Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 93
Það hefur lengið verið draum-ur hjá Dansstúdíói World Class að stofna ballett-deild. Hugsunin er tvíþætt: að bjóða upp á vandað og sérhæft dansnám fyrir litlu
dansarana og síðan að styrkja dansara í
yngri og eldri deildum skólans enn frek-
ar í tækni,“ segir Melkorka Davíðsdóttir
Pitt, yfirkennari ballettdeildarinnar,
spurð út í nýjustu deild Dansstúdíós
World Class.
Deildin er fyrir börn á aldrinum 3-6
ára og fara tímarnir fram í World Class
í Smáralind. „Við kynnum ballettinn á
nýjan hátt fyrir börnunum með ævin-
týralegu sniði. Við höfum útbúið nýtt og
aðgengilegt prógramm sem er byggt upp
á þremur aðalþáttum: upphitun í spuna-
formi, ævintýraþema og hnitmiðuðum
æfingum,“ segir hún.
Melkorka býr að töluverðri reynslu
þegar kemur að dansi en hún hóf dans-
nám hjá Listdansskóla Íslands 9 ára
gömul og nýtur þess að búa til skemmti-
leg og krefjandi verkefni fyrir börnin.
„Þegar unnið er með börnum þarf
að hugsa hlutina sérstaklega vel svo
markmiðum tímanna sé náð. Því
höfum við lagt mikla vinnu
í að hanna fyrirkomulag
svo kennslan nái til
barnanna. Það er
svo mikilvægt að
vita hvernig þú
kveikir áhuga
hjá þeim og
heldur þeim
v i ð e f n i ð , “
útskýrir Mel-
korka.
A ð s p u r ð
hvort ballett sé
góður grunnur
segir Melkorka
svo vera. „Grunnur
í ballett er eitthvað
sem þú býrð að að eilífu
og kemur sér vel í einu og
öllu. Hvort sem þú vilt færa þig yfir í
önnur dansform eða aðra íþrótt. Annað
sem er jákvætt við ballettinn er aginn og
yndislega tónlistin. Svo skemmir ekki
fyrir að eftir ballettþjálfun færðu mjög
góða líkamsstöðu.“
Danstímar eru byggðir upp á
jákvæðni og gleði. Áhersla er lögð á að
námið sé faglegt, uppbyggj-
andi og styrkjandi.
„Við munum kenna
þeim æfingar í gegn-
um þema tengd
þ e k k t æ v i n -
týrum. Einnig
m u n u m v i ð
fara í gegnum
helstu ballett-
verkin, kynna
nemendur fyrir
sögunni og fal-
legu tónlistinni
sem er í hverju
verki,“ segir Mel-
korka, sem hefur
mikla reynslu af að
vinna með börnum.
Auk dansnámsins hefur
Melkorka tekið þátt í fjölmörgum
sýningum bæði hjá Þjóðleikhúsinu og
Borgarleikhúsinu, meðal annars Oliver
Twist, Galdrakarlinum í Oz, Fyrirheitna
landinu og nú síðast sem Solla stirða í
uppsetningu Þjóðleikhússins á Latabæ.
„Það er yndislegt að vinna með
börnum. Ég hef lengi farið með hlut-
verk Sollu stirðu fyrir Latabæ og hef
öðlast mikinn skilning á því hvernig
best er að byggja upp prógramm fyrir
börn. Einnig tók ég þátt í fjölmörgum
sýningum þegar ég var yngri, bæði í
Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu,
og þá fékk ég heldur betur að kynnast
því hvernig þú nærð áhorfendum með
þér í ferðalag. Ég er sjálf mikið barn í
mér, með mikið hugmyndaflug, svo ég
átti ekki erfitt með að byggja upp pró-
gramm með ævintýralegu sniði,“ segir
Melkorka spennt.
Enn þá er möguleiki að skrá nem-
endur og hægt er að finna frekari upp-
lýsingar á heimasíðu skólans, dwc.is.
„Ég hvet alla til að skrá sig sem fyrst
því við erum eins og er bara með tvo
hópa á laugardögum í Smáralindinni.
Í dag fara fram prufutímar svo það eru
allir velkomnir að skella sér á töfrateppi
Aladdíns og taka þátt í þessu ævintýri
með okkur, svo er ekki verra að foreldri
stendur til boða að æfa frítt á meðan á
kennslu barnanna stendur, hvort sem
það er að fara í ræktina eða stökkva í
spa í Smáralindinni,“ segir Melkorka að
lokum. gudrunjona@frettabladid.is
Frá Sollu stirðu í
ballettkennslu hjá DWC
Dansstúdíó World Class, stækkar við sig með nýrri ballettdeild sem tekur til starfa í dag.
