
Við viljum ráða öflugan einstakling karl eða konu sem á auðvelt með að vinna í teymi og hefur
brennandi áhuga á heilsueflingu og vill leggja fram krafta sína til að byggja Landspítala upp sem
eftirsóknarverðan og góðan vinnustað. Viðkomandi fær góða starfsaðlögun með reyndum
hjúkrunarfræðingum.
STARFSMANNAHJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Mannauðssvið
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 5000 manns starfa í þverfaglegum
teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús
í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru
öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐU LANDSPÍTALA;
WWW.LANDSPITALI.IS/MANNAUDUR OG STARFATORGI; WWW.STARFATORG.IS
LANDSPÍTALI ... LIFANDI VINNUSTAÐUR!
Tern Systems provides mission
critical Air Traffic Management
solutions for customers in Europe,
Africa and Asia.
For further information contact
Tómas Davíð Þorsteinsson, Director
of Administration of Tern Systems,
on 525-0500 or at tomas@tern.is.
All applications shall be sent to
jobs@tern.is before
3rd of February, 2017
For information see www.tern.is
TEST ENGINEER
Minimum qualifications include:
||| experience in implementing
effective test procedures,
||| excellent problem solving skills,
||| ability to work in a collaborative, team
oriented environment,
||| strong verbal and written
communication skills,
||| ability to coordinate and plan software
test activities.
Preferred qualifications include:
||| working knowledge of Linux, familiar
with Linux command line,
||| 3+ years in software testing,
||| university degree in a technical field or
equivalent,
||| ISTQB certification or equivalent
preferred.
We are taking on additional
international projects and
seek motivated and skilled
individuals on both domestic
and foreign projects, for the
following position:
You have
been cleared
for take-off!
Starfssvið og ábyrgð:
Starfið felur í sér öll almenn eldisstörf í hrognahúsi
Stofnfisks hf. sem staðsett er í Vogum. Það er meðal annars
öll almenn umhirða og vinnsla á hrognum auk viðhalds og
fleira sem við kemur rekstri stöðvarinnar.
Kröfur:
Við leitum eftir duglegum starfsmenni sem er jákvæður,
lipur í samskiptum og vinnur vel í teymi. Reynsla af fiskeldi,
próf í fiskeldisfræði eða sambærileg menntun er kostur.
Skrifleg umsókn ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið
gudbjorg@stofnfiskur.is fyrir 23. janúar 2016
Stofnfiskur
óskar eftir
starfsmanni
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
2
-5
B
0
4
1
B
F
2
-5
9
C
8
1
B
F
2
-5
8
8
C
1
B
F
2
-5
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K