Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 8
Tækniþróunar-
sjóður
Styrkir til nýsköpunar
Umsóknarfrestur til 15. febrúar 2017
Tækniþróunarsjóður styrkir
nýsköpunarverkefni sem geta aukið
samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Nánari upplýsingar eru á tths.is
Álagning vatns- og fráveitugjalda fyrir árið 2017 liggur nú fyrir.
Viðskiptavinir geta skoðað álagningarseðla á Mínum síðum á veitur.is.
Til að komast inn á Mínar síður getur þú notað rafræn skilríki, Íslykil
eða fengið sent lykilorð í rafræn skjöl í heimabankanum þínum.
Í samræmi við stefnu okkar um pappírslaus viðskipti fá einungis viðskipta-
vinir 68 ára og eldri heimsenda álagningar- og greiðsluseðla. Aðrir fara
sjálfkrafa í netgreiðslur hafi þeir ekki óskað eftir pappír. Hægt er að breyta
greiðslumáta á veitur.is eða í þjónustuveri okkar í síma 516 6000.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
7
-0
0
4
9
Álagning vatns- og
fráveitugjalda 2017
Veitur sjá um rekstur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu og fráveitu.
Nánari upplýsingar um þjónustu okkar má finna á veitur.is
Samgöngur „Flugvöllurinn, hvar
sem hann kann að verða síðar, er
núna hér samkvæmt skipulagi og
þessi tré eru upp í öryggislínur,“
segir Þórólfur Jónsson, deildar-
stjóri Náttúru og garða hjá Reykja-
víkurborg, um væntanlega grisjun
trjáa í Öskjuhlíð.
Fella á 130 grenitré sem ná upp
fyrir öryggisviðmið í aðflugslínu
að Reykjavíkurflugvelli. Þegar
sama krafa Isavia kom fram árið
2011 var hún harðlega gagnrýnd
af Skógræktarfélagi Reykjavíkur
og endaði borgin á að hafna áform-
unum. Með samkomulagi ríkisins
og borgarinnar frá því í október
2013 var hins vegar ákveðið að trén
yrðu felld.
Að sögn Þórólfs er það helst á
brún axlar út úr Öskjuhlíð sem
þarf að fella tré. „Þar er grenilundur
sem þarf að fara allur,“ segir hann.
Reiknað sé með að á þeim stað
verði ný tré gróðursett.
„Að hluta til getur þetta verið
grisjun, í stað þess að við séum
að skilja stóru trén eftir eins og í
venjulegri grisjun erum við að gera
öfugt; tökum stóru trén og lægri
trén standa eftir,“ segir Þórólfur.
Þegar málið kom upphaflega
til umræðu 2011 var rætt um að
hugsanlega yrðu trén ekki felld
heldur sagað ofan af þeim en Þór-
ólfur segir það ekki í myndinni.
„Það yrði óskapnaður sem við
viljum ekki láta sjá eftir okkur,“
segir hann. Trén verði því söguð
niður við jörð.
Þórólfur kveðst ekki vita hversu
gömul trén eru sem verða felld.
„Kaldhæðnin í þessu er kannski
að það voru starfsmenn Flugmála-
stjórnar sem byrjuðu að planta
þarna í hlíðina upp úr 1950 þótt
þetta séu nú líklega ekki sömu tré
þótt sagan væri líklega betri þann-
ig,“ segir hann.
Nokkrir verktakar hafa fengið
gögn vegna útboðs á trjáfelling-
unni og býst Þórólfur við að þeir
skili tilboðum í næstu viku. Verk-
inu eigi að vera lokið í mars. Trén
sem til falla fara ekki langt heldur
verða áfram í Öskjuhlíðinni.
Greinarnir verða kurlaðar í stíga.
„Stofnarnir eiga svo að fara í hof
Ásatrúarmanna. Það er ákveðin
sjálfbærni í því,“ segir Þórólfur.
gar@frettabladid.is
Há tré felld í
Öskjuhlíð fyrir
öryggi í flugi
Á næstunni verða 130 grenitré felld í Öskjuhlíð
sem ná of hátt upp í aðflugsstefnu Reykjavíkurflug-
vallar. Fyrir fimm árum var Isavia neitað um þessa
framkvæmd eftir andstöðu skógræktarfólks.
Trjátopparnir í Öskjuhlíð ná svo hátt að það ógnar öryggi í flugi. FréTTablaðið/anTon brink
Að hluta til getur
þetta verið grisjun, í
stað þess að við séum að
skilja stóru trén eftir eins og í
venjulegri grisjun erum við
að gera öfugt; tökum stóru
trén og lægri trén
standa eftir.
Þórólfur Jónsson,
deildarstjóri Nátt-
úru og garða hjá
Reykjavíkurborg
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a u g a r D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
F
2
-2
E
9
4
1
B
F
2
-2
D
5
8
1
B
F
2
-2
C
1
C
1
B
F
2
-2
A
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K