Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 34
„Nú þegar hafa borist fjölmarg­ ar umsóknir og alltaf bætist í hóp erlendra hönnuða sem taka þátt. HönnunarMars er okkar mesta kynningarafl fyrir íslenska hönnun en Marsinn er marglaga verkefni og erlendir aðilar taka einnig þátt. Þá höfum við höfum parað saman inn­ lenda og erlenda sýnendur og þann­ ig myndast samspil þeirra á milli. Það hafa orðið til fjöldi verkefna og samstarf út frá slíkum kynnum,“ útskýrir Sara Jónsdóttir, verkefna­ stjóri HönnunarMars. Hún segir mynd vera að komast á dagskrá hátíðarinnar. Gestir geti sótt um hundrað viðburði, sýningar og fyrirlestra líkt og undanfarin ár. „Stefna okkar er ekki að stækka hátíðina varðandi fjölda sýninga og viðburða heldur frekar að auka gæði. Eftir níu ár erum við komin á þann stað að mjög margir vilja taka þátt en á móti veljum við vand­ lega inn. HönnunarMars er fyrst og fremst vettvangur fyrir fagað­ ila á sviði hönnunar og arkitektúrs,“ segir Sara. „Þetta er líka hátíð þar sem ís­ lenskir hönnuðir fá tækifæri á að hitta erlenda framleiðendur og endursöluaðila, á kaupstefn­ unni DesignMatch. Þar fara fram eins konar hraðstefnumót milli er­ lendra aðila sem boðið er á hátíðina og íslenskra hönnuða sem kynna sín verk.“ Fyrirtækin sem þegar eru stað­ fest á DesignMatch eru Normann Copenhagen, NORR11, Khaler og finnska fyrirtækið Local. Nokkur verkefni hafa farið í framleiðslu hjá Normann Copenhagen undanfarin ár. Þar má nefna snaga og hitaplatta eftir Bryndísi Bolladóttur og snag­ ana Stone eftir Helgu Sigurbjarna­ dóttur. Á dagskrá HönnunarMars er einnig DesignTalks, fyrirlestradag­ ur, sem fram fer í Silfurbergi Hörpu í samtarfi við Arion banka. Þeir fyr­ irlesarar sem búið er að upplýsa um eru breski hönnuðurinn Alexander Taylor og breski hönnunarhópurinn Marshmallow Laser Feast, en um 5 erlendir fyrirlesarar munu koma fram í bland við íslenska. „Alexander Taylor sem síðustu ár hefur unnið með Adidas við að hanna skó úr plasti sem hreins­ að var úr sjónum, sólarnir eru svo þrívíddarprentaðir. Þetta er afar spennandi nálgun á umhverfisvæna hönnun,“ segir Sara. „Marshmall­ ow Laser Feast vinnur með sýndar­ veruleika en í stað þess að mynda óraunverulega heima notar hópur­ inn sýndarveruleikann til að gefa okkur meiri dýpt á veruleikann. Til dæmis með því að áhorfandi, stadd­ ur úti í skógi sjái skóglendið eins og með augum ákveðinna skógardýra.“ Sara segir HönnunarMars hafa skorið sig úr flóru hönnunarsýninga víða um heim gegnum árin fyrir það að ólík fög hönnunar sýna hér saman. Það sé þó að breytast. „Það er reyndar að verða vinsælt erlendis, að sameina greinar frekar en að skipta upp, enda vinna grein­ ar alltaf meira og meira þvert og í samstarfi. Það má því segja að út af smæðinni hér á Íslandi höfum við dottið inn á eitthvert „trend“ fyrir­ fram,“ segir Sara. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 ragnheiður tryggvadóttir heida@365.is nokkrir hafa líklega lent í því að síminn deyr í miklum kulda. Nú er kalt úti og það er fleira en við mannfólkið sem þolir illa kuldabola. Sumir iPhone­símar þola nefnilega kuldann mjög illa og slökkva á sér verði þeim kalt. Þetta gerist jafnvel þótt síminn sé fullhlaðinn. Þetta mun vera þekkt vandamál víða um heim og um það hefur verið skrifað. iPhone er mikil kuldaskræfa. Í könnun sem gerð var árið 2012 kom þetta fyrst í ljós en þá voru nokkrar gerðir af snjallsímum prófaðar í kulda. Til dæmis komu upp vandamál á iPhone 4s í mínus fjórum gráðum, þegar kuldinn fór niður í tíu gráð­ ur kvartaði síminn yfir rafmagns­ leysi og dó síðan. Samkvæmt grein í tímaritinu Business Insider hefur Apple við­ urkennt vandamálið og vinnur að lausn á því. Apple mælir með að fólk sem lendir í þessu endurræsi símann. Reyndar bendir Apple á að símann eigi að nota í hitastigi frá 0­35 gráður. Batteríið getur brugðist í miklu frosti. Til að forðast að þetta gerist er best að pakka símanum vel inn í ullarvettling eða hafa hann í innri brjóstvasa svo hann fái hita frá líkamanum þegar mjög kalt er úti. Deyr síminn þinn í kulDa? sara jónsdóttir er verkefnastjóri Hönnunarmars, sem fer nú fram dagana 23. til 26. mars, níunda árið í röð. mynd/anton brink „stefna okkar er ekki endilega að gera hátíðina stærri varðandi fjölda þáttakenda heldur frekar að gæðum.“ Marsinn þéttari hvert ár Hönnunarmars fer fram dagana 23. til 26. mars nú níunda árið í röð. Umsóknarfrestur um þátttöku á sýningum og viðburðum er til 17. janúar. Sara Jónsdóttir, verkefnastjóri HönnunarMars, segir spennandi dagskrá fram undan. Veldu lífrænt, heilnæmt og hollt. Einfaldur pastaréttur 2 dósir Biona Tómatar með basiliku 500 gr Biona spelt pasta 15-20 gr bragðlaus kókosolía frá Biona Pasta er soðið eftir leiðbeiningum á pakkanum. Vatnið sigtað af. Tómötunum er hellt í djúpan pott eða pönnu, kókosolían sett út í og hrært vel saman. Bætið við timian kryddi ásamt salti og pipar. Pasta látið út í sósuna og hrært vel saman. , þekktu merkið! Allar vörur frá Biona eru lífrænar og henta fyrir vegan. 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G a r b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a r b L a ð ∙ h e L G i n 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B F 2 -4 2 5 4 1 B F 2 -4 1 1 8 1 B F 2 -3 F D C 1 B F 2 -3 E A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.