Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 96
Kári: Hundurinn minn er rosalega
klár í stærðfræði.
Kennarinn: Nú? Nefndu mér dæmi.
Kári: Ég spurði hann hvað sjö mínus
sjö væru og hann sagði ekki bofs.
Pabbinn: Gummi, má ég sjá ein-
kunnaspjaldið þitt.
Gummi: Ég er ekki með það.
Pabbinn: Af hverju ekki?
Gummi: Ég lánaði Steina það. Hann
ætlaði að láta foreldra sína fá sjokk.
Kennarinn: Klara, þú hefur svindlað
á prófinu. Þú ert með sömu svör
og Gyða.
Klara: Hvernig veistu að Gyða hafi
ekki hermt eftir mér?
Kennarinn: Af því að Gyða svaraði
einni spurningu með: „Ég veit
ekki,“ og þú skrifaðir: „Ég veit ekki
heldur.“
Pabbi: Hvernig var í skólanum í dag,
Baldur minn?
Baldur: Rosa gaman, við vorum
í efnafræði og æfðum okkur að
blanda sprengiefni.
Pabbi, Jæja, og hvað ætlið þið að
gera í skólanum á morgun?
Baldur: Hvaða skóla?
Stílfært úr bókinni Brandarar og
gátur. Útg. Óðinsauga
Skólabrandarar
Systkinin Jakob Eldur Fenger
sex ára og Thea Björk Fenger
fjögurra ára eru nýkomin frá
Tenerife með foreldrum sínum.
Þar sáu þau margt merkilegt. En
hvað fannst þeim skrítnast?
Jakob: „Skjaldbaka sem var að
sýna á sér rassinn.“
Thea: „Og krabbarnir á strönd-
inni, þeir voru rooosalega stórir.“
Jakob: „Við fórum í dýragarð.“
Thea: „Þar fórum við í rússíbana.
Riiiisastóran.“
Jakob: „Já, ég var næstum búinn
að gubba. Við fengum líka að sjá
hvað það er gert margt gott fyrir
dýrin í garðinum, skoðuðum
rannsóknarstofur og læknastofur
og lærðum mikið. Svo sáum við
marglittur, þær voru í lituðu
vatni. En við fengum ekki að sjá
ljónin því það var verið að laga
plássið þeirra.“
Hver eru uppáhaldsdýrið ykkar?
Thea: „Mitt er tígrisdýr.“
Jakob: „Mitt er svarti pardus.
Hann er rosa fljótur að hlaupa.“
Jakob sýnir á vegg hvað Tenerife
er langt fyrir neðan Ísland á
landakorti „Svo lentum við í
einu landi hér á milli,“ segir
hann og bendir á ósýnilegan
punkt. „Það heitir England.“
Voru þau orðin leið á að sitja í
flugvélinni? Thea: „Já, en það var
matur.“ „Bara einu sinni,“ tekur
Jakob fram.
Hvernig leikið þið ykkur oftast
saman? Jakob: „Við erum helst að
horfa á eitthvað.“
Thea: „Það er skemmtilegast.“
En hvert farið þið út að leika?
Jakob: „Ég bið mömmu oft að
koma upp að Hallgrímskirkju.“
Thea: „Við prílum stundum á
styttunni af Leifi Eiríkssyni.“
Jakob: „Ég hef líka farið alveg
upp í topp á tré.“
Skjaldbakan skrítnust
sem sýndi á sér rassinn
Þegar Jakob Eldur og Thea Björk voru á Tenerife um hátíðarnar
sáu þau mörg framandi dýr og fóru í risastóran rússibana.
Listaverkin
Þessi tré
voru lituð í
sunnudagaskóla
Áskirkju.
Mynd/Hólmfríður Hrafnkelsdóttir. Mynd/Marie Maillard.
Systkinin. Jakob Eldur er í Vesturbæjarskóla. Hann tekur fram að það eigi að skrifa Jakob með b en ekki p. Thea Björk er í leik-
skólanum Tjarnarborg og það er h í hennar nafni. FréTTaBlaðið/Ernir
Bragi Halldórsson
232
A B
Getið þið séð hvort heimili Róberts er merkt A eða B á kortinu?
„Veist þú hvar Róbert refur á heima hérna í fjöllunum?“ spurði
Lísaloppa Tobba kanínu. „Við villumst bara aftur og aftur,“
sagði Konráð mæðulega. „Samt erum við með kort,“ bætti
Lísaloppa við. „Það er svo erfitt að rata hér í fjöllunum,“ sagði
Tobbi. „Ég skal gefa ykkur kort af þeim. Þið þurfið bara að
þekkja muninn á hægri og vinstri.“ Konráð og Lísaloppa
viðurkenndu að þau rugluðust nú oft á hægri og vinstri.
„Flestir heilsa og skrifa með hægri,“ útskýrði Tobbi.
„Þið byrjið þar sem örin er og beygið til vinstri. Svo til hægri
og aftur til hægri. Þá komið þið að krossgötum og þar beygið
þið til vinstri. Svo aftur til vinstri og loks til hægri. Þá eruð
þið komin heim til Róberts.“
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
Mundir þú eftir að bursta
og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
– allar upplýsingar á www.icecare.is
tannlæ
knar
mæla m
eð
GUM
tannvö
rum
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r44 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
1
-F
8
4
4
1
B
F
1
-F
7
0
8
1
B
F
1
-F
5
C
C
1
B
F
1
-F
4
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K