Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 96

Fréttablaðið - 14.01.2017, Side 96
Kári: Hundurinn minn er rosalega klár í stærðfræði. Kennarinn: Nú? Nefndu mér dæmi. Kári: Ég spurði hann hvað sjö mínus sjö væru og hann sagði ekki bofs. Pabbinn: Gummi, má ég sjá ein- kunnaspjaldið þitt. Gummi: Ég er ekki með það. Pabbinn: Af hverju ekki? Gummi: Ég lánaði Steina það. Hann ætlaði að láta foreldra sína fá sjokk. Kennarinn: Klara, þú hefur svindlað á prófinu. Þú ert með sömu svör og Gyða. Klara: Hvernig veistu að Gyða hafi ekki hermt eftir mér? Kennarinn: Af því að Gyða svaraði einni spurningu með: „Ég veit ekki,“ og þú skrifaðir: „Ég veit ekki heldur.“ Pabbi: Hvernig var í skólanum í dag, Baldur minn? Baldur: Rosa gaman, við vorum í efnafræði og æfðum okkur að blanda sprengiefni. Pabbi, Jæja, og hvað ætlið þið að gera í skólanum á morgun? Baldur: Hvaða skóla? Stílfært úr bókinni Brandarar og gátur. Útg. Óðinsauga Skólabrandarar Systkinin Jakob Eldur Fenger sex ára og Thea Björk Fenger fjögurra ára eru nýkomin frá Tenerife með foreldrum sínum. Þar sáu þau margt merkilegt. En hvað fannst þeim skrítnast? Jakob: „Skjaldbaka sem var að sýna á sér rassinn.“ Thea: „Og krabbarnir á strönd- inni, þeir voru rooosalega stórir.“ Jakob: „Við fórum í dýragarð.“ Thea: „Þar fórum við í rússíbana. Riiiisastóran.“ Jakob: „Já, ég var næstum búinn að gubba. Við fengum líka að sjá hvað það er gert margt gott fyrir dýrin í garðinum, skoðuðum rannsóknarstofur og læknastofur og lærðum mikið. Svo sáum við marglittur, þær voru í lituðu vatni. En við fengum ekki að sjá ljónin því það var verið að laga plássið þeirra.“ Hver eru uppáhaldsdýrið ykkar? Thea: „Mitt er tígrisdýr.“ Jakob: „Mitt er svarti pardus. Hann er rosa fljótur að hlaupa.“ Jakob sýnir á vegg hvað Tenerife er langt fyrir neðan Ísland á landakorti „Svo lentum við í einu landi hér á milli,“ segir hann og bendir á ósýnilegan punkt. „Það heitir England.“ Voru þau orðin leið á að sitja í flugvélinni? Thea: „Já, en það var matur.“ „Bara einu sinni,“ tekur Jakob fram. Hvernig leikið þið ykkur oftast saman? Jakob: „Við erum helst að horfa á eitthvað.“ Thea: „Það er skemmtilegast.“ En hvert farið þið út að leika? Jakob: „Ég bið mömmu oft að koma upp að Hallgrímskirkju.“ Thea: „Við prílum stundum á styttunni af Leifi Eiríkssyni.“ Jakob: „Ég hef líka farið alveg upp í topp á tré.“ Skjaldbakan skrítnust sem sýndi á sér rassinn Þegar Jakob Eldur og Thea Björk voru á Tenerife um hátíðarnar sáu þau mörg framandi dýr og fóru í risastóran rússibana. Listaverkin Þessi tré voru lituð í sunnudagaskóla Áskirkju. Mynd/Hólmfríður Hrafnkelsdóttir. Mynd/Marie Maillard. Systkinin. Jakob Eldur er í Vesturbæjarskóla. Hann tekur fram að það eigi að skrifa Jakob með b en ekki p. Thea Björk er í leik- skólanum Tjarnarborg og það er h í hennar nafni. FréTTaBlaðið/Ernir Bragi Halldórsson 232 A B Getið þið séð hvort heimili Róberts er merkt A eða B á kortinu? „Veist þú hvar Róbert refur á heima hérna í fjöllunum?“ spurði Lísaloppa Tobba kanínu. „Við villumst bara aftur og aftur,“ sagði Konráð mæðulega. „Samt erum við með kort,“ bætti Lísaloppa við. „Það er svo erfitt að rata hér í fjöllunum,“ sagði Tobbi. „Ég skal gefa ykkur kort af þeim. Þið þurfið bara að þekkja muninn á hægri og vinstri.“ Konráð og Lísaloppa viðurkenndu að þau rugluðust nú oft á hægri og vinstri. „Flestir heilsa og skrifa með hægri,“ útskýrði Tobbi. „Þið byrjið þar sem örin er og beygið til vinstri. Svo til hægri og aftur til hægri. Þá komið þið að krossgötum og þar beygið þið til vinstri. Svo aftur til vinstri og loks til hægri. Þá eruð þið komin heim til Róberts.“ ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur – allar upplýsingar á www.icecare.is tannlæ knar mæla m eð GUM tannvö rum 1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r44 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð 1 4 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B F 1 -F 8 4 4 1 B F 1 -F 7 0 8 1 B F 1 -F 5 C C 1 B F 1 -F 4 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.