Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 4
Sveitarfélagið hefur áður átt i árangurslausum viðræðum við Heimavelli um leiguna. Fréttablaðið/Pjetur
Tölur vikunnar 08.01.2017 Til 14.01.2017
711
milljónir mun það kosta að skipta
dekkjakurli út fyrir annað hættu-
minna efni á gervigrasvöllum.
1.315
hreindýr verður leyft að
veiða á næsta veiðitímabili.
22%
aukning varð í ný-
gengi örorkumats
á nýliðnu ári.
fyrirtæki í fiskvinnslu hafa sagt
upp fleiri en einum starfsmanni
vegna verkfalls sjómanna.
slys hafa orðið á tveggja kíló-
metra kafla á Reykjanesbraut
síðustu fimm ár.
43
umsóknir
bárust um starf
bankastjóra
Landsbankans.
Svandís Svavarsdóttir
formaður þingflokks Vinstri
grænna
sendi umboðs-
manni Alþingis
bréf til að fá
úr því skorið
hvort Bjarni
Benediktsson
hefði brotið gegn
siðareglum ráðherra
þegar hann ákvað að birta ekki
skýrslu um aflandsfélög fyrr en
allnokkru eftir að hún lá fyrir í
ráðuneyti hans. Upplýsingarnar
hefðu beinlínis varðað sam-
félagsumræðuna í aðdraganda
kosninga.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra
segist biðja um að
vera dæmd af
eigin verkum en
ekki vegna þess
að hún sé unga
konan í nýrri
ríkisstjórn. Þórdís
er 29 ára gömul og
er yngsta konan til að gegna
ráðherraembætti á Íslandi. „Ef
ég er að fá ráðherrastól af því ég
er kona þá er miðaldra karl-
maðurinn að fá stólinn af því
hann er miðaldra karlmaður,“
sagði Þórdís.
Jón Gunnarsson
samgönguráðherra
Nýr samgöngu-
ráðherra sagði
að engin önnur
lausn væri en
að hafa Reykja-
víkurflugvöll
áfram í Vatns-
mýri. Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri kvað þá
ekki alveg samstiga í flugvallar-
málinu en miðað við stjórnar-
sáttmálann væru þeir býsna
samstiga í því að það þyrfti að
fara að taka á því máli og horfa
til framtíðar.
Þrjú í fréttum
Siðareglur, kona
og flugvöllur
Samfélag Borið hefur á áhyggjum
foreldra og talsmanna grunnskóla
af smáforritinu Yellow sem hægt er
að sækja í alla snjallsíma. Börn geta
notað forritið til að kynnast öðrum
börnum á svipaðan hátt og full-
orðnir nota forritið Tinder. Áhyggj-
urnar lúta að því að óprúttnir aðilar
geti nýtt sér þessa leið til að komast í
samband við óhörðnuð börn.
Ekkert aldurstakmark er fyrir
notkun á þessu smáforriti og hægt
er að tengjast fólki í nágrenni við
sig. Barnaheill telja það skipta miklu
máli að foreldrar viti hvað börn
þeirra séu að gera bæði í tölvunni
og í snjallsímum sem og að fræða
þau um hvernig nota eigi tæknina
sér í vil.
„Barnaheill hvetja foreldra til
að tala opinskátt við börn sín um
örugga netnotkun og vera meðvit-
uð um þær hættur sem geta skap-
ast í samskiptum við ókunnuga á
netinu. Mikilvægt er að brýna fyrir
börnum að gefa aldrei upp per-
sónuupplýsingar til ókunnugra og
vera meðvituð um að allt efni sem
sent er öðrum eða sett er á netið sé
ógjörningur að uppræta eða eyða
af netinu,“ segir Erna Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Hún brýnir fyrir fólki að tilkynna
til lögreglu ef barn hefur verið tælt
eða það fengið klámfengið efni
sent. – sa
Vara við stefnumótaforriti fyrir börn
DómSmál Langanesbyggð hefur
stefnt Heimavöllum fyrir Héraðs-
dóm Reykjavíkur í von um að losna
undan leigusamningum um sex
íbúðir á Þórshöfn. Sveitarfélagið
hefur tapað um 20 milljónum króna
á samningunum sem voru undir-
ritaðir árið 2011 og gilda til tíu ára.