Melkorka Davíðsdóttir Pitt er yfirþjálfari deildarinnar sem ætluð er fyrir börn á aldrinum
3 til 6 ára. Í dag fara fram prufutímar þar sem öll börn eru velkomin að mæta og taka þátt.
Melkorka Davíðsdóttir Pitt er yfirkennari ballettdeildar Dansstúdíós World Class.
Fréttablaðið/SteFán
ballettdeild
DWC er fyrir
börn frá þriggja
til sex ára.
MynD/Garðar
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Stella Berglind
Hálfdánardóttir
lést á heimili sínu 24. desember 2016.
Útförin hefur þegar farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélag Karitas.
Viðar Guðmundsson
Sólrún Viðarsdóttir Jón Wendel
Brynjar Viðarsson Gyða Björnsdóttir
Agnes Viðarsdóttir Þórir Magnússon
Hilmar Viðarsson Erla Björgvinsdóttir
Heiða Viðarsdóttir Kristján Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Kjartan Jónsson
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 10. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju,
föstudaginn 20. janúar kl. 13.00.
Emilía Líndal Jóhannesdóttir
Jenný L. Kjartansdóttir Jón Friðrik Jónsson
Sigurjón L. Kjartansson Jóna Anna Heiðarsdóttir
Erna L. Kjartansdóttir Jón Haukur Daníelsson
Jóhannes L. Kjartansson Guðlaug Elsa Ásgeirsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Auður Sigurðardóttir
Bergi á Seltjarnarnesi,
lést miðvikudaginn 11. janúar á Grund.
Guðmundur Hafsteinsson Hanna Guðrún Guðmundsd.
Sunneva Hafsteinsdóttir Gunnar Þórðarson
Einar Hafsteinsson Sigurborg Inga Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Erla Skúladóttir
lést á Landspítalanum þann
11. janúar sl. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 20. janúar
næstkomandi kl. 15.00.
Jóhannes Gíslason
Hulda Jóhannesdóttir Einar Guðmundsson
Guðrún Jóhannesdóttir Kristinn Sigvaldason
Sigrún Jóhannesdóttir Birgir Sigurðsson
barnabörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Ólafar Ragnheiðar
Guðjónsdóttur.
Kolfinna Ketilsdóttir
Birna Ketilsdóttir
Hjördís Ketilsdóttir
Kristín Ketilsdóttir
Guðjón Ketilsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður
okkar og tengdamóður,
Guðborgar Elíasdóttur
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða.
Elías Jóhannesson Dröfn Einarsdóttir
Pétur Steinar Jóhannesson Magnea Guðfinna
Sigurðardóttir
Dagbjartur Jóhannesson Elín Gunnarsdóttir
Ómar Þór Jóhannesson Anna Eiríksdóttir
Jóhanna Guðborg Jóhannesdóttir Logi Arnar
Guðjónsson
Elísabet Jóhannesdóttir
Hafsteinn Jóhannesson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurgeir Bjarnason
Drápuhlíð 15, Reykjavík,
áður Ólafsvík,
lést í faðmi fjölskyldunnar 10. janúar
á hjúkrunarheimilinu Eir. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 19. janúar kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim er
vilja minnast hans er bent á Kirkjukór Ólafsvíkur.
Sigurdís Egilsdóttir
Garðar G. Sigurgeirsson Ásdís S. Gunnarsdóttir
Vigdís Björg Sigurgeirsdóttir Gunnlaugur A. Einarsson
Egill Rafn Sigurgeirsson Svava Jónsdóttir
Svala Sigurgeirsdóttir
Sigurgeir Sigurgeirsson Sigurbjörg Guðlaugsdóttir
og afabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Kristjánsson
Háaleitisbraut 121,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
1. janúar sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Sigurbjörg Ólafsdóttir
Ólafur Magnússon Katrín Indíana Valentínusdóttir
Elfur Magnúsdóttir Sæmundur Jónsson
Þóra Eyland Elíasdóttir Stefán Guðbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Ernu Gunnarsdóttur
Ofanleiti 19, Reykjavík.
Kristinn Sigurðsson
Agnar Logi Axelsson Ágústa Hallsdóttir
Jóna K. Kristinsdóttir Sigurgeir G. Þórðarson
Sigurður Kristinsson Erla Ósk Guðjónsdóttir
Óskar Kristinsson Sonja Freydís Ágústsdóttir
Ellý Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 41L a U G a R D a G U R 1 4 . j a n ú a R 2 0 1 7
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
2
-1
0
F
4
1
B
F
2
-0
F
B
8
1
B
F
2
-0
E
7
C
1
B
F
2
-0
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K