Lögmaður leigufélagsins er ósam-
mála túlkun sveitarfélagsins á upp-
sagnarákvæði samninganna.
Málarekstur Langanesbyggðar
byggir á að skýrt ákvæði sé í verð-
tryggðum samningunum sem geri
sveitarfélaginu kleift að segja þeim
upp þegar fasteignirnar séu seldar
öðru félagi. Íbúðirnar eru í raðhús-
unum Miðholti 9 til 19 og voru í
eigu V Laugavegs ehf. þegar samn-
ingarnir voru undirritaðir. Dóttur-
félag Heimavalla keypti V Laugaveg
árið 2015.
Elías Pétursson, sveitarstjóri
Langanesbyggðar, segir í samtali við
Fréttablaðið að leigutekjur sveitar-
félagsins, sem framleigir íbúðirnar,
séu í dag talsvert lægri en sú upp-
hæð sem það greiðir leigusalanum
Heimavöllum. Vill hann ekki svara
hversu miklu munar en samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins hefur
Langanesbyggð tapað um 20 millj-
ónum króna á samkomulaginu og
síðustu ár um fjórum milljónum á
ári. Leigan er bókfærð sem skuld-
binding í bókum sveitarfélagsins
og setur því mark sitt á skuldastöðu
þess.
„Við erum að reyna að losna út úr
samningunum þannig að Heima-
vellir leigi núverandi íbúum íbúð-
irnar. Þeir vilja halda okkur áfram
sem leigjanda og það eru fjögur ár
eftir. Það er skynsamleg meðferð
á skattpeningum að athuga hvort
okkar skilningur sé ekki réttur,“
segir Elías og tekur fram að sveitar-
Langanesbyggð tapar tugum
milljóna á leigusamningum
Langanesbyggð vill losna undan leigusamningum við leigufélagið Heimavelli. Hefur tapað 20 milljónum
króna á sex íbúðum síðan 2011. Lögmaður leigufélagsins ósammála túlkun sveitarfélagsins á uppsagnar-
ákvæði. Málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Leigan setur mark sitt á skuldastöðu sveitarinnar.
62
366,28
milljónir króna bætast
ofan á laun Birnu Ein-
arsdóttur, bankastjóra
Íslandsbanka, vegna að-
gerðaleysis kjararáðs.
börn eru sérstaklega varnarlaus á netinu. nordicPHotoS/Getty
félagið hafi áður átt í árangurslaus-
um viðræðum við Heimavelli um
breytingar á leigusamningunum.
„Ágreiningurinn snýst um það
hvort uppsagnarákvæðið komi
til framkvæmda annars vegar ef
félagið er keypt, eða eigandi fast-
eignarinnar sé keyptur, eða hins
vegar þegar einungis fasteignirnar
sjálfar eru keyptar. Það er niður-
staða mín að þeir sem undirrituðu
þessa samninga geti ekki staðfest
túlkun sveitarfélagsins á uppsagnar-
ákvæðinu,“ segir Steinn S. Finnboga-
son, lögmaður Heimavalla, sem er
stærsta leigufélag landsins.
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir,
fjárfestar og fyrrverandi atvinnu-
menn í knattspyrnu, undirrituðu
samningana fyrir hönd V Laugavegs.
Bræðurnir voru þá eigendur félagsins
og í hluthafahópi þess alveg fram að
kaupum Heimavalla á félaginu. Gunn-
ólfur Lárusson var sveitarstjóri Langa-
nesbyggðar árið 2011. Samningarnir
voru gagnrýndir af sumum sveitar-
stjórnarmönnum og íbúum Langa-
nesbyggðar en á fundi sveitarstjórnar
í mars 2011 kom fram að leigutekjur
myndu einungis standa undir 70 pró-
sentum af greiddri leigu til V Lauga-
vegs. haraldur@frettabladid.is
Þeir vilja halda
okkur áfram sem
leigjanda og það eru fjögur
ár eftir.
Elías Pétursson,
sveitarstjóri Langa-
nesbyggðar
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a B l a ð i ð
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
2
-0
7
1
4
1
B
F
2
-0
5
D
8
1
B
F
2
-0
4
9
C
1
B
F
2
-0
3
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K